Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
EFNAHAGSMÁL Mikilvægt er að niðurstöður
sérfræðingahóps sem kortlagt hefur skulda-
vanda heimilanna verði grunnur að samráði
sem leiði til þess að varanleg lausn finnist á
vandanum segir Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra.
Sérfræðingahópurinn telur að um 10.700
heimili séu í skuldavanda vegna fasteigna-
lána. Hópurinn reiknaði út áhrifin af ýmsum
leiðum til að leysa úr vandanum.
„Þetta eru mjög athyglisverðar niðurstöð-
ur sem þarna koma fram, nú er verkefnið
að vinna úr þessum niðurstöðum,“ segir
Jóhanna.
„Það er ekkert út af borðinu,“ segir
Jóhanna. Haldinn verður samráðsfundur með
fulltrúum fjármálastofnana og öðrum hags-
munaaðilum í dag til að ræða niðurstöður sér-
fræðingahópsins.
Hún segir ljóst að stór hópur fólks sé í
skuldavanda, og sumir í svo miklum að vart
verði hægt að grípa til aðgerða til að sá hluti
haldi heimilum sínum. Sá hluti gæti verið á
bilinu þrjú þúsund til fimm þúsund manns,
segir Jóhanna. Koma verði til móts við
þennan hóp með félagslega kerfinu og kaup-
leigukerfi svo fólk þurfi ekki að flytja af
heimilum sínum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, segist hafa orðið fyrir
vonbrigðum með niðurstöðu sérfræðinganna.
Hann bendir á að niðurstaðan taki til
dæmis ekki tillit til þess kostnaðar sem óhjá-
kvæmilega verði til, verði ekkert að gert til að
koma til móts við heimili í skuldavanda. Svo
virðist sem reiknað sé með því að allar skuld-
ir muni innheimtast að fullu, sem sé fjarri því
að vera veruleikinn.
Sigmundur Davíð segist þeirrar skoðunar
að almenn niðurfærsla sé enn heppilegasta
leiðin til að koma til móts við fólk í skulda-
vanda, en til viðbótar þurfi sértækar aðgerðir
fyrir þá sem dugar ekki niðurfærslan.
Einn þeirra sem sæti átti í sérfræðinga-
hópnum, Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður
í Hagsmunasamtökum heimilanna, ætlar að
senda frá sér sérálit þar sem meðal annars
verða birtar upplýsingar sem ekki koma fram
í skýrslu sérfræðingahópsins.
Marinó segir að skoða verði hvað aðgerð-
irnar nái til margra heimila, ekki bara hversu
mörgum af þeim sem séu í brýnasta vandan-
um þær hjálpi. Hann segir þau neysluviðmið
sem útreikningarnir miði við of lág, vandinn
sé því víðtækari en skýrslan gefi til kynna.
„Ef eitthvað er hefur niðurstaðan styrkt
mig í þeirri skoðun minni að flöt niðurfærsla
sé besta leiðin,“ segir Marinó. Hann segir að
skoða verði heildaráhrifin af slíkri aðgerð,
ekki eingöngu áhrifin á þá sem séu í verstri
stöðu. - bj / sjá síðu 4
Fimmtudagur
skoðun 22
fyrirtækjagjafirFIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
KYNN
ING
11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Tískumerkið Marc by Marc Jacobs heldur upp á tíu ára afmæli um þessar mundir. Marc er „systurmerki“ Marc Jac-obs-merkisins, og höfðar til yngra fólks með lægra verði. Í tilefni af afmælinu verða valdar bestu flíkurnar í gegnum árin og endurframleiddar.
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með
Tíu mínútur til að hafa sig til gæti mörgum þótt knappur tími. Sumir vinna þó betur undir pressu.
Á meðan
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fyrirtækjagjafir
Ef eitthvað er hefur niðurstaðan
styrkt mig í þeirri skoðun minni
að flöt niðurfærsla sé besta leiðin.
MARINÓ G. NJÁLSSON
HAGSMUNASAMTÖKUM HEIMILANNA
veðrið í dag
11. nóvember 2010
265. tölublað 10. árgangur
Menntaskólinn
á Akureyri 80 ára
Skemmtidagskrá í Kvosinni.
tímamót 30
Kynngimögnuð
„… af þeim skáldsögum sem þessi penni hefur lesið á þessu
hausti er Mörg eru ljónsins eyru sú merkilegasta vegna stílgáfu,
næmni og skáldlegra tilþrifa.“ PBB / FT
MEÐGÖNGUYOGA
að hefjast
15. og 16. nóvember
Verð aðeins 10.000 kr
Skráðu þig núna á
yoga@yogashala.is
Nánari upplýsingar
á www.yogashala.is
reykjavík
Yoga shala
Engjateig 5, 2. hæð, sími 553 0203
www.yogashala.is
Mr. Gay Europe
sleginn af
Vilhjálmur Þór fékk
óvæntar sárabætur.
fólk 62
STORMUR SA-LANDS Í dag verð-
ur víða strekkingur eða allhvasst en
stormur SA-lands fram á kvöld. Él
N- og A-lands en bjartviðri SV-til.
Frost 0-7 stig.
0
-3
-2 -5
-2
VEÐUR 4
VIÐSKIPTI Um fimmtán þúsund fyrir-
tæki hafa ekki skilað ársreikningi
vegna ársins 2009 og sex þúsund
til viðbótar hafa trassað að skila
ársreikningi vegna ársins 2008.
Fyrirtækjunum verður á næstunni
sent bréf þar sem sektir eru boð-
aðar skili þau ekki ársreikningum
innan 30 daga.
„Við höfum verið að vinna í því
að bæta skil á ársreikningum,“
segir Skúli Jónsson, forstöðumað-
ur fyrirtækjaskrár. Talsverður
misbrestur hefur verið á skilum
ársreikninga til skrárinnar undan-
farin ár, en aðeins hefur verið
gripið til sekta í afar takmörkuð-
um mæli.
Fyrirtækjaskrá getur sektað
fyrirtæki um allt að 250 þúsund
krónur skili þau ekki ársreikning-
um. Skili fyrirtæki ekki ársreikn-
ingum tvö ár í röð hækkar sektin í
500 þúsund krónur.
Skil á ársreikningum eru mikil-
væg svo hægt sé að meta stöðu
fyrirtækja, segir Tómas Már Sig-
urðsson, formaður Viðskiptaráðs.
Hann segir ráðið leggja mikla
áherslu á ársreikningaskil. - bj
Um 15 þúsund fyrirtæki hafa enn ekki skilað ársreikningum vegna síðasta árs:
Hótað 250.000 króna sektum
VIÐSKIPTI Færa á Smáralind og
Egilshöll saman inn í Fasteigna-
félag Íslands og
skrá félagið í
Kauphöllina að
ári. Ekki er úti-
lokað að fleiri
eignir fari inn í
félagið, svo sem
húsnæði World
Class í Laugum
í Reykjavík.
Helgi S.
Gunnarsson,
forstjóri Regins
ehf., dótturfélags Landsbankans,
segir vinnu komna á fullt skrið,
búið sé að ráða framkvæmda-
stjóra og fjármálastjóra til Fast-
eignafélagsins.
Þrjátíu fyrirtæki hafa skoðað
möguleikana sem felast í skrán-
ingu á hlutabréfamarkað, sam-
kvæmt upplýsingum úr Kauphöll-
inni. - jab / sjá síðu 16
Þrjátíu vilja í Kauphöllina:
Stefna á skrán-
ingu Egilshallar
HELGI S.
GUNNARSSON
STERKIR Á SVELLINU Tveir búddamunkar nutu veðurblíðunnar í Reykjavík í gær. Tjörnin er ísilögð
og notuðu þeir tækifærið og gengu yfir hana þvera á leið sinni niður í miðbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Segir ekkert út af borðinu
Forsætisráðherra segir niðurstöður sérfræðinga um skuldavanda leggja grunn að endanlegri lausn. Niður-
stöðurnar takmarkandi og villandi segir formaður Framsóknarflokksins. Samráðsfundur fer fram í dag.
Hamarskonur á toppinn
Hamarskonur unnu
Keflavík í uppgjöri taplausu
liðanna í kvennakörfunni.
sport 56