Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 34
11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR2
Tískan er oft áhugaverðari á tímum efnahagsþrenginga að mati
Karls Lagerfeld. Í viðtali við útvarp BBC sagði Lagerfeld ástæðuna
vera þá að hönnuðir tækju frekar áhættu á erfiðum tímum.
Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður
á Stöð 2, segir góðan klæðaburð
snúast um virðingu fyrir náung-
anum og sjálfum sér.
„Tímaþröng er engin afsökun fyrir
því að vera illa til fara, „segir Þor-
björn Þórðarsonar, fréttamaður á
Stöð 2. „Mark Twain sagði að fötin
sköpuðu manninn því nakið fólk
hefði lítil eða engin áhrif í sam-
félaginu. Það var rétt hjá honum.
Það skiptir í raun og veru ekki
máli þótt tíminn sé naumur, það
er engin afsökun fyrir því að vera
illa til fara, enda eru karlmenn
yfirleitt snöggir að hafa sig til.“
Sjálfur segist Þorbjörn ekki
þurfa mikið meira en fimm mínút-
ur í að taka sig til áður en hann fer
út. „Maður klæðir sig vel ekki síst
til að sýna náunganum virðingu,
maður færi til dæmis aldrei illa
til hafður í matarboð til ættingja
sinna. Ef manni líður vel í falleg-
um fötum, þá hættir maður sjálf-
ur að veita þeim athygli, og getur
farið að hugsa um eitthvað annað
sem skiptir meira máli.“
Þorbjörn er með klassískan
stíl og er hrifinn af vestum og
aðsniðnum jakkafötum. „Af þeim
jakkafötum sem ég er með í notk-
un núna er ég með þrenn „three-
piece“ jakkaföt. Vestið getur líka
gengið við flottar gallabuxur. Ef
maður vill vera flottur í vesti en
ekki of uppstrílaður þá sleppir
maður bindinu og hefur eina til
tvær tölur fráhnepptar á skyrt-
unni.“ - jma
Tímaþröng ekki
nægjanleg afsökun
Þorbjörn er hrifinn af vestum og aðsniðnum jakkafötum. „FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vetrarútsala
30-50% afsl af öllum vörum
Kápur
áður 19990
nú 13990
Kjólar áður 14990
nú 9990
Gallabuxur háar í mittið
áður 9990
nú 6990
Peysur áður 9990
nú 4990
Sími 568 5170
Ný sending
Velúrgallar
Innigallar fyrir konur
á öllum aldri
Stærðir S – XXXL
H O M E F A S H I O N
Zeus heildverslun - Sia
Austurströnd 4 • 170 Seltjarnarnes
www.sia-homefashion.com
Sia-vörurnar fást í öllum helstu
blóma og gjafavöruverslunum
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504
NÝ BÚTASAU
MSEFNI, ULL
AREFNI, JER
SEY, JOGGIN
G, FLAUEL, S
AMKVÆMISE
FNI
Zorró og bresk yfirstétt nýttust
sem skáldagyðjur nýjustu línu
Hermés fyrir vor og sumar næsta
árs.
Fyrir vor- og sumarlínu Hermés
var það meistarinn Jean Paul
Gaultier sem þar stóð að baki.
Gaultier sótti innblástur sinn auð-
sjáanlega til breskra
reiðmanna með göf-
ugan uppruna enda
fötin afar elegant.
Sumir myndu jafn-
vel meina að hinn
suðræni Zorró
hefði komið við
sögu þar sem
fötin voru kyn-
þokkafull með
afar kven-
legu sniði.
Leður og fínt
si lki voru
áberandi
auk fylgi-
hlutanna
sem settu
punktinn
yfir i -ið;
svartir hattar, flott
belti, reiðstígvél og
hanskar úr leðri.
Heillandi
Hermés
Fylgihlutirnir í línu
Hermés settu punktinn
yfir i-ið.
Framhald af forsíðu
Fatahönnuðurinn Guðmundur
Jörundsson þarf ekki langan
tíma til að líta út eins og breskur
aðalsmaður.
Guðmundur Jörundsson, fatahönn-
uður og starfsmaður í Herrafata-
verslun Kormáks og Skjaldar, er
snyrtimennskan uppmálið og þykir
ávallt vera óaðfinnanlega til fara,
minnir stundum eilítið á breskan
lávarð. Inntur út í hvort aðeins tíu
mínútur dygðu til að dressa sig upp
fyrir kvöldið er hann ekki lengi til
svars. „Ég myndi líklegast greiða
mér, fara í fallega skyrtu og setja
upp hálstau,“ svarar hann hress
í bragði og bætir við eftir stutta
umhugsun: „Svo fengi ég mér eitt
skot af Prins Póló og svo annað af
Supertramp. Þá er G. Jör mættur
á svæðið,“ segir hann og telur ekki
meira þurfa til að líta vel út áður
en haldið er út á lífið. - rve
Flott hár og
hálstau gera
gæfumuninn
Ótrúlegt en satt þá þarf Guðmundur
aðeins fáeinar mínútur til að líta út eins
og fyrirsæta úr tískublaði. FRÉTTBLAÐIÐ/VALLI