Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 10
10 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Dalshrauni 13 og Grensásvegi 48, sími 578-9700
MAGNKASSAR:
Nautahakk 3 kg
Hamborgarar 80 gr 10 stk
Hamborgarar 115 gr 10 stk
Ítalskar hakkbollur 2 x 1 kg
Sænskar hakkbollur 1 kg
Nauta gúllas 1 kg
VERÐ 13.480
Lamba Helgarsteik úr læri
Beint frá bónda í Öxnadal.
Lamba Helgarsteikinni fylgir
villi sveppasósan okkar frítt með
Helgardesertinn
Ekta frönsk súkkulaðimousse
Gjafakort Kjötkompaní
Tilvalin lausn fyrir fyrirtæki
og einstaklinga
Nautahakkið og Hamborgararnir
okkar eru úr 100% hreinu
nautakjöti
(FRYSTIVARA)
(5X600 gr)
Nýtt!
Erum farnir að taka pantanir fyrir jólin
FJÖLMIÐLAR „Mér finnst það for-
kastanlegt að fréttamanni Rík-
isútvarpsins sé sagt upp störfum
vegna þess að hann skrifar sam-
talsbók við fyrrverandi stjórn-
málamann. Mér finnst það algjör-
lega út í hött.“
Svo mælti Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra á Alþingi
í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, hóf
umræðu um uppsögn Þórhalls
Jósepssonar fréttamanns og lýsti
furðu sinni á ákvörðuninni. Þór-
halli var vikið úr starfi eftir að í
ljós kom að hann hafði skrifað bók
um Árna M. Mathiesen, fyrrver-
andi fjármálaráðherra.
Fréttastjórinn Óðinn Jónsson
sendi frá sér yfirlýsingu vegna
málsins í gær. Hann kveðst aldrei
hafa gefið samþykki fyrir því að
Þórhallur ritaði bók um fyrrver-
andi ráðherra. Þórhallur hefði
ámálgað það við hann, en hann
ekki getað tekið afstöðu til þess þar
eð Þórhallur vildi ekki upplýsa um
hvaða fyrrverandi ráðherra væri
að ræða. Síðan hafi hann ekkert
frétt af málinu fyrr en um dag-
inn, þegar bókin var nærri tilbúin.
Vegna þess trúnaðarbrests hefði
hann þurft að segja Þórhalli upp.
Í yfirlýsingu Óðins kemur fram
að á því tímabili sem Þórhallur
hafi verið að skrifa ævisöguna hafi
Árni margoft verið til umfjöllunar
og umræðu í fréttum og þáttum á
vegum RÚV, eins
og annarra fjöl-
miðla. Það gefi
augaleið að starf-
andi fréttamað-
ur geti ekki átt í
leynilegu trúnað-
ar- og starfssam-
bandi við fyrrver-
andi ráðherra við
þær aðstæður.
„Með þessari
framgöngu fréttamannsins var
vegið að trúverðugleika Frétta-
stofu RÚV og því trausti sem þarf
að ríkja á ritstjórn þessa mikil-
væga fjölmiðils í almannaeigu,“
segir í yfirlýsingu Óðins.
„Starfsmenn ríkisins hljóta eins
og allir aðrir íslenskir þegnar að
hafa rétt á því að tjá sínar eigin
skoðanir í gegnum bók með þess-
um hætti,“ sagði Össur. „Ég held
að þetta hljóti að vera handan við
það sem rétt er og siðlegt, án þess
að ég þori að fullyrða að það sé lög-
laust.“
„Auðvitað er þetta ömurlegt mál
vegna þess að Þórhallur er vand-
aður drengur og góður fréttamað-
ur. Það er gríðarleg eftirsjá að
honum,“ segir Aðalbjörn Sigurðs-
son, formaður Félags fréttamanna,
um uppsögnina.
Aðalbjörn segir að það hafi
komið starfsfólki RÚV mjög á
óvart þegar það frétti að Þórhall-
ur væri langt kominn með bók-
ina, enda telur hann það ekki sam-
rýmast störfum fréttamanns að
skrifa bók um svo áberandi per-
sónu í þjóðlífinu. Þórhallur hefði
alltaf átt að fara í leyfi frá frétta-
mennskunni á meðan.
„Þórhallur segist vera að skoða
sína stöðu og mér skilst að það
varði frekar formið á uppsögninni
heldur en ástæðuna. Við munum
náttúrulega standa við bakið á
honum ef ekki var rétt að þessu
staðið, en við ástæðuna get ég í
rauninni ekki gert athugasemd,“
segir Aðalbjörn.
stigur@frettabladid.is
Ráðherra fokvondur yfir
uppsögn fréttamanns RÚV
Forkastanlegt og út í hött, segir Össur Skarphéðinsson um uppsögn Þórhalls Jósepssonar. Þórhallur vann
sér það til saka að skrifa bók um Árna Mathiesen. Formaður félags fréttamanna gerir ekki athugasemd.
ÓÐINN JÓNSSON
ÞÓRHALLUR OG DAVÍÐ Hér sést Þórhallur Jósepsson bregða á leik með Davíð Odds-
syni á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans í september 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Láru Hönnu Einarsdóttur, sem flutt
hefur reglulega pistla í Morgunút-
varpi Rásar 2, hefur verið gert að
hætta störfum. Að hennar sögn er
ástæðan sú að hún skrifi jafnframt
pistla á vefritið Smuguna, sem
er að hluta í eigu Vinstri grænna.
Hætta sé á að almenningur tengi
hana við flokkinn.
Lára Hanna rekin
1 Hvar hefur eldra fólki verið
bannað að fóðra villiketti?
2 Hvað heitir sendiherra Evrópu-
sambandsins á Íslandi?
3 Hvert er stærsta fyrirtæki
landsins?
SVÖR
ÞJÓÐKIRKJAN Biskupsstofa hefur
sent öllum frambjóðendum til
stjórnlagaþings bréf með fyrir-
spurn um afstöðu þeirra til sam-
bands ríkis og kirkju.
Frambjóðendur eru beðnir
um að svara því hvort þeir telji
ástæðu til þess að breyta 62.
grein stjórnarskrárinnar sem
fjallar um samband ríkis og
kirkju. Árni Svanur Daníelsson,
upplýsingafulltrúi Biskupsstofu,
segir könnunina til komna vegna
umræðunnar í samfélaginu um
samband ríkis og kirkju. Málið
sé mikilvægt og skipti kirkjuna
máli. Svörin verða svo öll birt á
vef þjóðkirkjunnar. 62. greinin
hljómar svo: „Hin evangeliska lút-
erska kirkja skal vera þjóðkirkja
á Íslandi, og skal ríkisvaldið að
því leyti styðja hana og vernda.
Breyta má þessu með lögum.“ - sv
Stjórnlagaþing fær fyrirspurn:
Kirkjan vill álit
frambjóðenda
1. Við Hrafnistu í Hafnarfirði. 2. Timo
Summa. 3. Bakkavör Group.
VEISTU SVARIÐ?