Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 72
56 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Iceland Express kvenna
Keflavík-Hamar 69-72 (42-32)
Stig Keflavíkur: Jacquline Adamshick 28 (23
frák.), Bryndís Guðmundsdóttir 17, Birna
Valgarðsdóttir 10 (10 frák.), Pálína Gunnlaugs
dóttir 6, Rannveig Randversdóttir 3, Ingibjörg
Jakobsdóttir 3, Hrund Jóhannsdóttir 2.
Stig Hamars: Jaleesa Butler 29 (10 frák. 6
varin), Kristrún Sigurjónsdóttir 17, Fanney Lind
Guðmundsdóttir 12, Slavica Dimovska 12, Jenný
Harðardóttir 2.
Snæfell-Grindavík 65-51 (24-26)
Stig Snæfells: Sade Logan 18, Berglind
Gunnarsdóttir 17, Björg Guðrún Einarsdóttir 12,
Helga Hjördís Björgvinsdóttir 10, Inga Muciniece
4, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 3, Hildur Björg
Kjartansdóttir 1.
Stig Grindavíkur: Agnija Reke 13, Alexandra
Marý
Hauksdóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 12, Ingibjörg
Yrsa Ellertsdóttir 7, Harpa Hallgrímsdóttir 4,
Berglind Anna Magnúsdóttir 2, Mary Jean Lerry
F. Sicat 1.
Fjölnir-Haukar 80-81 (31-42)
Stig Fjölnis: Natasha Harris 28 (12 stoðsending
ar), Inga Buzoka 15 (14 fráköst, 5 varin), Bergþóra
Holton Tómasdóttir 12, Gréta María Grétarsdóttir
7, Erla Sif Kristinsdóttir 7, Eva María Emilsdóttir 6,
Birna Eiríksdóttir 3, Heiðrún Harpa Ríkharðs
dóttir 2
Stig Hauka: Kathleen Snodgrass 27 (7 fráköst, 7
stoðsendingar), Ragna Margrét Brynjarsdóttir 15
(10 fráköst), María Lind Sigurðardóttir 10, Íris
Sverrisdóttir 10, Gunnhildur Gunnarsdóttir
7, Margrét Rósa Hálfdánardótir 5, Bryndís Hanna
Hreinsdóttir 3, Dagbjört Samúelsdóttir 2, Guðrún
Ósk Ámundardóttir 2.
Njarðvík-KR 77-84
ÚRSLITIN Í GÆR
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
Það verður handagangur í öskjunni í dag og alla helgina í N1 deildinni.
Mætum öll á völlinn og hvetjum okkar fólk til sigurs!
N1 DEILD KARLA
Akureyri – Selfoss Höllin Akureyri 11. nóv. kl. 19:00
HK – Haukar Digranes 11. nóv. kl. 19:30
Fram – Afturelding Framhús 11. nóv. kl. 19:30
Valur – FH Vodafone höllin 13. nóv. kl. 15:45
N1 DEILD KVENNA
HK – Stjarnan Digranes 12. nóv. kl. 18:00
Haukar – Fylkir Ásvellir 12. nóv. kl. 19:30
Fram – ÍBV Framhús 13. nóv. kl. 13:00
Grótta – ÍR Seltjarnarnes 13. nóv. kl. 13:30
Valur – FH Vodafonehöllin 13. nóv. kl. 13:45
ALLT AÐ GERAST
Í BOLTANUM!
KÖRFUBOLTI Lið Hamars er komið
á topp Iceland Express-deildar
kvenna eftir sigur í Keflavík í
gær. Bæði lið voru ósigruð fyrir
leikinn í gær en þökk sé þriggja
stiga sigri Hvergerðinga, 72-69,
er Hamar nú eitt í þeirri stöðu.
Bandaríkjamaðurinn Jaleesa
Butler hjá Hamri fór hamför-
um þegar mestu máli skipti. Hún
hafði verið nokkuð mistæk í fyrri
hálfleik en í þeim síðari skoraði
hún 21 stig af alls 29 í leiknum,
þar af fjórtán í fjórða leikhluta.
Butler skoraði einnig fjögur
síðustu stigin í leiknum – snið-
skot þegar tólf sekúndur voru
eftir og tvö víti á lokasekúndun-
um sem gerðu út um leikinn.
Kaninn í liði Keflavíkur,
Jacquline Adamshick, fór einnig
mikinn í leiknum en brást hins
vegar á ögurstundu. Hún gat
komið Keflavík yfir þegar sjö
sekúndur voru eftir en klikkaði
þá á báðum vítaköstunum sínum.
Það reyndist einfaldlega of dýr-
keypt fyrir heimamenn.
Keflavík hafði haft undirtök-
in lengst af í leiknum en lítið var
skorað í leiknum. Leikmenn hittu
nokkuð illa og það var lítið skor-
að en varnarleikurinn var lengst
af ágætur.
„Við ræddum það fyrir fjórða
leikhluta að við höfðum engu að
tapa,“ sagði Ágúst Björgvinsson,
þjálfari Hamars. „Við vorum
ekki búnar að spila vel og fórum
því í hann af fullum krafti til að
sjá hvað það myndi gefa okkur.
Jaleesa [Butler] var í engum takti
við leikinn í fyrri hálfleik en það
var svo allt annað að sjá til henn-
ar í þeim síðari – sérstaklega í
fjórða leikhluta þegar hún fór
hamförum.“
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálf-
ari Keflavíkur, sagði skýringuna
á tapi sinna manna einfalda.
„Það vantar alla gleði í hópinn
hjá mér. Þetta er ekki fyrsti leik-
urinn þar sem við lendum í vand-
ræðum þó svo við höfum unnið
alla okkar leiki. Það vantar samt
gleði í hópinn og við erum ekki
að hafa gaman af þessu og þegar
það gerist næst ekki árangur.
Það er bara svo einfalt,“ sagði
Jón Halldór.
Ágúst segir að góð byrjun
Hamars á tímabilinu komi sér
ekki á óvart.
„Við vorum fjórum stigum frá
titlinum á síðasta tímabili og það
hafa vissulega verið breytingar í
hópnum en sú reynsla mun reyn-
ast okkur dýrmæt nú. Liðið er
alls ekki síðra en í fyrra og því
tel ég að gott gengi okkar ætti
ekki að koma á óvart.“
eirikur@frettabladid.is
Butler skaut
Hamri á toppinn
MIKILVÆG Í GÆR Jaleesa Butler tryggði Hamri sigurinn í Keflavík í gær. Hún hefur
leikið frábærlega með Hamarsliðinu í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hamar er ósigrað á toppi Iceland Express-deildar
kvenna eftir sigur á Keflavík í gær í uppgjöri topp-
liðanna suður með sjó. Jaleesa Butler fór fyrir Hver-
gerðingum á lokasprettinum.
STAÐAN Í DEILDINNI:
Hamar 7 7 0 566-480 14
Keflavík 7 6 1 609-439 12
KR 7 4 3 530-449 8
Haukar 7 4 3 443-492 8
Njarðvík 7 4 3 529-470 8
Snæfell 7 2 5 431-526 4
Grindavík 7 1 6 403-489 2
Fjölnir 7 0 7 411-577 0