Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 50
11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR34
HÚSNÆÐI
Húsnæði í boði
GÓÐ GISTING Í
MIÐBÆNUM
Dags, viku og mánaðarleiga.
GISTIHÚSIÐ EGILSBORG sími
896 4661
STAY APARTMENTS -
VIKULEIGA
Vikuleiga á vönduðum stúdíó íbúðum
og stærri íbúðum í 105 Rvk. Studio
íbúðir frá 25.000 kr. 2ja-3ja. herb. frá
30.000 kr. www.stay.is s: 517 4050.
3 herb. 92fm kj. íbúð í raðhúsi í
Seljahverfi (109) verð 120.000, laus
strax. s: 691-4242.
Leigjendur, takið eftir!
Þið eruð skrefi á undan í leit að réttu
íbúðinni með hjálp Leigulistans. Kíktu
inn á www.leigulistinn.is eða hafðu
samb. við okkur í s. 511 1600.
Nýleg 26m2 studióíbúð miðsvæð-
is í Hafnarfirði „Flatarhrauni“ við
Iðnskólann. Eldhúskrókur og baðher-
bergi í íbúð, húsaleigubætur fást á
þessa íbúð. Sameiginlegt þvottahús
á hæðinni m. þvottavél og þurrkara!!
Upplýsingar í s:699-5595 milli 16:00
og 18:00
Til leigu lítil falleg 3herb íbúðí tvíbíli í
rólegu hverfi í hafnarfirði (norðurbæ).
Hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldu-
fólk. Aðeins traust og reglusamt fólk
kemur til greina. Uppl. s: 899-6699.
Til leigu 4. herb. 97,6 fm íbúð í Hraunbæ
á 2. hæð. Laus strax. Umsóknir sendist
á sigurros@isloft.is
Norðlingaholt Til leigu 96 fm 3 herb
íbúð á jarðhæð m/ geymslu og stæði.
Laus strax. S: 892 0669 / 554 6555
Herb. miðb. rvk, húsg. fylgja. Verð 40
þús. S. 895 0482 eftir kl. 16.
Húsnæði óskast
Vantar 3 - 4 herb. íbúð á svæði
109,108,104 eða 103. Öruggar greiðslur
í boði. S. 868 5171.
Sumarbústaðir
Til leigu vel búnir 2-4 manna bústaðir,
55 km. frá Rvk. Heitur pottur. S. 663
2712.
Geymsluhúsnæði
Geymi tjaldvagna,
fellihýsi ofl.
Ímynd gæða. Fjögurra stjörnu.
13 ára reynsla.
Í símaskrá ja.is undir;
geymsla asgeirs eirikssonar ehf.
Upplýsingar 897 1731
klettar@heimsnet.is
Geymsluhús.is
Innri Njarðvík, hjólhýsi, fellihýsi, tjald-
vagnar, bílar ofl. ATH! Upphitað, gott
verð!! Uppl. í síma 770-5144.
Geymsluhúsnæðið
Auðnum II, 190 Vogar.
Tjaldvagnar, fellihýsi, bílar, bátar, mótor-
hjól ofl. Uppl. í s. 864 3176.
www.geymslaeitt.is
Sér geymslur frá 5 til 17 m2. Lágt verð.
Opið 8-22. Búslóðir, lagerar, bókhald,
iðnaðarmenn. Upphitað og vaktað. S:
564-6500
geymslur.com
Geymslur frá 3990.- kr á mán.
Í Garðabæ (hjá Ikea) og Reykjavík
(Fiskislóð) Upphitað, vaktað & öryggis-
myndavélar. S. 555 3464.
Gisting
Gisting Akureyri - Gista.is. Íbúðir í
göngufæri við miðbæ. Lín og þráðlaust
net. S. 694-4314.
ATVINNA
Atvinna í boði
Auka eða Aðalvinna
Vantar fólk til vinnu á veitingahúsi
105,108. Rvk vinnutími 12-16 eða 18-22.
Íslensku kunnátta skilyrði. 896 3536.
Vantar þig aukavinnu eða aðalvinnu.
Okkur vantar fólk á norðurlandi til mark-
aðs og sölustarfa. Uppl. í s. 894 0339.
Atvinna óskast
Viltu gefa stutt vídeó um fjölskylduna í
jólagjöf? Geri tilboð. Sími 891 7074.
Get bætt við mig verkefnum í texta-
skrifum; persónuleg jólabréf, þýðingar
og greinargerðir. Smekkleg uppsetning,
skemmtilegur texti. 891 7074.
TILKYNNINGAR
Tilkynningar
Einkamál
Spjalldömur 908 5500
Hæ strákar hringið í okkur.
Opið þegar ykkur langar.
Atvinna
www.ferdamalastofa. is
Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Styrkir til úrbóta
á ferðamannastöðum
Ferðamálastofa byggir umhverfisstefnu sína á sjálfbærri og ábyrgri ferðamennsku enda er náttúra Íslands sú auðlind
sem ferðaþjónustan á Íslandi byggir á til framtíðar. Mikilvægt er að byggja upp innviði sem geta tekið á móti vaxandi
fjölda ferðamanna, tryggt öryggi þeirra eftir bestu getu og boðið upp á nauðsynlega þjónustu. Jafnframt þarf að gæta
þess að allar áætlanir og framkvæmdir á ferðamannastöðum séu byggðar á vandaðri greiningu og rannsóknum og
unnar af mikilli varkárni og virðingu fyrir viðkvæmri náttúru Íslands og sögu. Hönnuðir og skipuleggjendur ferðamanna-
staða þurfa því að hafa næmt auga fyrir því hvort, og þá hvar og hvernig, mannvirkjum er valinn staður þannig að þau
skerði ekki ásýnd hans en ýti fremur undir sérstöðu staðarins og þá upplifun sem ferðamaðurinn sækist eftir.
Ferðamálastofa auglýsir styrki til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2011. Sérstök áhersla verður lögð á
öryggismál á ferðamannastöðum, verkefni þar sem heildrænt skipulag og langtímamarkmið eru höfð að leiðar-
ljósi og aðgengi fyrir alla.
UMSÓKNARFRESTUR:
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2010. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.
1. STYRKIR TIL SMÆRRI VERKEFNA:
Veittir verða styrkir til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum. Hámarksupphæð hvers styrks verður 500
þúsund krónur og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði, áætlanagerð og/eða hönnun. Ekki er veittur styrkur fyrir
eldsneyti, fæðiskostnaði eða vinnuframlagi við framkvæmdir.
2. STYRKIR TIL STÆRRI VERKEFNA:
Veittir verða styrkir til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum og uppbyggingar á nýjum svæðum fyrir
ferðamenn. Styrkupphæð getur að hámarki orðið 50% af kostnaðaráætlun, þó aldrei hærri en 10 milljónir. Hægt
verður að áfangaskipta verkefnum og styrkveitingu í 3-5 áfanga á jafnmörgum árum. Hægt er að sækja um styrki
fyrir áætlanagerð og/eða hönnunarvinnu ásamt undirbúningsrannsóknum.
Við skipulag og hönnun mannvirkja er höfð til hliðsjónar „Menningarstefna í mannvirkjagerð“ sem gefin var út af
Menntamálaráðuneytinu í apríl 2007 og skipulagslög nr. 123/2010. Ef sótt er um styrk fyrir byggingu mannvirkja
eða aðrar framkvæmdir verður skipulag, fullnaðarhönnun og framkvæmdaleyfi að liggja fyrir. Styrkþegi er
ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi og rekstri svæðis og mannvirkja er tengjast viðkomandi verkefni eftir að
framkvæmdum lýkur (sjá nánari leiðbeiningar).
ALLAR UMSÓKNIR SKULU INNIHALDA:
a. Hnitmiðaða en vandaða verkefnislýsingu sem lýsir hugmyndinni
með rökstuddum og skýrum hætti
b. Kostnaðar- og verkáætlun
c. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda
vegna verkefnisins
d. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við,
og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa
e. Skriflegt samþykki allra landeigenda og húsráðenda
Ath! Nánari leiðbeiningar og umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is.
HVERJIR GETA SÓTT UM:
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Við
úthlutun verður m.a. tekið mið af ástandi og álagi á svæði, og mikilvægi aðgerðanna út frá náttúruverndar -
sjónarmiðum. Einnig verður tekið tillit til þess hvort viðkomandi verkefni nýtur þegar fjárstuðnings opinberra aðila.
Ekki verður sérstaklega litið til dreifingar verkefna eftir landshlutum.
HVAR BER AÐ SÆKJA UM:
Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is. Þar eru jafnframt leiðbeining -
ar um hvernig skal sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason, umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5500 eða með
vefpósti, sveinn@icetourist.is.
Ferðamálastofa starfar samkvæmt lögum nr. 73/2005 um skipulag ferðamála. Helstu verkefni stofnunarinnar eru
einkum: 1. Útgáfa leyfa, skráning á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt. 2. Þróunar-, gæða-
og skipulagsmál ferðaþjónustu, þ.e. framkvæmd markaðrar ferðamálastefnu, samræming umhverfis- og
fræðslumála, miðlun upplýsinga, svæðisbundin þróun og alþjóðlegt samstarf. 3. Markaðs- og kynningarmál
ferðaþjónustu (innanlands), í samræmi við ákvörðun ráðherra hverju sinni.
Styrkir
Fundir / Mannfagnaður