Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 32
11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR32
Félags- og fjölmiðlafræðing-
urinn Sigríður Arnardóttir,
Sirrý, hefur síðustu misser-
in farið víða með fyrirlest-
ur sem ber yfirskriftina „Að
laða til sín það góða“. Fyr-
irlesturinn fjallar um hvað
skiptir máli í lífinu, hvernig
hægt er að stjórna því, öðlast
bjartsýni og koma draumum
sínum í verk.
Í kvöld, 11. nóvember,
mun Sirrý flytja fyrirlest-
urinn í Heilsuborg í Faxa-
feni 14 en Sirrý segist, að
því er fram kemur í tilkynn-
ingu, fjalla „á einlægan og
hvetjandi hátt um það hvað
skiptir í raun máli í lífinu,
hvernig við finnum hvað við
viljum og hvernig við löðum
til okkar“.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20
og stendur til 22. Aðgangs-
eyrir er 2.000 krónur og í
boði eru léttar veitingar frá
veitingastaðnum Gló.
- jma
Fyrirlestur um
lífið og drauma
ÞAÐ GÓÐA FUNDIÐ Sigríður Arnardóttir, Sirrý, verður með fyrirlestur í
Heilsuborg í kvöld sem ber yfirskriftina „Að laða til sín það góða“.
Solla Eiríks hráfæðisgúrú
og Dorrit Moussaieff for-
setafrú þjófstarta alþjóð-
legu athafnavikunni með
léttri sýnikennslu í matar-
gerð með nýsköpunarívafi á
veitingastaðnum Gló í Laug-
ardal kl 18. í kvöld. Þær ætla
að bjóða upp á heilsudrykk
og nota afgangana sem til
falla við gerð drykkjarins
til að gera glútenfrítt heilsu-
kex.
„Ég var valin talsmað-
ur alþjóðlegrar athafna-
viku sem hefst í næstu viku
og hefur þemað matur,“
segir Solla spurð hvern-
ig þetta hafi komið til. „Og
Dorrit er fastagestur hjá
okkur svo mér datt í hug
að fá hana með mér í að
gera eitthvað skemmtilegt.
Hún var meira en til í það,
vildi endilega fá að skella
á sig svuntu og skera gúrk-
ur með mér. Hún hafði hins
vegar öðrum hnöppum að
hneppa í athafnavikunni
sjálfri svo við ákváðum
að taka forskot á sæluna.
Vonandi verður þetta
inspírasjón fyrir fólk til
að þora að gera tilraunir
með hráfæði.“ - fsb
Solla og Dorrit með
sýnikennslu á Gló
HRÁFÆÐI Forsetafrúin ætlar að
skella á sig svuntu og hjálpa
Sollu Eiríks við matargerð á Gló
í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Heldur sérstakir tónleik-
ar verða haldnir í Víkinni
- Sjóminjasafninu í Reykja-
vík í kvöld og annað kvöld.
Robbie O´Connell, þekktur
írskur-amerískur þjóðlaga-
söngvari og lagahöfundur
mun ásamt Dan Milner, sem
starfað hefur meðal annars
við varðveislu írskra þjóð-
laga og texta, munu flytja
írsk þjóðlög er tengjast haf-
inu. Síðasta plata Milner,
Irish Pirate Ballads and
Other Songs of the Sea, var
styrkt af Þjóðminjasafni
Bandaríkjanna og hefur
fengið lofsamlega dóma.
Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30. - jma
Írskar sjóræn-
ingjaballöður
TÓNLEIKAR Í VÍKINNI Nú í kvöld
og annað kvöld verða írsk-amer-
ísk þjóðlög flutt í Víkinni.
Nepalski blaðamaðurinn og
rithöfundurinn Kunda Dixit
fjallar um áhrif loftslags-
breytinga á Himalajafjöllin
í fyrirlestri á Háskólatorgi
klukkan 16.30 í dag.
Dixit útskýrir hvernig
hlýnun jarðar er að bræða
þessa miklu vatnsturna
Asíu og sýnir myndir frá
Nepal. Á þeim sést glögg-
lega að sífrerar Himalaja
eru að hverfa um þrisvar
sinnum hraðar en á öðrum
stöðum í heiminum.
Spurningar sem Dixit
varpar fram eru meðal
annars: Hvaða áhrif hefur
þessi þróun á Nepal og
svæðið sem heild? Hvern-
ig geta fátæk lönd tekist
á við vandamál sem þau
áttu engan þátt í að skapa?
Hvernig fjalla fjölmiðlar
um þetta ástand?
Fyrirlesturinn verður
eins og áður segir í stofu
105 á Háskólatorgi í dag og
hefst klukkan 16.30.
- fsb
Bráðnun jökla í
Himalajafjöllum
JÖKLAR HIMALAJAFJALLA Þeir bráðna þrisvar sinnum hraðar en aðrir
jöklar vegna hlýnunar jarðar. NORDICPHOTOS/APF
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Árni
Vilhjálmsson
bifreiðastjóri, Hólmavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn
5. nóvember, verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju
laugardaginn 13. nóvember kl. 13.00.
Aðalheiður Ragnarsdóttir
Elsa Björk Sigurðardóttir Ólafur Björn Halldórsson
Bryndís Sigurðardóttir Ingvar Þór Pétursson
Jón Vilhjálmur Sigurðsson Júlíana Ágústsdóttir
Hrefna Sigurðardóttir Ásgeir Andri Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jórunn Guðrún
Rósmundsdóttir
Grundarlandi 12, Rvk,
andaðist fimmtudaginn 4. nóvember. Útförin fer fram
frá Bústaðakirkju 18. nóvember kl. 13.00.
Jón Bjarni Jónsson Janna Jónsson
Rósa G. Jónsdóttir Helgi E. Kolsöe
Sigurður P. Jónsson Annette Nielsen
Árni P. Jónsson Ásta Emilsdóttir
Nanna Jónsdóttir Óskar Guðmundsson
Sveinn E. Jónsson Guðlaug Harðardóttir
Soffía V. Jónsdóttir Hafsteinn Ó. Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir
og afi
Markús Hjálmarsson
frá Lækjarbakka í Vestur-Landeyjum,
sem andaðist 18. október sl., verður jarðsunginn frá
Akureyjarkirkju laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á PKU-félagið á
Íslandi, s: 552 4242.
Hjálmar Markússon
Þorgeir Markússon Álfheiður Árnadóttir
Grétar Markússon Sigurbjörg Á. Ólafsdóttir
afabörn
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Ragnar Björnsson
matsveinn
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, þriðjudaginn
9. nóvember.
Jóna Ásgeirsdóttir
Gunnar Ingi Ragnarsson Valdís Bjarnadóttir
Ragnheiður Ragnarsdóttir Egill Þórðarson
Anna Birna Ragnarsdóttir Snorri Sigurjónsson
Ásgrímur Ragnarsson Unni Larsen
Einar Ragnarsson Hafdís Erla Baldvinsdóttir
Ingibjörg Ragnarsdóttir Lúther Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vináttu við and-
lát og útför ástkærrar frænku okkar,
Sigþrúðar Rannveigar
Stefánsdóttur
frá Grund, Kópaskeri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu að hjúkrunar-
heimilinu Sólvangi, 2. hæð fyrir góða umönnun.
Arnþrúður G. Björnsdóttir
Stefanía Björnsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gestheiður Jónsdóttir
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
6. nóvember. Útförin fer fram föstudaginn
12. nóvember kl. 15.00 frá Fossvogskapellu.
Sigríður Pálsdóttir Eikaas Leif Magne Eikaas
Jón Grímkell Pálsson
Anna Margrét Kristjánsdóttir Kristmundur Hrafn
Ingibjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
512 5000.