Fréttablaðið - 11.11.2010, Side 26
26 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Vart er hægt að hugsa sér þyngra áfall í lífinu en þegar einhver
sem maður elskar ákveður að stytta
sér aldur. Samkvæmt upplýsing-
um frá landlæknisembættinu eru
sjálfsvíg á Íslandi um 12,8 sjálfs-
víg á hverja 100.000 íbúa. Þessi tala
sveiflast reyndar mikið milli ára og
er hér miðað við nokkurra ára með-
altal. Þetta þýðir að þrír til fjórir
einstaklingar að meðaltali svipta
sig lífi í hverjum mánuði á Íslandi
samkvæmt áðurnefndum upplýs-
ingum. Það er mun fleira en ferst í
umferðarslysum á Íslandi. Þannig
lést árið 2008 að meðaltali einn í
umferðinni í hverjum mánuði.
Það er varlegt að áætla að hvert
sjálfsvíg snerti með þungbærum
hætti tíu manns. Á hverju ári eru
því nokkur hundruð Íslendingar
sem þurfa að takast á við þá erfiðu
reynslu að einhver þeim nákominn
ákvað að enda líf sitt. Þá eru ótald-
ir allir þeir sem áður hafa gengið
í gegnum slíkt áfall. Meðal þeirra
sem sinna sálgæslu vegna sorgar og
áfalla hefur verið sagt að skyndi-
legt ótímabært andlát geri nánustu
ættingja að 50% öryrkjum næstu
misserin á eftir.
Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð hefur lengi unnið
að því að styðja þau sem þurft
hafa að takast á við sjálfsvíg ást-
vina eða ættingja. Nk. fimmtudags-
kvöld 11. nóvember heldur sr. Svav-
ar Stefánsson fyrirlestur á vegum
Nýrrar dögunar um sjálfsvíg og þá
sorgarúrvinnslu sem þarf að fylgja
í kjölfarið. Sr. Svavar hefur áratuga
reynslu svo og menntun í sálgæslu
í kjölfar sjálfsvíga. Fyrirlesturinn
hefst kl. 20.30 og er í safnaðarheim-
ili Háteigskirkju og er öllum opinn.
Þá verður einnig við sama tækifæri
skráð í stuðningshóp fyrir aðstand-
endur en hann hefst mánudaginn
15. nóvember.
Sjálfsvíg –
hvað svo?
Sorgarviðbrögð
Halldór
Reynisson
formaður NÝrrar
dögunar
Í Fréttablaðinu þann 21. októb-er skrifar menntamálaráðherra
meðal annars: „Menntun felst ekki
aðeins í að fá þjálfun í tilteknu
starfi eða verklagi. Hún felst í að
efla þroska sinn og skilja hvað
felst í því að vera maður. Hún felst
í því að temja sér gagnrýna hugs-
un þannig að hver og einn geti tekið
sjálfstæða og gagnrýna afstöðu í
flóknum málum. Lengi vel hefur
þetta verið undirstaða alls háskóla-
náms í Bandaríkjum Norður-Amer-
íku að háskólanemar taka grunn í
heimspeki, listum og öðrum húman-
ískum fögum sem á að þjóna þess-
um tilgangi (undirstrikun okkar).“
Ráðherra lýsir síðan yfir áhyggj-
um sínum af hnignun húmanískra
greina innan háskólanna og þar sé
hugsanlega að leita skýringa á skorti
á gagnrýnni hugsun í íslensku sam-
félagi í aðdraganda hrunsins.
Í þessari grein endurspeglast sú
skoðun ráðherra að gagnrýnni hugs-
un sé fyrst og fremst (og kannski
eingöngu) þjónað af húmanískum
greinum. Ef það er rétt, þá er það
rökrétt ályktun að leggja þurfi mun
meiri áherslu á húmanískar grein-
ar til að efla gagnrýna hugsun og
þannig bæta samfélag okkar.
Við teljum hins vegar ekki rétt að
undanskilja raunvísindi og rökhugs-
un raunvísinda frá gagnrýnni hugs-
un. Rökhugsun sú sem er grunnur
raunvísinda byggir á gagnrýnni
hugsun. Vísindaleg aðferð og sú mál-
efnalega umræða, oft óvægin, sem
tíðkast í hinni vísindalegu aðferða-
fræði á sér djúpar rætur innan raun-
vísinda. Í rökstuðningi sínum segir
ráðherra að í bandarískum háskól-
um sé öllum skylt að taka námskeið
í húmanískum greinum til að læra
gagnrýna hugsun. Það er rétt að
víða er gerð krafa um að raunvís-
indanemar taki námskeið í húman-
ískum greinum en það sem vantar
í röksemdarfærslu ráðherra er að
þetta gildir í báðar áttir. Algengast
er að allir nemendur bandarískra
háskóla verði að taka námskeið í
raungreinum, félagsvísindum og
húmanískum fræðum. Hugsunin
á bak við þetta er fyrst og fremst
að nemendur öðlist breiða mennt-
un, en að sjálfsögðu ekki sú að fólk
læri gagnrýna hugsun í einhverj-
um afmörkuð kúrsum í húmanísku
greinunum en haldi síðan áfram að
læra til síns starfs eða verklags í
hinum fögunum. Gagnrýnni hugs-
un er þvert á móti haldið á lofti á
öllum stigum náms í húmanískum
greinum, félagsvísindum og raun-
greinum.
Markvissasta leiðin til að efla
gagnrýna hugsun í háskólastarfi er
að stórefla vísinda- og fræðastörf
við háskólana. Húmanískar greinar,
raunvísindi og aðrar fræðigreinar
háskólanna munu eflast og gagnrýn-
in hugsun fá aukið vægi ef kennarar
þessara skóla eru öflugir fræðimenn
sem taka þátt í alþjóðlegum vísinda-
og fræðastörfum. Án gagnrýninnar
hugsunar og greiningar mun vísind-
um ekki vinda fram. Breið þekking
eflir gagnrýna hugsun og húmanísk
fræði eiga ekki einkarétt á henni.
Anna Ingólfsdóttir, prófessor HR
Arnar Pálsson, dósent HÍ
Einar Steingrímsson stærðfræð-
ingur
Guðmundur Hrafn Guðmundsson,
prófessor HÍ
Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófess-
or HR
Ingibjörg Harðardóttir, prófess-
or HÍ
Karl Ægir Karlsson, dósent HR
Luca Aceto, prófessor HR
Magnús Már Halldórsson, prófess-
or HR
Ólafur Sigmar Andrésson, próf-
essor HÍ
Snorri Þór Sigurðsson, prófess-
or HÍ
Þórarinn Guðjónsson, dósent HÍ
Gagnrýnin hugsun og háskólastarf
Háskólastarf
Tólf prófessorar
við HÍ og HR
svara grein menntamálaráðherra
Tilefni þessara skrifa er ákvörð-un Orkuveitu Reykjavíkur að
hækka raforkuverð til neytenda
verulega.
Í Morgunblaðinu 31. júlí sl. er
grein með yfirskriftinni: „Greiða
lítinn arð til eigenda. Orkufyr-
irtækin hafa ekki greitt mikinn
arð til eigenda sinna síðustu árin.
Fyrirtækin greiða tugi milljarða
í vexti á hverju ári til erlendra
banka. Aðeins Orkuveita Reykja-
víkur hefur greitt arð til eigenda.“
Tilvitnun lýkur.
Við lestur greinarinnar vakna
ýmsar spurningar. Eins og t.d.
hver á Orkuveitu Reykjavíkur?
Eru það ekki þeir sem borga reikn-
ingana frá Orkuveitu Reykjavíkur,
sem nú breiðir úr sér langt út fyrir
borgarmörkin? Eru það ekki hinir
raunverulegu eigendur sem eiga
að fá greiddan arð? Hafa stjórn
og starfsmenn Orkuveitu Reykja-
víkur einkarétt á arðgreiðslum,
sbr. grein í Fréttablaðinu 3. ágúst
sl.: „Meðallaun í OR 470 þúsund –
16% hækkun hefur orðið á launum
starfsmanna Orkuveitu Reykjavík-
ur á síðustu þremur árum.“? Til-
vitnun lýkur. Ég vísa einnig í grein
í Fréttablaðinu 3. sept. sl. með yfir-
skriftinni: „Reiðarslag fyrir garð-
yrkjuna.“ Tilvitnun lýkur. En hvað
með heimilin, aðra neytendur og
fyrirtæki?
Ég er ekki sátt og fór því á stúf-
ana til að grennslast fyrir um hina
lagalegu hlið málsins. Mig minn-
ir nefnilega að bygging Perlunnar
á kostnað orkunotenda hafi verið
mjög umdeild á sínum tíma, en hún
mun sennilega hafa verið upphafið
að arðráni Hitaveitu Reykjavíkur,
sem nú heitir Orkuveita Reykja-
víkur.
Í stjórnsýslulögum og vitna ég
þá til kennslubókar í norskum
stjórnsýslurétti, og gildir væntan-
lega það sama í norrænum rétti,
geta orkuveitur á vegum sveitar-
félaga og á það enn frekar við um
einokunarfyrirtæki, ekki innheimt
samkvæmt gjaldskrá meira fé en
sem nemur útgjöldum fyrirtæk-
isins. Ef um orkufyrirtæki er að
ræða þá má ekki innheimta meira
fé en til að standa undir rekstri og
fjárfestingum (lánum og afskrift-
um) vegna orkuöflunar. Fyrirtæk-
ið má innheimta fyrir óvissum
útgjöldum en ekki meira en það.
Svo hefur verið áratugum saman.
Að greiddur er virðisauka-
skattur undirstrikar að verið sé
að greiða fyrir vöru eða þjón-
ustu, sem sveitarfélagið má ekki
nota til óbeinnar skattheimtu. Sé
hagnaður á fyrirtækinu settur í
rekstur sveitarfélagsins er það
ólöglegt. Ef fyrirtækið greiðir
til reksturs sveitarfélagsins telst
það skattheimta. Arðgreiðsla til
sveitarfélagsins er því óbeinn
skattur til þess og þarf lagaheim-
ild til samkvæmt stjórnarskrá.
Arðgreiðsla til Reykjavíkur-
borgar er skattur sem neytendur
orku þurfa að greiða og er ólög-
mæt greiðsla. Af hverju skulu
Hvergerðingar og Kópavogs-
búar greiða óbeinan skatt til að
halda uppi rekstri Reykjavíkur-
borgar? Af hverju eiga orkunot-
endur almennt að greiða sérstak-
an skatt í formi arðgreiðslna til
Reykjavíkurborgar? Að skatt-
leggja orkunotendur sérstak-
lega til að halda uppi almennum
rekstri höfuðborgarinnar er ólög-
mæt skattheimta.
„Ó borg mín borg“, hvert ert þú að fara?
Orkuveitan
Ellen
Júlíusdóttir
félagsráðgjafi
Af hverju skulu
Hvergerðingar
og Kópavogsbúar greiða
óbeinan skatt til að halda
uppi rekstri Reykjavíkur-
borgar?
Ég minnist þess ekki að ég hafi hitt hinn glaðbeitta Gillzenegg-
er. Hann verandi heimsfrægur hef
ég þó auðvitað vitað af honum. Ég
hef haft tilhneigingu til þess að vera
sammála vini hans sem sagði að
Gillz væri náttúrlega snarklikkað-
ur, en drengur góður. Ég hélt satt að
segja í fyrstu að hann væri BARA
snarklikkaður. Svo datt inn á borð til
mín bók sem hann hafði skrifað. Ég
fletti í gegnum hana og las nokkra
kafla. Og sá að hvað sem manni þótti
um efnið var hún prýðilega skrif-
uð. Drengurinn hefur virkilega góð
tök á íslensku og virðing mín fyrir
honum tók skref uppávið.
Nú veit ég ekkert hvernig Gillzen-
egger ætlar að skreyta Símaskrána
en ég er dálítið hissa á því uppnámi
sem það hefur valdið. Hann mun
einhverntíma hafa skrifað einstak-
lega ruddalega færslu á bloggið sitt
og hafi hann skömm fyrir. En hann
mun einnig hafa tekið færsluna út
skjótlega og beðist afsökunar. Hvað
sem því líður finnst mér ekki að
bloggfærsla eigi að nægja til þess
að mönnum sé bannað að vinna.
Látum vera skrækina í dólgfem-
ínistum sem krefjast þess að menn
séu sviptir vinnu sinni ef þeir hafa
ekki nákvæmlega sömu skoðanir og
dólgarnir. Mér er sama um þá. En
þegar þekktir og virtir rithöfundar
hefja herferð til þess að setja mann í
Berufsverbot, er mér brugðið. Dinna
mín og Hallgrímur frændi, hvað
er næst? Á að efna til bókabrennu
þegar símaskráin kemur út?
Áfram Gillz
Símaskráin
Óli
Tynes
fréttamaður
Markvissasta
leiðin til að efla
gagnrýna hugsun í há-
skólastarfi er að stórefla
vísinda og fræðistörf við
háskólana.
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Þú færð Michelin dekkin hjá Hjólbarðaþjónustu N1,
og hjá betri hjólbarðaverkstæðum um allt land.
...og hef ég þó prófað fjölda vetrardekkja gegnum tíðina,
negld og ónegld, nú síðast undir EuroRAP mælingabílnum.
Dekkin gefa frábært grip við allar aðstæður og eru hljóðlát
og endingargóð. Best af öllu er þó að eyðslan er 0,52
lítrum minni á hundraðið en á sumardekkjunum sem
bíllinn kom á frá framleiðanda.“
Ólafur Kr. Guðmundsson
tæknistjóri EuroRAP á Íslandi og dómari í Formúlu 1
„MICHELIN X-ICE ERU
BESTU VETRARDEKK
SEM ÉG HEF PRÓFAÐ
HINGAÐ TIL...
Kynntu þér nýja vefverslun með hjólbarða á www.n1.is