Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 22
22 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Flott
Viðræðum um sameiningu Háskólans
á Bifröst og Háskólans í Reykjavík
hefur verið slitið í framhaldi þess að
Magnús Árni Magnússon, rektor á
Bifröst, upplýsti andstöðu sína við
áformin. Lengi vel var hann hlynntur
sameiningu en í síðustu viku sagðist
hann vera á móti. Sinnaskiptin skýrði
hann með því að sameiningarviðræð-
urnar hefðu sveigt frá því sem lagt
hefði verið upp með. Í bréfi til
stúdenta á Bifröst sagði hann að
upphaflega hefði verið áformað
að „kampusinn á Bifröst yrði
vettvangur þverfaglegs samstarfs
háskólabrauta með sjálf-
stæðar háskólalínur“.
Þetta hljómar afskaplega vel en ekki
er gott að segja hvað þetta þýðir.
Afsakið
Á þessum vettvangi í gær var
Ögmundur Jónasson sagður þing-
maður Suðurkjördæmis. Það er rugl,
Ögmundur er þingmaður Suðvestur-
kjördæmis. Beðist er velvirðingar á
mistökunum, sem stöfuðu af því að
gömul kjördæmaskipan sat föst í
blaðamanni.
Ánægð
Tiltölulega sjaldgæft er
að alþingismenn lýsi
ánægju með árang-
ur af störfum
sínum. Algengara er að þeir gráti að
sjaldan sé hlustað á þá. Siv Friðleifs-
dóttir er í fyrrnefnda hópnum. „Árið
hefur verið gjöfult og árangursríkt
hvað varðar málflutning minn á
Alþingi,“ segir hún á heimasíðu sinni.
„Á þessu ári hafa fjögur mál mín
fengið afgreiðslu á Alþingi eða hjá
ráðherra.“ Eru það bann við nektar-
dansi, bólusetningar gegn pneumó-
kokkum, áætlun um ferðamennsku á
miðhálendinu og nú síðast reglur
um transfitusýrur. „Finnst mér
mjög líklegt að sjaldan eða
aldrei hafi þingmaður fengið
svo mörg mál samþykkt á svo
skömmum tíma á þinginu,“
segir Siv. bjorn@frettabladid.is
1. Ráðumst á garðinn þar sem hann er lægstur. Leikskólinn er tilvalinn. Þar
er smæsta fólkið, sem ver sig ekki hjálp-
arlaust. Í góðum leikskóla er unnið að því
að börn öðlist öryggi og sterka
sjálfsmynd og lagður grunnur
að gagnrýninni og skapandi
hugsun. Markmiðið er að nem-
endur séu og verði gerendur
í lýðræðissamfélagi. Þetta er
auðvitað stórhættulegt.
2. Breytum, breytinganna
vegna. Breytingar skapa
óvissu og ótta. Þá er ráð að
sameina litlar stofnanir og
sundra stórum.
Tökum geðþóttaákvarð-
anir og hlustum ekki á fag-
fólk, sem tefur fyrir og sér
ekki ótvíræða kosti þess að
skemma menntun. Látum
vondar ákvarðanir kvisast út. Ekki segja
allan sannleikann. Orðrómur sem vekur
óvissu þreytir fólk og þegar kemur að því
að framkvæma óvinsælar ákvarðanir er
minni mótstaða.
3. Sköpum álag. Ef kennarar starfa
undir miklu og langvarandi álagi hafa
þeir ekki orku til þess að vera málsvar-
ar skólastarfs. Virðum ekki kjarasamn-
ingsbundinn rétt um undirbúningstíma,
vökum yfir því að fag- og starfsmanna-
fundir séu ekki haldnir. Svigrúm
til samstarfs og samræðu skal
forðast þar sem það eykur með-
vitund.
4. Fækkum stjórnendum. Leik-
skóli er lifandi lærdómssamfélag
þar sem haldið er utan um barnið
og nánasta umhverfi þess. Hann
er fastur punktur fjölskyldunnar
og lifandi miðpunktur nærsamfé-
lagsins.
Leikskólastjórnendur þekkja
sitt fólk og halda utan um menn-
ingu og hefðir. Börn, foreldr-
ar, kennarar og annað starfs-
fólk njóta leiðsagnar, forystu,
umhyggju og kennslu þeirra. Þeir
eru hagsýnir rekstraraðilar og geta gert
ótrúlega hluti úr litlu. Þetta skapar öryggi
og festu og smitar frá sér út í samfélag-
ið. Þetta er náttúrlega ótækt. Fækkum
stjórnendum, það sundrar skólasamfélag-
inu og er góð leið til að láta almenning sjá
að eitthvað sé verið að gera.
Góð ráð til að sundra samfélagi
Leikskólar
Ingibjörg
Kristleifsdóttir
formaður Félags
stjórnenda
leikskóla
Marta Dögg
Sigurðardóttir
formaður Félags
leikskólakennara
Leikskóla-
stjórnendur
þekkja sitt
fólk og halda
utan um
menningu og
hefðir.
K
önnun á meðal forstöðumanna ríkisstofnana, sem Ríkis-
endurskoðun kynnti í gær, sýnir fram á mikla óánægju
þeirra með lögin um ríkisstarfsmenn, sem þeim er
gert að starfa eftir. Þetta er ekki nýtt og hefur komið
fram áður í sambærilegum könnunum en á ríkt erindi í
umræðuna nú, þegar skattgreiðendur eiga heimtingu á að farið sé
vel með hverja krónu sem þeir leggja til rekstrar ríkisstofnana.
Ríkisstarfsmenn njóta marg-
víslegra forréttinda umfram
launþega á almennum vinnu-
markaði. Ríkið tryggir lífeyris-
kjör þeirra, burtséð frá afkomu
og ávöxtun lífeyrissjóða, þeir
eiga betri orlofs- og veikinda-
rétt og njóta síðast en ekki sízt
ríkrar uppsagnarverndar. Rík-
isstarfsmanni er ekki hægt að segja upp nema leggja eigi starf-
ið niður, eða þá að viðkomandi hafi fengið formlega áminningu
vegna frammistöðu sinnar í starfi.
Mikill meirihluti forstöðumanna ríkisstofnana telur að lög og
reglur um ríkisstarfsmenn standi í vegi fyrir því að stofnanir nái
að starfa innan fjárheimilda. Skilvirkni sé látin víkja fyrir vernd
í starfi. Mikill meirihluti er ósammála því að starfsmannalög-
in stuðli að skilvirkum ríkisrekstri. Yfirgnæfandi meirihluti er
sömuleiðis ósammála því, sem stundum hefur verið haldið fram,
að ef sambærilegar reglur giltu í ríkisrekstrinum og á almennum
vinnumarkaði, myndi það leiða til uppsagna á grundvelli geðþótta.
Enda sýnir reynslan af almennum vinnumarkaði að slíkar upp-
sagnir eru fátíðar. Stjórnendur reyna að forðast uppsagnir, en taka
ákvarðanir með hag fyrirtækjanna að leiðarljósi.
Hátt í 40 prósent forstöðumannanna telja að þeir gætu bætt
þjónustu sinnar stofnunar ef þeir segðu hluta starfsmannanna upp
og réðu nýja í þeirra stað. Þetta er iðulega gert í einkafyrirtækj-
um, en í opinberum stofnunum er það afar flókið í framkvæmd.
Ríkisstofnanir sitja með öðrum orðum margar hverjar uppi með
starfsfólk sem ekki stendur sig en geta ekki losnað við það.
Forstöðumennirnir telja það hindra áminningar og uppsagnir að
neikvæð viðhorf ríki í garð slíks innan opinbera geirans. Þannig
er í raun ómögulegt að segja upp starfsfólki nema það geri bein-
línis alvarleg mistök í starfi. Það mun til dæmis vera afar fátítt að
menn fái áminningu eða uppsögn fyrir að vera verklitlir, þótt það
blasi við að aðrir gætu afkastað mun meiru í starfinu.
Tvískiptingin á vinnumarkaðnum er löngu úrelt fyrirbæri.
Einhverjir telja kannski að núverandi stjórnarflokkar séu ekki
líklegir til að beita sér fyrir afnámi hennar. Þeir hafa hins vegar
að minnsta kosti tvær ástæður til þess.
Annars vegar hefur uppsagnarverndin og skriffinnskan í opin-
bera geiranum í för með sér sóun á peningum skattgreiðenda, sem
svör forstöðumannanna gefa vísbendingu um. Hún gerir það líka
að verkum að opinberar stofnanir eru svifaseinar að bregðast við
breyttum aðstæðum og eykur þrýsting á að þeim sé komið burt
úr hinu þunglamalega lagaumhverfi með hlutafélagavæðingu eða
einkavæðingu.
Ósveigjanleg lög um opinbera starfsmenn
standa í vegi fyrir skilvirkum ríkisrekstri.
Úrelt tvískipting
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Viðarhöfða 6 - Reykjavík / Bæjarhrauni 12 - Hafnarfirði
www.sindri.is / sími 575 0000
Verslanir
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
01
16
4
DCD945B2
Öflug 12 V borvél m. höggi
LED-ljós
13 mm patróna
3ja gíra, 0-450/1200/1800
Átak 44 Nm.
2x2,6 Ah Ni-Mh rafhlöður.
12 V hleðsluborvél m. höggi
59.900
Verð með vsk.