Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 39
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Í Smáralind geta allir fundið
eitthvað sem þá langar í. Því er
gjafakort Smáralindar hentug
gjöf til starfsmanna fyrirtækja.
„Við byrjuðum með rafræn gjafa-
kort árið 2002 en þá urðu kortin
eins og debetkort bæði í útliti og
notkun,“ segir Lovísa Anna Pálma-
dóttir, verkefnastjóri markaðs-
deildar Smáralindar.
Gjafakortin hafa alla tíð síðan
notið mikilla vinsælda bæði meðal
einstaklinga og fyrirtækja. „Kort-
in eru vinsælar gjafir við hin ýmsu
tækifæri en í kringum hátíðir eins
og jólahátíðina sem nú fer að hönd-
um eru þau sérstaklega vinsæl
meðal fyrirtækja,“ segir Lovísa en
meirihluti kortanna sem keypt eru
fyrir jólin panta fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum.
Innt eftir algengustu upphæð-
unum svarar Lovísa að það sé frá
20 til 50 þúsund krónum. „En að
sjálfsögðu sjáum við líka hærri og
lægri upphæðir, það er misjafnt
eftir fyrirtækjum.“
Smáralind hefur fastan kúnna-
hóp sem kaupir kort fyrir hver jól
enda segir Lovísa kortin mælast
sérlega vel fyrir hjá starfsmönnum
fyrirtækja. „Ég fékk einmitt sím-
hringingu frá manni um daginn
sem sagði að besta jólagjöfin sem
hann hefði fengið sem starfsmað-
ur væri gjafakort í Smáralind. Nú
væri hann í þeirri stöðu að þurfa að
kaupa jólagjafir handa starfsmönn-
um og Smáralind var fyrsta símtal-
ið,“ segir Lovísa glaðlega og bend-
ir á að í Smáralind sé enda hægt að
fá eitthvað fyrir alla, sama
fyrir hvaða aldur.
„Ég held að enginn geti
verið óánægður með svona
gjöf enda geta allir fundið
eitthvað við sitt hæfi, eða
jafnvel notað kortið til að
kaupa í jólamatinn,“ segir
Lovísa og telur að nú vilji
menn gefa eitthvað sem
komi sér vel fyrir starfs-
fólkið.
Fyrir þessi jól býður
Smáralind nýja þjónustu
sem er fyrirtækjum að kostn-
aðarlausu. „Það er að sérmerkja
gjafakortin með kveðju eða logói
fyrirtækisins. Svo bjóðum við upp
á tvenns konar gjafaöskjur,
annars vegar kort sem nýt-
ist þá líka sem jólakort eða
fallega gjafaöskju,“ upplýs-
ir Lovísa en afgreiðslutími
kortanna er að sögn henn-
ar einnig skjótur og því lítið
fyrir þessu haft.
Gjafakort Smáralindar-
innar virka í öllum versl-
unum en ekki í söluvögnum
eða í Vínbúðinni. Hægt er að
kaupa kortin hjá þjónustuborði
Smáralindar eða í gegnum netið á
www.smaralind.is.
Allir ánægðir með gjafakort
Lovísa Anna Pálmadóttir verkefnastjóri með hið vinsæla gjafakort Smáralindar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jólaævintýri Smáralindar heitir að
þessu sinni „Leitin að jólaandan-
um“.
Sögumaður er Örn Árnason
sem tekur einnig lagið með
börnunum.
Edda Björg-
vinsdóttir
leikur konu
jólasveins-
ins en á svið-
inu verða einnig
tveir galvask-
ir jólasveinar sem
munu með hjálp áhorf-
enda leita að jólaandanum.
Komast þau síðan að því að
jólaandann er ekki að finna
á neinum einum stað heldur
kemur hann að innan þegar
fólk gefur af sér, til dæmis
þegar það óskar öðru fólki
gleðilegra jóla.
Selma Björnsdótt-
ir kemur einnig að
uppsetningunni en
hún mun syngja fyrir
og eftir leikritið og ná
upp stemningu.
Öl l fjölskylda n
getur haft gaman af en
gaman er að geta þess
að jólaleikritið er sýnt
fyrir opnum tjöldum
og því aðgangur alveg
ókeypis.
Jólaævintýri í
Vetrargarðinum
● GÓÐAR HUGMYNDIR
Jólagjafahandbók Smáralindar
kemur út 25. nóvember. Þar er
hægt að fá yfirlit yfir það helsta
sem er í boði í verslunarmið-
stöðinni og fá góðar hugmyndir
að jólagjöfum.
Handbókin er rúmlega 160
síður af hugmyndum fyrir hann,
hana, þau, barnið og ungling-
inn.
DAGSKRÁ:
4. des. – kl. 14.00
5. des. – kl. 14.00
11. des. – kl. 14.00
12. des. – kl. 14.00
18. des. – kl. 14.00
19. des. – kl. 14.00
21. – 23. des. kl. 17.00
GJAFA
KORT
Við
sérmerkjum
gjafakortið þínu
fyrirtæki!
Rafræna gjafakortið
í Smáralind, pakkað í
fallega öskju, er frábær
gjöf til starfsmanna og
viðskiptavina.
Gefðu gjöf sem hittir
í mark!
Verslanir opnar: mán-mið 11-19, fim 11-21, fös 11-19, lau 11-18 og sun 13-18,
www.smaralind.is / 528 8000