Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 43
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Veisluþjónustan Kokkarnir
býður upp á staðlaðar og
sérsniðnar gjafavörur, sem
eru tilvaldar til að gleðja ýmist
viðskiptavini, starfsfólk eða
sína nánustu. Rúnar Gíslason
eigandi veit allt um málið.
„Við kappkostum að bjóða upp á úr-
valsvöru sem við útbúum að okkar
hætti og er því ekki endilega hægt
að nálgast svo glatt annars staðar,
svo sem valhnetuhunang, pipar-
rótarsósu, villibráðarpaté og aðra
sælkeravöru í bland við gæðaosta,
kjöt og kex,“ segir Rúnar Gíslason,
eigandi veisluþjónustunnar Kokk-
arnir, um gjafakörfur sem fyrir-
tækið hefur boðið upp á frá 2003.
Kokkarnir selja bæði samsettar
og sérvaldar gjafakörfur og fæst
hvort tveggja í nokkrum stærðum.
„Við bjóðum upp á þrettán tilbún-
ar útgáfur í mismunandi stærðar-
og verðflokkum, á allt frá 2.990
krónum og upp í 14.990 krónur,
eftir því hvað fólk sækist eftir
miklum lúxus, sem getur farið
upp í hamborgarhrygg, pylsur, foie
gras, hágæða súkkulaði og blínis
með laxi og þess háttar munúðar-
vöru,“ segir Rúnar og getur þess
að körfur í millistærð séu þó einna
vinsælastar.
„Þær innhalda osta eins og
Camembert, piparost, Dalabrie,
Höfðingja, líka ítalska bruschettu
með papriku, spænska hráskinku,
jarðarberjasultu, rifsberjasultu
og kex,“ telur hann upp og bætir
við að miðað við innihald sé
karfan seld á sanngjörnu
verði, eða á 5.990 krónur.
„Hvað sérvöldu körfun-
um viðvíkur, þá er algengt
að fólk geri kröfu um að
þær uppfylli ákveðnar verð-
hugmyndir. Síðan getur það valið
af handahófi vörur frá okkur sem
sumar hverjar er hægt að skoða
á heimasíðunni okkar, kokkarnir.
is, og við getum veitt ráðgjöf við
valið. Sá listi er þó engan veginn
tæmandi og hreinlega hægt að
spyrjast betur fyrir út í úrvalið
með því að hafa samband í síma
511 4466, senda tölvupóst á kokk-
arnir@kokkarnir.is eða heimsækja
okkur í osta- og sælkeraborðið í
Hagkaupum í Kringlunni,“ útskýr-
ir Rúnar.
Hráskinka, ostar og aðrar
kræsingar í sælkerapakka
Boðið er upp á samsettar gjafakörfur og körfur að eigin vali hjá Kokkunum að sögn framkvæmdastjórans Rúnars Gíslasonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kokkarnir sérhæfa sig í alhliða
veisluþjónustu, allt frá litlum
brauðveislum upp í margrétta stór-
veislur bæði með og án þjónustu að
sögn eigandans Rúnars Gíslasonar.
Hann getur þess að einna mest sé
að gera í jólahlaðborðum um þess-
ar mundir.
„Við erum í síauknum mæli að
þjónusta fyrirtæki og hópa sem
taka sig saman í tengslum við
haustfagnaði, jólahlaðborð og árs-
hátíðir,“ segir hann og getur þess
að í tilfelli jólahlaðborða sé nú
hægt að velja um fimm matseðla.
„Þeir samanstanda allir af köld-
um forréttum, heitum aðalréttum
og eftirréttum og svo er hæglega
hægt að komast að samkomulagi
um að víxla réttum milli matseðla
sé þess óskað. Sem dæmi er hægt
að panta forrétti af matseðli eitt,
aðalrétt af númer tvö og eftirrétti
af matseðli fjögur og þar fram
eftir götum,“ bendir hann á og
bætir við að matseðlana sé hægt
að nálgast á heimasíðunni kokk-
arnir.is.
Rúnar tekur fram að auk þjón-
ustu útvegi Kokkarnir borðbún-
að, taki við honum óhreinum og
geti útvegað veislustjóra og jafn-
vel skemmtikrafta ef út í það er
farið. „Við erum líka með sali
sem við sendum veitingar í, Fóst-
bræðrasalinn að Langholtsvegi,
sem tekur frá 50-120 manns í sæti
og allt að 300 manns standandi, og
svo nýjan sal á 7. hæð í Cabin Hót-
elinu í Borgartúni sem við leigjum
út með veitingum.“
Alhliða veisluþjónusta
Hægt er að velja um nokkrar gerðir matseðla í tengslum við jólahlaðborð og víxla
réttum milli matseðla sé þess óskað.