Fréttablaðið - 11.11.2010, Qupperneq 40
11. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r
●LEYNIVINIR Á AÐVENTUNNI Til að létta andrúmsloftið á vinnu-
staðnum í svartasta skammdeginu er sniðugt að koma upp leynivinakerfi
eða leynijólasveinum. Leynivinur hefur það hlutverk að gauka smágjöf-
um eða litlum orðsendingum að vinnufélaga sínum alla aðventuna til að
gleðja hann. Glaðningurinn þarf ekki að vera dýr eða stór, góður súkkul-
aðimoli sem bíður á borðinu eða falleg orðsending er allt sem þarf.
Nöfn allra starfsmanna eru skrifuð á miða og svo dregur hver og einn
úr hattinum nafn eins vinnufélaga sem hann á að gleðja. Rétt
er að sammælast um grundvallarreglur, svo sem
verð og umfang gjafanna, svo enginn gangi of
langt. Enginn veit hver á hvaða leynivin og geta
spunnist skemmtilegar umræður um leynivina-
gjafirnar við kaffivélina.
Jólagjafir fyrirtækja og
stofnana til starfsmanna sinna
hafa á síðustu áratugum færst
smám saman í vöxt og í dag
eru slíkar gjafir orðnar nær
algildar. Í byrjun voru gjafirnar
gjarnan ávextir eða sælgæti
og sérstaklega veglegar gjafir
innihéldu bækur.
Í föstum dálki Alþýðublaðsins árið
1964, Hannesi á horninu, sem Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson, frétta-
stjóri á blaðinu, skrifaði meðal
annars, gefur að líta ein fyrstu
blaðaskrif um gjafir fyrirtækja til
starfsmanna. Jólagjafir höfðu þá
tíðkast í einhvern tíma og að sögn
blaðsins heldur færst í vöxt síðustu
árin þar á undan, þótt gjafir væru
þá alls ekki orðnar að viðtekinni
venju.
Jólagjaf-
irnar sem taldar eru upp sem al-
gengar gjafir eru meðal ann-
ars ávextir, vindlar, sælgæti og
bækur enda var kassi
af eplum og appelsín-
um gulls ígildi. Hann-
es á horninu er hins
vegar ekki alls kost-
ar ánægður með það
uppátæki fyrirtækja
að gefa áfengi því
þótt margir kunni vel
með vín að fara kunni
aðrir það ekki. Allt of
oft „stafar geigvæn-
leg hætta af því“
er skrifað í dálk-
inum og bend-
ir höfundur jafn-
framt á að mikið úrval sé til af
góðum bókum.
Þrjátíu árum síðar, árið 1994,
birtir Frjáls verslun úttekt á
ýmsu sem fyrirtæki og stofnanir
taka upp á í aðdraganda jóla, allt
frá jólaböllum og upp í jólagjafir.
Samkvæmt þeim skrifum eru fyr-
irtækjagjafir ekki heldur orðnar
að staðlaðri venju og mörg fyrir-
tæki láta duga að senda hverjum
og einum starfsmanni persónu-
legt jólakort enda er gildi þeirra
„meira en margan grunar“ að
sögn blaðsins. Þau fyrirtæki sem
gengu lengra á þessum tíma
en að gefa jólakort gáfu
þá til að mynda konfekt-
kassa, bók, leikhúsmiða
eða vínflösku – þrátt
fyrir fortölur Hannesar
á horninu nokkrum ára-
tugum fyrr. Í greininni
er mælt með jólagjöfum
til starfsmanna og sagt
að smáglaðningur til
starfsmanna í jólamán-
uðinum skili sér til baka
„í bættum vinnuanda –
og þá er mikið fengið“.
- jma
Ávextir, sælgæti og bæk-
ur en helst ekki áfengi
Ávextir voru lengi vel munaðarvara sem aðeins fékkst fyrir jólin á Íslandi. Hér er íslensk skólastofa árið 1973 þar sem kennari
færir börnum epli á bakka. Sum fyrirtæki gáfu starfsfólki sínu epli og appelsínur fyrir jólin á áratugum áður.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/365
Fyrirtækjagjafir eru
margbreytilegar í dag en
bækur voru með veglegri
fyrirtækjagöfum fyrir
góðærið.
Vin-
sælt var að
gefa starfsmönn-
um vindla í jólagjöf.
Sælgæti, svo sem konfekt, hefur gjarnan
fylgt í jólapökkum til starfsmanna.
Góðar gjafir sérhæfa sig í
jólagjöfum til starfsmanna
og viðskiptavina fyrirtækja.
Fyrirtækið leggur áherslu á
íslenskt góðgæti og íslenska
hönnun.
Við styðjum Fjölskylduhjálp Íslands.
Sjá nánar á godargjafir.is
Z
E
B
R
A
gjafir
góðar
00000
dfgs
● HVAÐ ÞAÐ VERÐUR
VEIT NÚ ENGINN...
Í hinu sígilda
jólalagi Bráð-
um koma
blessuð jólin
eru góðar
gjafir nefnd-
ar í fyrsta er-
indinu. Það
er að segja
kerti og spil.
Hvað er þjóðlegra og
þarfara en einmitt
þetta tvennt? Kerti til
að lýsa upp myrkrið
í skammdeginu
og spil til að stytta
sér stundir við. Al-
gerlega sígild jóla-
gjöf sem ávallt hitt-
ir í mark.