Fréttablaðið - 11.11.2010, Qupperneq 62
46 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
Rihanna gefur eftir helgi
út sína fimmtu plötu, Loud.
Söngkonan hefur engan
áhuga á að endurgera hina
vinsælu Good Girl Gone
Bad sem kom út 2007.
Þrátt fyrir ungan aldur gefur söng-
konan Rihanna út sína fimmtu
hljóðversplötu eftir helgi. „Ég trúi
því varla að þetta sé fimmta plat-
an mín,“ sagði hin 22 ára Rihanna í
viðtali við BBC. „Það er ótrúlegt ef
maður hugsar til þess. Ég hef aldrei
verið eins spennt yfir neinu sem ég
hef búið til. Þetta er ekta Rihönnu-
plata og hvert einasta lag er klæð-
skerasniðið fyrir mig.“
Rappararnir Eminem og Drake
eru á meðal gesta auk þess sem
hluti af lagi Avril Lavigne, I’m With
You, af fyrstu sólóplötu hennar er
notaður í laginu Cheers (Drink to
That). Eins og á síðustu plötum
Rihönnu kemur norska upptöku-
dúóið Stargate einnig við sögu.
Rihanna sló rækilega í gegn árið
2007 með plötunni Good Girl Gone
Bad sem hafði að geyma hið gríð-
arvinsæla Umbrella. Söngkonan er
meðvituð um vinsældirnar en vill
líta fram á veginn í tónlistinni. „Ég
vildi ekki líta um öxl og endurgera
Good Girl Gone Bad. Mig langaði
að taka næsta skref í þróunarsögu
Rihönnu og þessi plata er sú rétta
fyrir okkur.“
Rihanna fæddist á Barbados
í Karíbahafi. Eyjan var bresk
nýlenda til ársins 1966, þegar hún
öðlaðist sjálfstæði. Nú búa þar
innan við 300 þúsund manns. Sex-
tán ára fluttist Rihanna til Banda-
ríkjanna til að einbeita sér að sóló-
ferli sínum og hún var ekki lengi að
heilla menn upp úr skónum. Eftir
að hafa farið í áheyrnarprufu hjá
rapparanum Jay-Z, þáverandi for-
stjóra Def Jam Recordings, gerði
fyrirtækið útgáfusamning við
hana og sér varla eftir því. Hún
hefur selt plötur sínar í hátt í tut-
tugu milljónum eintaka og þar af
seldist Good Girl Gone Bad í um tíu
milljónum. Eins og áður sagði var
Umbrella aðalsmellurinn, þar sem
Jay-Z var einmitt gestasöngvari.
Rihanna lenti í erfiðleikum í
einkalífinu í byrjun síðasta árs
þegar þáverandi kærasti henn-
ar, rapparinn Chris Brown, lagði
hendur á hana. Hún komst yfir það
og gaf út fjórðu plötu sína, Rated
R, síðar sama ár. Hún seldist ekki
næstum því eins vel og Good Girl
Gone Bad og því má segja að tölu-
verð pressa sé á Rihönnu að auka
við fylgi sitt á nýjan leik með Loud.
freyr@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Það hefur verið vinsælt undanfarin ár
að hljómsveitir haldi tónleika og spili
einstaka plötur í heild sinni. Oft eru
þetta gömul meistaraverk og tónleik-
arnir í senn upprifjun fyrir gamla aðdá-
endur og tækifæri fyrir unga áhuga-
menn að upplifa snilldina. Í fyrra var
blásið til tónleikaraðarinnar Manstu
ekki eftir mér. Fyrstu tvennir tónleik-
arnir tókust vel (Ensími með Kafbát-
arokk og Megas með Millilendingu), en
síðan hefur lítið gerst.
Nú dregur hins vegar til tíðinda.
Hljómsveitin SH Draumur kom nýlega
saman og spilaði á Airwaves við góðar
undirtektir. Um svipað leyti kom út
tvöföld yfirlitsútgáfa af meistaraverki
Draumsins, Goð, sem kom út 1987. Þetta er sérstaklega eigulegur
pakki með öllu útgefnu efni sveitarinnar, sjaldgæfum og áður óút-
gefnum hljóðritunum og hnausþykkum bækl ingi með sögu bandsins
og myndefni.
Til að fagna útgáfunni ætlar SH Draumur að halda tvenna tónleika
þar sem platan verður flutt í heild ásamt öðru efni. Þeir fyrri verða á
Græna hattinum á Akureyri 20. nóv., en þeir seinni á Sódómu 4. des.
Að hluta til er Draumurinn að svara óskum aðdáenda, en Facebook-
síða með áskorun um tónleika var stofnuð fyrir nokkrum mánuðum.
Hljómsveitin var drulluþétt á Airwaves þannig að það má reikna með
hörku tónleikum. Miðasala er hafin á midi.is.
Erlendis er líka verið að rifja upp flottar plötur á tónleikum. Prim-
al Scream er þessa dagana á tónleikaferð að spila Screamadelicu og
miðasala er hafin á stórtónleika í Alexandra Palace í London 1. júlí
2011. Þar mætast þrjár kynslóðir: Flaming Lips spilar The Soft Bull-
etin (1999), Dinosaur Jr. tekur Bug (1988) og Deerhof flytur Milk
Man (2004).
Goð og garpar
MEISTARAVERK SH Draumur
spilar Goð og fleira á tónleikum
á Akureyri 20. nóvember og í
Reykjavík 4. desember.
Rihanna horfir til framtíðar
RIHANNA Þrátt fyrir ungan aldur er söngkonan að gefa út sína fimmtu plötu, Loud.
NORDICPHOTOS/GETTY
TÓNLISTINN
Vikuna 4. - 11. nóvember 2010
LAGALISTINN
Vikuna 4. - 11. nóvember 2010
Sæti Flytjandi Lag
1 Páll Óskar og Memfismafían ......Það geta ekki allir...
2 Cee Lo Green ....................................... Forget You (F U)
3 Kings Of Leon ................................................Radioactive
4 Hjálmar ....................................................Gakktu alla leið
5 Bruno Mars ..................................Just The Way You Are
6 Blaz Roca og Ragga Bjarna............. Allir eru að fá sér
7 Hurts ..........................................................Wonderful Life
8 Lifun ..................................................................Ein stök ást
9 Jón Jónsson ...................................When You’re Around
10 Rihanna .......................................Only Girl In The World
Sæti Flytjandi Lag
1 Prófessorinn og Memfismafían ................. Diskóeyjan
2 Hjálmar .................................................Keflavík Kingston
3 Sálin hans Jóns míns................ Upp og niður stigann
4 Baggalútur ..........................................................Næstu jól
5 Helgi Björnsson og reiðmenn... ...Þú komst í hlaðið
6 GRM ................................................................................. MS
7 Ingó og félagar .............................................Buddy Holly
8 Friðrik Dór ................................................. Allt sem þú átt
9 Cliff Clavin ........................................The Thief’s Manual
10 Retro Stefson ...................................................Kimbabwe
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
G
oo
d
G
ir
l G
on
e
B
ad
(
20
07
)
A
G
ir
l L
ik
e
M
e
(2
00
6)
R
at
ed
R
(
20
09
)
M
us
ic
o
f
th
e
Su
n
(2
00
5)
milljón
eintök
seld
> Plata vikunnar
XIII - Black Box
★★★★
„Glæsileg yfirlitsútgáfa sem allir
íslenskir rokkhundar ættu að
eiga í safninu.“ TJ
> Í SPILARANUM
Ómar Guðjónsson - Von í óvon
Kid Rock - Born Free
Ensími - Gæludýr
The Walkmen - Lisbon
Ray Davies - See My Friends
ÓMAR GUÐJÓNSSON RAY DAVIES
Rokkararnir í Metallica
ætla að byrja að semja
efni á sína tíundu hljóð-
versplötu á næsta ári. Tvö
ár eru liðin síðan Death
Magnetic kom út en á
henni mátti greina aftur-
hvarf til fyrri verka sveit-
arinnar.
Metallica er þessa dag-
ana að ljúka við tónleika-
ferð sína um heiminn
vegna Death Magnetic.
Trommarinn Lars Ulrich
hlakkar til að kíkja í hljóð-
verið á nýjan leik til að leggja grunninn að
enn einni plötunni. „Það er margt í bígerð
árið 2011 en það helsta er að við viljum byrja
að semja aftur,“ sagði
Ulrich. „Við höfum ekk-
ert samið síðan 2006
eða 2007 og við vilj-
um fara að skapa eitt-
hvað á nýjan leik. Núna
erum við bara að slaka
á en síðan förum við á
fullt í mars eða apríl.“
Trommarinn bætti
því við að hljómsveit-
in vildi halda áfram að
stíga á svið með Slayer,
Anthrax og Mega deth.
Þeir tónleikar hafa
hingað til verið haldnir í Evrópu en Ulrich
vonast til að ferðinni verði næst heitið til
Bandaríkjanna.
Metallica vaknar til lífsins
METALLICA Rokkararnir ætla að semja efni á
nýja plötu á næsta ári.