Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 42

Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 42
 11. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r Hver er besta/nytsamlegasta fyrirtækjajólagjöfin sem þú hefur fengið? „Það mun vera Tivoli-útvarp sem ég fékk frá Skjá einum á sínum tíma.“ Hver er versta fyrirtækjagjöfin? (ef einhver) „Ætli það sé ekki konfektkassi sem gleymdist og rann út og endaði í ruslinu. Mér finnst konfekt ekkert gott.“ Hver er draumagjöfin? „Ég væri alveg til í gjafakort í dekur.“ Þórunn Högnadóttir stílisti og blaðamaður á Birtíngi. Langar í dekur Hver er besta/nytsamlegasta fyrirtækjajólagjöfin sem þú hefur fengið? „Langnytsamlegasta gjöfin hefur alltaf verið gjafakort í Kringluna upp á 10.000 krónur. Það hefur alltaf verið notað í Bónus. Ein jólin fékk ég svo flísteppi sem mér fannst ansi snaut- legt. En það átti svo eftir að verða eitt af stofustássunum.“ Hver er versta fyrirtækjagjöfin? (ef einhver) „Ég man svei mér þá ekki eftir neinu. Maður er alltaf svo glaður þegar einhver gefur manni eitthvað og tekur bara það sem að manni er rétt.“ Hver er draumagjöfin? „Ég væri bara til í að fá nóg af súkku- laði. Fimm kíló af Toblerone í einu stykki til dæmis. Ég hef séð svona kvikindi, líklega metri á lengd.“ Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarblaðamaður á Morgunblaðinu. Gjafakort í Kringluna kemur sér best BESTA OG VERSTA GJÖFIN Hver er besta/nytsamlegasta fyrirtækjajólagjöfin sem þú hefur fengið? „Canada Goose dúnúlpa sem ég fékk fyrir mörgum árum og er enn að nota. Æðisleg flík í vetrarkulda.“ Hver er versta fyrirtækjagjöfin? „Árið 1999 var ég að vinna á DV. Þá fengu starfsmenn sérhannað glas sem merkt var árinu 2000. Enginn vissi hvað hann átti að gera við eitt stakt glas á ljótum fæti sem passaði hvergi inn. Þetta var mjög misheppnuð jólagjöf og starfs- menn almennt svekktir yfir valinu.“ Hver er draumagjöfin? „Kaffi, konfekt og annað sem hægt er að borða fellur alltaf vel í kramið. Annars finnst mér að fyrirtæki ættu bara að gefa starfsmönnum sínum ávísun eða gjafakort í stað þess að eyða tíma og peningum í misvel heppnaðar jólagjafir.“ Snæfríður Ingadóttir rithöfundur og umsjónarmaður Ferðapressunnar á Pressan.is. Dúnúlpa hitti beint í mark ● GAMAN SAMAN Erfitt getur verið fyrir eigend- ur fyrirtækja að finna gjöf sem höfðar til allra á vinnustaðn- um. Vandamálið er ekki eins óyfirstíganlegt þar sem starfs- menn eru fáir. En veraldlegir hlutir eru oft ekki nauðsynleg- ir til að gleðja starfsmenn og þakka vel unnin störf á árinu. Til dæmis mætti brydda upp á skemmtilegum uppákom- um í hádeginu á aðventunni til að gleðja starfsfólk. Lítið mál er að ljósrita jólalagatexta og fá einhvern sem kann vinnu- konugripin á gítar til að spila undir fjöldasöng eftir mat- inn. Eins er skemmtilegt ef forstjórinn dreifir mand- arínum á borð starfsmanna með jólahúfu á höfði eða þá smalar öllum út í göngutúr þegar veðr- ið er gott til að skoða jólaskreyt- ingar í gluggum. Þá er alltaf vinsælt að bjóða upp á eitt- hvað gott með kaffinu eins og hnausþykkan súkkulaðimola. TÍVÓLÍ-TÆKI OG PLAYSTATION 3 Á góðærisárinu mikla 2007 voru Tívolí-útvörp vinsæl jólagjöf en fjög- ur fyrirtæki sem Fréttablaðið skoðaði eftir jólin 2007 gáfu starfsmönnum sínum Tív- olí-útvörp. Starfsmenn EJS, Glitnis, Símans og Vodafone fengu allir slík útvörp í jóla- pakkann. Tívolí-tækin kostuðu þá um tut- tugu þúsund krónur út úr verslun. Meðal annarra fyrirtækja sem blað- ið skoðaði má nefna tölvufyrirtæk- ið CCP sem framleiðir leikinn EVE On- line. Starfsmenn þess fyrirtækis fengu Playstation 3 tölvu upp úr jólapakkan- um það árið, en tölvan kostaði þá um 40 þúsund krónur út úr verslun. Starfs- menn CCP voru um þrjú hundruð talsins um jólin 2007. Vantar þig jólagjöf handa starfsfólkinu? Til að auðvelda þér valið langar okkur að benda þér á Gjafakort Arion banka, gjafa kort sem hægt er að nota við kaup á vöru og þjón ustu hvar sem er. Þú velur upp hæð ina en starfs- maður inn velur hvað hann kaupir. Þú færð gjafakortið í fallegum umbúðum í næsta útibúi Arion banka. Gjafakortið er án endurgjalds ef keypt eru fimm eða fleiri kort. arionbanki.is/gjafakort

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.