Kylfingur - 29.04.1986, Page 1

Kylfingur - 29.04.1986, Page 1
29. apríl 1986. KYLfíNGUR 29. árg. — 1. tbl. ' > l w v MOIIa: \. | á ' ~ -2gmL I ' . I J íþróttamað'ur Reykjavíkur 1985 í febrúar sl. var Sigurður Pétursson valinn íþrótta- maður Reykjavikur 1985. Er það í fyrsta sinn, sem kylfingi hlotnast sá heiður. Jafnframt var hann valinn golfmaður ársins af Golfsambandi íslands. Þá varð hann í 3. sæti í vali fjölmiðla á íþróttamanni ársins. Sigurður Pétursson er vel að þessum vegsemdum kominn. Hann varð íslandsmeistari á árinu sem og stigameistari. Þá varð hann íslandsmeistari í sveita- keppni. Hann lék þrisvar fyrir íslands hönd í landsliði á erlendri grund. Hann var í sveit GR, sem náði þeim frábæra árangri að verða í 4. sæti í Evrópukeppni félagsliða í golfi. í sömu keppni varð hann í 3. sæti einstaklinga. Þá stóð hann sig mjög vel í keppni um atvinnumannaskírteini á sl. hausti. Kylfingar í Golfklúbbi Reykjavíkur eru stoltir af Sig- urði og hvetja hann til enn frekari dáða.

x

Kylfingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.