Fréttablaðið - 11.11.2010, Side 59
FIMMTUDAGUR 11. nóvember 2010 43
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 11. nóvember
➜ Tónleikar
20.00 Sjónvarpslaust fimmtudags-
kvöld verður haldið í kvöld í sjöunda
skiptið í Slippsalnum að Mýrargötu 2.
Fram koma Friðfinnur, Anna Jónsdótt-
ir, Soffía Björg og hljómsveitin Korka.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur, 500
námsmenn.
21.00 Tríóið ASA spilar djass á Græna
hattinum, Akureyri, í kvöld. Tónleikarnir
hefjast kl. 21.
21.00 Magnús Einarsson og Tómas
Tómasson leika tónlist eftir Bítlana á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 21 og er enginn
aðgangseyrir.
21.00 Andrea
Gylfa og Eddi
Lár verða með
tónleika á Gall-
erý-Bar 46 að
Hverfisgötu 46.
í kvöld klukkan
21. Aðgangseyrir
er 1.000 krónur.
22.00 Eyþór
Ingi og félagar
halda Deep Purple tribute tónleika á
skemmtistaðnum Sódóma Reykjavík í
kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og kost-
ar 1.200 krónur inn.
➜ Upplestur
18.00 Í tilefni af Norrænu bókasafns-
vikunni standa Norræna félagið í
Hafnarfirði og Bókasafn Hafnarfjarðar
fyrir upplestri í setustofu bókasafnsins
kl. 18. Lesnir verða norrænir textar úr
völdum bókum.
➜ Opið hús
15.00 Opið hús verður í Sigurhæðum
á Akureyri frá kl. 15-17 í tilefni þess
að 175 ár eru liðin frá því Matthías
Jochumsson fæddist. Hátíðardagskrá
hefst kl. 20.30 í Ketilshúsi um kvöldið.
➜ Fyrirlestrar
12.30 Þjóðmálastofnun, Edda -
öndvegissetur og Framkvæmdafélag
listamanna standa fyrir gestafyrirlestri
í tengslum við Eilífðarvélina. Fram
kemur Luis de Miranda. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 12.30 og er haldinn í HÍ,
Háskólatorgi í stofu 105.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kínó klúbburinn og Listasafn
Reykjavíkur efna til kvikmyndasýninga
á verkum Jennifer Reeder í Hafnarhús-
inu kl. 20 í kvöld. Allir velkomnir.
➜ Tónlist
21.00 Árleg Tónlistarveisla verður
haldin hátíðleg á vegum menningar- og
safnanefndar Garðabæjar í kvöld kl. 21 í
göngugötunni á Garðatorginu í Garða-
bæ. Hjálmar troða upp og gestir geta
keypt sér veitingar.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Bækur ★★
Kallinn undir stiganum
Marie Hermanson
Uppheimar
Vínberjarunnar
og vitfirring
Marie Hermanson nýtur töluverðra
vinsælda í Svíþjóð og bók hennar
um Kallinn undir
stiganum var
valin besta skáld-
saga ársins 2005
af sænskum
bóksölum. Ekki
veit ég hvers
vegna. Kannski
er þýðingunni
þar um að
kenna, en
hún virðist
þó ágætlega
unnin, fyrir
utan glappa-
skot eins og að tala
sí og æ um vínberjarunna í stað
rifsberjarunna og svalirnar sem
„lágu ofan á veröndinni“ (bls. 7).
Sagan, sem kynnt er á kápu sem
„ágeng og ögrandi spennusaga“,
lýsir baráttu sænsks heimilisföður
við kall nokkurn sem tekið hefur
sér bólfestu undir stiganum í
húsi hans og gerir honum ýmsar
skráveifur. Fljótlega liggur þó ljóst
fyrir í huga lesandans hvað um er
að vera og sagan nær því aldrei að
verða spennandi. Aðalpersónan
nær heldur ekki að vekja samúð
og lesandanum er því slétt sama
um stigvaxandi andlega upplausn
hennar. Fyrir spennusögufíkla eins
og þennan lesanda hér veldur
lesturinn miklum vonbrigðum.
Friðrika Benónýsdóttir
Vertu í Vildarþjónustu Byrs og fáðu aukin fríðindi, persónulega þjónustu og sjálfvirkar lausnir sem veita þér betri
yfirsýn yfir fjármálin. Þannig færðu tíma fyrir það sem skiptir máli. Að auki færðu ýmis sértilboð hjá samstarfsaðilum.
VILDARÞJÓNUSTUTILBOÐ – ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
BYR | Sími 575 4000 | www.byr.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Kynntu þér kostina á byr.is
VILDARÞJÓNUSTA BYRS
Það er gaman að fara í leikhús. Þess vegna býðst
viðskiptavinum í Vildarþjónustu Byrs 20% afsláttur af
almennu miðaverði í Þjóðleikhúsið. Komdu í leikhús
og njóttu þess besta.
Njóttu lífsins í leikhúsinu
SYKURLAUSAR - BRAGÐGÓÐAR
NÁTTÚRULEG LITAREFNI - 20 STK.
freyðivítamín