Kylfingur - 29.04.1986, Blaðsíða 31
FRÁ KVENNANEFND
Þátttaka kvenna í golfíþróttinni
er sorglega lítil. Sérstök kvenna-
nefnd hefur ekki verið starfandi í
Golfklúbbi Reykjavíkur um árabil,
og ber ástandið í málefnum G.R.
kvenna þess órækt vitni. Á aðal-
fundi G.R. undanfarin ár hafa menn
staðið upp og harmað þessa leiðin-
legu staðreynd; menn hafa verið
sammála um að eitthvað þurfi að
gera.
Núna loksins, hefur stjórn G.R.
ákveðið að gera átak i þessum mál-
um; 27. janúar 1986 var haldinn
fyrsti fundur kvennanefndar Golf-
klúbbs Reykjavíkur. Nefndina
skipa: Aðalheiður Jörgensen for-
maður, Ásgerður Sverrisdóttir og
Jóhanna Ingólfsdóttir. Tengiliður
stjórnar G.R. við nefndina er Geir
Svansson.
Markmið kvennanefndar er að
efla og auka þátttöku kvenna í golf-
'íþróttinni og félagslífi innan Golf-
klúbbs Reykjavíkur. Kvennanefnd-
in mun skipuleggja og taka virkan
þátt í kynningarfundum og golf-
námskeiðum. Þá ætlar kvennanefnd
að huga að golfkeppni kvenna og
öðrum hagsmunamálum þeirra.
Kvennanefndin hefur ákveðið að
leggja sérstaka áherslu á stúlkur, en
á yngri kynslóðinni veltur fram-
gangur golfíþróttarinnar. I mars-
mánuði var haldið sérstakt nám-
skeið í golfskóla John Drummond,
fyrir konur yngri en 25 ára, þátttak-
endum að kostnaðarlausu. John
Drummond sá um kennsluna með
aðstoð kvennanefndar, og kann
nefndin honum þakkir fyrir alúðleg
störf.
Tuttugu og fimm stúlkur frá
10—25 ára aldri skráðu sig á nám-
skeið í upphafi, og má því segja, að
viðþrögðin hafi farið fram úr björt-
ustu vonum kvennanefndar. Vegna
fjöldans var stúlkunum skipt í þrjá
hópa, sem sóttu tíma einu sinni í
viku. í fyrstu tímana var vel mætt og
bættist jafnvel við skráðan fjölda,
þannig að fjöldi kvenna, sem tók
áskorun kvennanefndar G.R., var
28. Átta til ellefu konur, í hverjum
hópi, létu sjá sig fyrstu tímana, en
þeim fækkaði í 5—7 síðustu tímana
fyrir páska. Afföllin eru sennilega
eðlileg, en þau má einnig rekja til
veðurs og ófærðar, sem skall á í vik-
unni 16.—22. mars.
Þessu námskeiði var fylgt eftir
með kynningarfundi fyrir konur,
sem eru að byrja í golfi, sem haldinn
var 12. apríl. Þátttakendum á nám-
skeiðinu voru send sérstök fundar-
boð, en að auki var fundurinn
kynntur á íþróttasíðu Morgunblaðs-
ins. Mæting olli nokkrum vonbrigð-
um, en aðeins 15 konur létu sjá sig.
Á fundinn mættu auk kvennanefnd-
ar, formaður klúbbsins Hannes
Guðmundsdson og Björgúlfur Lúð-
víksson framkvæmdastjóri. For-
maður flutti inngangsorð og fram-
kvæmdastjóri kynnti starfsemi
klúbbsins. Kvennanefndarkonur
töluðu um kvennagolf almennt og
svöruðu spurningum. Þá voru sýnd-
ar tvær golfmyndir og boðið upp á
kaffi og kökur. Fundurinn tókst vel
í hvívetna, þrátt fyrir fámenni, og
létu konurnar í ljós ánægju sína.
í sumar er áætlunin að halda fleiri
námskeið, kynningarfundi og
,,golftíma“ fyrir konur á öllum
aldri, og verður það auglýst nánar
síðar. Kvennanefnd skorar á félaga
G.R. að liggja nú ekki á hugmynd
um hvaðeina, sem varðar golfkonur
og kvennagolf: „Hafiði samband“!
ALLAR GERÐ/R
VERDLA UNA GR/PA
VALURFANNAR
Gullsmiður goifkiúbbanna
Við Lækjartorg — Reykjavík
Símar 16488 - 40767