Fréttablaðið - 11.11.2010, Qupperneq 78
62 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGURSJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Ég á auðvitað í ástarsambandi
við Grey‘s Anatomy og það er
í raun sorglegt að segja það
en mér finnst sá þáttur nánast
meira spennandi en mitt eigið
líf. Svo er ég hrikalega hrifin af
Modern Family og Glee.“
Greta Mjöll Samúelsdóttir knattspyrnu-
kona.
„Ég myndi auðvitað segja að þetta væri aðal-
hlutverkið. Sem það er náttúrulega ekki. En
ég fæ að segja nokkrar setningar og Baltas-
ar sýndi mér mikla þolinmæði á tökustað,“
segir Guðjón Pedersen, fyrrverandi leikhús-
stjóri Borgarleikhússins. Hann leikur lækn-
inn Erling í kvikmyndinni Djúpinu eftir Balt-
asar Kormák, þar sem mögnuð saga Guðlaugs
Friðþórssonar er höfð til hliðsjónar.
Guðjón, eða Gíó eins og hann er jafnan kall-
aður, hefur lítið látið til sín taka á leiklistar-
sviðinu og raunar eiga elstu menn erfitt með
að muna eftir honum í hlutverki leikarans.
Einhverja kann þó að ráma í að Guðjón lék
þögla þjófinn sem stal Áramótaskaupinu árið
1985. Og Guðjón staðfestir það. „Þær eru ekki
margar myndirnar sem ég hef leikið í, það er
alveg rétt. Við gerðum samt einu sinni mynd,
leikhópur sem hét Svart og sykurlaust, og
tókum hana upp á Ítalíu.“
Guðjón segist í raun ekki vita hversu stórt
hlutverkið verði í myndinni. Og viðurkenn-
ir að hann hafi haldið að Baltasar væri að
stríða sér þegar hann hringdi og bað hann um
að taka hlutverkið að sér. „Og ég held reynd-
ar enn að hann sé að stríða mér. Við Baltasar
höfum þekkst í mörg ár,“ segir Guðjón, sem
efast um að hann verði klipptur út úr mynd-
inni því læknirinn Erlingur er sá sem skoðar
aðalleikarann Ólaf Darra þegar hann kemur
í land eftir sundið til Eyja. Guðjón segist
ánægður með að þessi mynd skuli vera gerð
því ungt fólk sé ekki meðvitað um þessa sögu.
„Og það verður að halda henni til haga.“ - fgg
Óvænt upprisa leikarans Gíós
„Þetta er ótrúlegt. Ég veit ekki
alveg hvar klikkið átti sér stað,
en þetta er að sjálfsögðu mér að
kenna,“ segir tónlistarsérfræð-
ingurinn og spilagerðarmaðurinn
Dr. Gunni.
Nýja Popppunktsspilið er komið
í valdar verslanir. Eins og Frétta-
blaðið greindi frá á dögunum átti
draumur Rúnars Júlíussonar heit-
ins að rætast með útgáfu spilsins,
en hann átti að vera eitt af tólf
spilapeðum. Hann datt út úr fyrra
spilinu á síðustu stundu og sagan
endurtók sig við útgáfu nýja spils-
ins.
„Ég ætlaði að hafa Rúnar en
svo hef ég ekki gert það. Ég skrifa
þetta á fyrstu einkenni Alzheim-
er. Það er frekar fúlt að þessi
Alzheimer light-sjúkdómur hafi
komið í veg fyrir að Rúnar væri
með í Popppunktsspilinu,“ segir
doktorinn.
Hvarf Rúnnapeðsins var þó ekki
eins dularfullt í fyrra spilinu, eins
og Gunni útskýrir. „Í fyrra spilinu
var allt klappað og klárt. Ég var
búinn að tala við fullt af fólki og
þar á meðal Rúnar,“ rifjar hann
upp. „Svo fannst útgefandanum
sniðugt að hafa Herbert [Guð-
mundsson] með og ég var ekkert
búinn að tala við hann. Þannig
að hann setti Herbert inn og tók
Rúnar út. Svo var Herbert alveg
brjálaður því að það var ekki búið
að tala við hann. Og Rúnar var
frekar fúll líka.“
Spilið kemur í fleiri verslanir
í lok nóvember, en þeir sem vilja
vera goðsögnin Rúnar Júlíusson í
spilinu verða að taka upp föndur-
kassann. - afb
Dr. Gunni klikkaði á Herra Rokk
PEÐIÐ HVARF AFTUR Dr. Gunni kennir
sjálfum sér um að Rúnnapeðið var ekki
heldur með í nýja Popppunktsspilinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég var kominn út um dyrnar, með
allan farangurinn, vegabréf og
flugmiða og var á leiðinni til ætt-
ingja minna í Keflavík þar sem ég
ætlaði að gista daginn fyrir brott-
för. Ég ákvað hins vegar að tví-
tékka hvort ég væri ekki með allt,
fór í fartölvuna og fyrsti póst-
ur var að keppninni hefði verið
aflýst,“ segir Vilhjálmur Þór Dav-
íðsson, Hr. hinsegin okkar Íslend-
inga.
Mr. Gay Europe-keppnin, sem
fara átti fram í Genf í Sviss á dög-
unum, var slegin af. Ástæðan var
sú, að sögn Vilhjálms, að hótelið
sem átti að hýsa keppnina ákvað
að draga sig út sökum þess að það
taldi sig ekki vera að græða nógu
mikið á keppninni. „Skipuleggj-
endur og aðstandendur keppninn-
ar reyndu allt hvað þeir gátu en
fundu ekki keppnisstað með svona
skömmum fyrirvara og þess vegna
varð ekkert úr þessu.“
Vilhjálmur segir þetta vissulega
vera svekkjandi, hann hafi verið
búinn að fá sig lausan úr vinnu
til að taka þátt og eytt ómældum
tíma í undirbúning. „Ég tók þetta
alla leið, æfði tvisvar á dag, sleppti
allri óhollustu og var í flottu formi.
Ég fór náttúrulega á algjört nammi-
fyllerí þegar þetta var staðfest.“
Vilhjálmur er einnig með keppnis-
rétt í Mr. Gay World sem fram fer í
Manila á Filippseyjum. Hann segir
meiri líkur en minni á að hann taki
þátt í þeirri keppni þótt hann við-
urkenni að hann sé aðeins brennd-
ur af fyrri reynslu. „Mér þykir lík-
legra að ég fari,“ segir hann.
Vilhjálmur getur hins vegar
brosað í gegnum tárin því fyrir
algjöra tilviljun var norskur hótel-
eigandi, Jarl Haugedal, staddur
hér á landi ásamt vinkonu sinni
Heru Björk, Eurovision-stjörnu.
Haugedal þessi á lúxusíbúðarhót-
elið NYC-JC og situr í dómnefnd
Mr. Gay Europe og fann til með
Vilhjálmi sökum þess hversu mikla
vinnu hann hafði lagt í keppnina.
„Þannig að Iceland Express og
hann ætla að bjóða mér til Banda-
ríkjanna. Ég fæ að gista í svítu
hótelsins. Sem er ekkert slæmt
og bætir þennan missi algjörlega
upp.“ freyrgigja@frettabladid.is
VILHJÁLMUR ÞÓR: FÆR LÚXUSFERÐ TIL NEW YORK Í SÁRABÆTUR
Fór á nammifyllerí þegar
Herra hinsegin var slegin af
EKKERT SVO SVEKKTUR Vilhjálmur Þór var á leiðinni á Mr. Gay Europe þegar keppnin
var slegin af. Hann fær hins vegar ferð til New York og fría gistingu á glæsilegu
íbúðahóteli í New Jersey í sárabætur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LEIKUR LOKSINS Guðjón Pedersen
leikur lækninn Erling í kvikmyndinni
Djúpinu eftir Baltasar Kormák.
Leikhússtjórinn
fyrrverandi heldur
enn að Baltasar
sé að stríða sér
með hlutverkinu
þótt það verði
erfitt að klippa
það út.
Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 12.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Lau 27.11. Kl. 20:00
Sun 28.11. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 13:00
Lau 13.11. Kl. 15:00
Sun 14.11. Kl. 13:00
Sun 14.11. Kl. 15:00
Lau 20.11. Kl. 13:00
Lau 20.11. Kl. 15:00
Sun 21.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 15:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 15:00 100 sýn.
Sun 5.12. Kl. 13:00 br. sýn.t.
Sun 5.12. Kl. 15:00
Mið 29.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fim 30.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fim 11.11. Kl. 20:00
Fös 12.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Fös 26.11. Kl. 20:00
Lau 27.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Mið 10.11. Kl. 19:00
Sun 14.11. Kl. 19:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 26.11. Kl. 20:00
Fim 2.12. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 3.12. Kl. 20:00
U
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 14:30
Sun 28.11. Kl. 11:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 14:30
Lau 4.12. Kl. 11:00
Lau 4.12. Kl. 13:00
Lau 4.12. Kl. 14:30
Sun 5.12. Kl. 11:00
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 14:30
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Leitin að jólunum
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums.
Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn
Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Sun 21.11. Kl. 14:00
Íslandsklukkan – á Akureyri (Hof, menningarhús)
U Ö Ö
Rómantík og
rekkjubrögð
N ý b ó k e f t i r d a ð u r d r o t t n i ng u n a
og k y n l í f s g ú r ú i n n T r a c e y C ox
Leiðarvísir upp
í sjöunda unaðshimin!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.