Fréttablaðið - 11.11.2010, Qupperneq 52
36 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. lýð, 6. bardagi, 8. ung stúlka, 9.
bein, 11. voði, 12. bani, 14. matar-
samtíningur, 16. átt, 17. sjáðu, 18.
mál, 20. stöðug hreyfing, 21. málmur.
LÓÐRÉTT
1. borg, 3. hljóm, 4. fugl, 5. knæpa, 7.
andsvar, 10. ágæt, 13. framkoma, 15.
tolla, 16. stykki, 19. fíngerð líkamshár.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fólk, 6. at, 8. mær, 9. rif,
11. vá, 12. ólífi, 14. snarl, 16. sv, 17.
sko, 18. tal, 20. ið, 21. króm.
LÓÐRÉTT: 1. faró, 3. óm, 4. lævirki, 5.
krá, 7. tilsvar, 10. fín, 13. fas, 15. loða,
16. stk, 19. ló.
Keyptirðu
þessa
hármixtúru
af Jóa?
Einz og
þú zagð-
ir, flazkan
er flott!
Ég vona
að þú ætlir
þér ekki
að nota
þetta?
Halló! Ég
trúi ekki á
jóla zvein-
inn, Elza!
Þetta
verður til
zkrautz inni
á baði!
Plís, plís, plís!
Ég er búinn
að vera mjög
góður!
Koma svo!
Hver er
þetta? Mamma.
Hún grátbað mig um
að ganga með þessa
mynd í stað þess að
húðflúra mynd af henni
á bringuna á mér.
Það meikar
sens.
Og er ekki
eins sárt.
UUuu
já...
... nema þegar þeir
settu naglann í mig.
Í hverju ert
þú?
Dauðum
hlébarða.Rauði
dregillinn
vígður
Ztór
zkammt-
ur!
Eru þetta börnin sem
hlustuðu á Mozart
á meðgöngunni?
Það vex og dafnar sem við einbeitum okkur að. Flestir vita það, en samt
gleymum við því reglulega.
FLEST höfum við lesið bókina eða séð
myndina um Leyndarmálið, eða a.m.k.
heyrt um fyrirbærið (og hafi maður ekki
kynnt sér það, gæti verið sniðugt að gera
það). „Kenningin“ gengur út á að maður
geti fengið allt það í lífinu sem maður
óskar sér, ef maður hugsar jákvætt og
af einbeitingu um það. Þannig virkar
maður eins og segull og laðar að sér
það sem maður er að hugsa um.
OG SATT að segja hef ég reynslu
af Leyndarmálinu. Þegar ég ósk-
aði mér að eignast barn númer
tvö, hafði Leyndarmálið ein-
mitt tröllriðið þjóðinni, svo við
beittum aðferðinni og ósk-
uðum okkur barns af slíkri
einbeitingu og jákvæðni
að við eignuðumst tví-
bura.
Í DAG get ég ekki ímynd-
að mér líf mitt án beggja
þessara tveggja ára stelp-
na, en ég verð að viður-
kenna að tvíburar voru
ekkert á óskalistanum.
UPPLIFUN mín er því að aðferðin virkar.
Við löðum að okkur það sem við viljum,
en við ráðum því ekki fyllilega hversu
mikið við fáum.
ÆTLUNIN er reyndar ekki að tala um
þessa bók/mynd. En mig langar að minna
okkur á að það sem við fókuserum á vex
og dafnar. (Af sömu ástæðu borgar sig
ekki að hugsa of mikið um aukakílóin, ef
maður ætlar sér að losna við þau).
ÞAÐ KREFST aga að forðast þær hugs-
anir sem gera okkur leið, spæld eða reið
og sem færa okkur ekki nær því sem við
óskum okkur: „Ég á aldrei krónu,“„ég
er alltaf svo óheppin(n),“„ég er bara svo
vitlaus, mikill klaufi, asni, leiðinleg(ur),
ómöguleg(ur)“ o.s.frv. Það er með ólíkind-
um hvað fólki dettur í hug að hugsa um
sjálft sig. Og samt er ég sannfærð um að
enginn óski sér að lifa í reiði, þunglyndi
eða á mörkum fátæktar.
EN TIL þess að geta nært það sem við
óskum okkur meira af, verðum við að
gefa sjálfum okkur tíma og rúm til þess
að finna það í hjarta okkar hver óskin er.
Þegar einlæg óskin er fundin eigum við
að trúa á að við getum fengið hana upp-
fyllta, vera hugrökk og grípa tækifærið
þegar það gefst.
Þú færð það sem þú óskar þér …