Fréttablaðið - 11.11.2010, Qupperneq 38
11. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGUR
Körfur með ostum og kexi
koma sér ávallt vel og laða
fram vatn í munn. Því eru þær
meðal vinsælustu jólagjafa.
Ostahúsið sem nú heitir reynd-
ar Í einum grænum – Ostahús-
ið hefur verið leiðandi fyrir-
tæki í gerð ostakarfa um árin.
María Ólafsdóttir er sölustjóri.
„Við komum alltaf með ákveðn-
ar tegundir af ostum fyrir jólin.
Það höfum við gert í mörg ár. Við
fáum nýjar tegundir af brie, til
dæmis brie með piparrönd og jóla-
ostinn góða sem er ostarúlla með
villijurtum og púrtvíni. Hann er
mjög vinsæll yfir hátíðina, meðal
annars í rjúpna- og hreindýrasós-
ur. Svo erum við með einn glænýj-
an með rommrúsínum og ristuð-
um möndlum. Hann er sætur og
góður. Alger nammiostur,“ segir
María Ólafsdóttir sölustjóri bros-
andi, innt eftir nýjungum í Osta-
húsinu.
María segir ostakörfurnar fast-
an punkt í starfsemi fyrirtækisins
og sérstök áhersla sé á þær fyrir
jólin. „Grunnurinn í körfunum
er ostar, kex og sulta en eftir því
sem körfurnar stækka eykst fjöl-
breytnin. Við erum þar með graf-
lax eða reyktan lax, salami og
síðan förum við yfir í hamborgar-
hrygg, parísarkartöflur – tilbúnar
til að brúna – tómata og allt mögu-
legt,“ lýsir hún.
Ostahúsið var stofnað 1992 og
var lengi vel við Strandgötuna í
Hafnarfirði. „Við erum búin að
vera með ostakörfur frá byrjun
og auðvitað langmest fyrir jólin,“
segir María. „Svo árið 2006 sam-
einuðumst við fyrirtækinu Í
einum grænum og fórum að vinna
líka með grænmeti. Þá breytt-
ist nafn fyrirtækisins í Í einum
grænum – Ostahúsið.“
Framleiðslan er óbreytt í osta-
hluta fyrirtækisins hvað varðar
hinar sívinsælu vörur, brie með
rönd, ostarúllurnar, rjómaost-
ana og rifinn ost, að sögn Maríu.
„Ostakörfur og stóra brie búum
við til eftir pöntunum og græn-
metishlutinn er viðbót,“ segir
hún. „Það sem hefur breyst er að
Ostahúsið er ekki smásöluverslun
lengur, heldur seljum við í búðir
og svo beint til fyrirtækja.“
Grænmetisbuff, gratín og for-
soðnar kartöflur eru meðal þess
sem framleitt er í fyrirtækinu.
„Þetta er samtvinnað,“ segir
María. „Sumt af grænmetinu
nýtist okkur í körfurnar þegar
um er að ræða matarkörfur, til
dæmis litlir tómatar og forsoðnu
parísarkartöflurnar. Sumir óska
eftir að hafa líka vín í körfunum
en langmest er um hefðbundn-
ar ostakörfur. Minnstu körfurn-
ar eru þær sem eru í verslunum.
Þar er ostur, kex og sulta. En þær
sem eru sérpantaðar fyrir fyr-
irtæki eru fylltar í samráði við
þann sem pantar. Við erum með
heimasíðu www.ostahusid.is. Þar
getur fólk glöggvað sig á hvað er
í boði og í framhaldinu valið það
sem það vill.“
Fjölbreytnin eykst eftir
því sem körfurnar stækka
„Grunnurinn í körfunum er ostar, kex og sulta, segir María sem bætir hinum ýmsu matartegundum við og jafnvel víni ef óskað er.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gjafaöskjur í tveimur stærðum, með ostum og öðru
góðmeti, er ein af nýjungum Ostahússins fyrir jólin í
ár. Þær eru með glugga í lokinu sem hægt er að gægj-
ast inn um og forvitnast um innihaldið.
„Svona öskjur eru heppilegar fyrir fjölmenn fyrir-
tæki sem kaupa gjafir fyrir sitt starfsfólk. Þetta er
útfærsla sem ég er viss um að hentar mörgum því það
er mun auðveldara að geyma öskjurnar en körfur,“
segir María Ólafsdóttir sölustjóri. Hún bendir líka
á að öskjurnar séu mun handhægari í afgreiðslu en
körfur því hægt sé að stafla þeim á bretti ef því sé
að skipta. Að því leyti líkist þær konfektkössum.
En hvert er innihaldið? „Innihaldið er það sama og
í ákveðnum stærðum af ostakörfum. Það geta verið
fimm til sex ostar, kex og sulta. Við getum boðið upp
á vín í stærri tegundinni af öskjunum líka. Þetta er
bara nýbreytni í pökkun.“
Öskjur með ýmsu góðmeti
Girnilegum ostum og öðru fíneríi raðað í öskju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is s. 512 5439 og Ruth Bergsdóttir ruth@365.is s. 512 5469.