Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 45

Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 45
FIMMTUDAGUR 11. nóvember 2010 5 Tískuhús koma og hverfa stundum eins og dögg fyrir sólu. Önnur lifa sína gullöld en hverfa svo smám saman af yfirborði jarðar. En í tískuheiminum þekkist það sömuleiðis að eiga sér glæsilega endurkomu og annað líf. Carven er gott dæmi um hátískuhús sem mátti muna sinn fífil fegri en Madame Carven vildi ekki setja sköpunarverk sitt í hendurnar á einhverjum öðrum þegar hún hætti en þetta tískuhús hefur nú í nokkur misseri verið endurlífgað með góðum árangri. Dior er einn- ig gott dæmi um endurkomu. Í byrjun tuttugustu aldar var Jeanne Lanvin einn fínasti hönnuður samtímans í hátísk- unni í París og braut blað í kvenfatnaði til dæmis með hinu fræga jersey-efni í buxum og kjólum. Hún var einnig ein sú fyrsta í þessum geira að blanda ilmvatn með sínu nafni. Með árunum dofn- aði þó yfir Lanvin og má segja að ekki hafi lengur staðið steinn yfir steini hjá Lanvin þegar Alber Elbaz tók við hönnuninni fyrir nokkrum árum. Síðan hefur leiðin legið upp á við hjá Lanvin og þykir fátt fínna síðustu ár en hönnun Albers Elbaz en nú heldur Lanvin inn- reið sína á Ítalíu og opnar í Míl- anó og Róm. Það þarf því ekki að koma á óvart að í ár er Alber Elbaz í gestahlutverki hjá verslunar- keðjunni H&M og 23. nóvem- ber kemur á markaðinn tísku lína Lanvin hjá H&M. Alber Elbaz fylgir þar í fótspor Karls Lager- feld, Stellu McCartney og Jimmy Choo svo einhverjir séu nefnd- ir. Það er því líklegt að það verði líflegt í verslunum H&M á næst- unni því kjólarnir eru svo sann- arlega áhugaverðir. Þeir bera að sjálfsögðu sérkenni bæði tískuhúss Lanvin og stjórnand- ans, Albers Elbez. Til dæmis má nefna stórrósótta kjóla í svörtu og rauðu, með fellingum að ofan og neðan. Svo eru það stórglæsi- legir svartir kvöldkjólar með púff ermum og slaufum og ekki má heldur gleyma herrajakka- fötunum, smókingskyrtum og blazer-jökkum. Öll herlegheitin á afskaplega hóflegu verði sem aðeins er brot af því sem flík frá Lanvin kostar. Flestir kjólarnir eru á um 150 evrur en finnast þó á 100 evrur. Hjá Lanvin getur byrjunarverðið hæg- lega verið um 2.000-3.000 evrur. Á síðasta ári þurfti að girða af inngang versl- ana H&M sem og sölusvæð- ið þegar fylgihlutir Jimmy Choo komu í verslanir H&M í fyrra og viðskiptavinirnir til- búnir til að láta hendur skipta. Líklegt að sama verði uppi á teningnum að þessu sinni því hver vill ekki lítinn svartan kjól frá Alber Elbez fyrir jólin og það á gjafverði? bergb75@free.fr Gestaleikari í aðalhlutverki ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París Gaultier og Star- dust í eina sæng JEAN PAUL GAULTIER LEITAÐI Á NÁÐIR ZIGGY STARDUST FYRIR VOR- OG SUMARLÍNU SÍNA, EN LÍNAN VAR ÁBERANDI LÍK HUGARBURÐI DAVIDS BOWIE. Allt það sem Jean Paul Gaulti- er kemur að er fyrirfram vitað að verður einstakt og jafnvel skrít- ið. Á tískusýningu hans á haust- dögum var engin breyting þar á og sló hann upp heljarinnar partíi á tískupöllum Parísarborgar. Hönn- un Gaultiers minnti um margt á gleðskap í byrjun áttunda áratug- arins með Ziggy Stardust í farar- broddi fyrirsætnanna, sem báru úfna hanakamba í stíl við litskrúð- ug föt. Stór og skemmtileg munst- ur prýddu föt Gaultiers auk áber- andi litasamsetningar og oft á tíðum óvenjulegrar samsetning- ar.                              !   "#  $ %&   ' '     && !    $        !        ()  !  * '  +   ! * '  ,  ! -*$   $  $ (.$/) 0 $  1$  $ (,$/) 100 litir af leðurhönskum Opið mán.–fös. kl. 11-18 • lau. kl. 10–16 Sendum í póstkröfu um allt land. Það er aðeins ein alvöru hanskabúð og hún er á Laugaveginum við hliðina á Bónus. parið Laugavegur 55 Sími 551 -10 40 vertu vinur á facebook Flottar yfirhafnir fyrir flottar konur Nokkrar gerðir - nokkrir litir Stærðir 40-58

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.