Kylfingur - 29.04.1986, Page 9
1) Fundur var settur af Seppo
Soratie forseta finnska golfsam-
bandsins og fundarritari var Jorma
Huhtanen.
2) Fundargerð síðasta fundar i
Reykjavík lesin og samþykkt.
3) Fjöldi iðkenda:
Danmörk 23.000.,
ísland 2.773.,
Noregur 6.000.,
Svíþjóð 115.000.,
Finnland 6.000.,
4) Samþykkt að breyta nafni
Skandinaviska golfsambandsins
(SGU) í Nordisk golfunion (NGU)
eða Norræna golfsambandið.
5) Samþykktar voru nokkrar
breytingar á reglugerð um Norður-
landamót í golfi. Ennfremur sam-
þykkt að leyfa ekki kylfusveina á
næsta NM-móti.
6) Næsta NM-mót i golfi verður
í Danmörku dagana 23. og 24. ágúst
1986.
7) Congu-forgjafarkerfið. All-
ar Norðurlandaþjóðirnar, utan Finn-
lands, hafa notað Congu-forgjafar-
kerfið undanfarin ár, og reynsla
þykir allgóð. Finnar munu byrja að
nota Congu-forgjafakerfið í byrjun
árs 1986.
8) Áhugamannareglurnar. Rætt
var um áhugamannareglurnar og var
staðfest, að bréfið, sem sent var eftir
fundinn í Reykjavík, hafi haft þau
áhrif, að áhugamannareglunum var
breytt, er varðar æfingabúðir fyrir
kylfinga.
Samþykkt að senda (nýja) ályktun
frá þessum fundi til EGA og þrýsta
á, að frekari rýmkun á áhugamanna-
reglunum yrði hraðað.
9) Samþykkt var, að vegna út-
gáfu nýrra golfreglna 1988, ætti hvert
samband, innan Norðurlandasam-
bandsins, að senda sínar eigin breyt-
ingatillögur beint til R & A fyrir árs-
lok 1986.
10) Samþykkt að næsti fundur
verði haldinn 22. ágúst 1986 í Dan-
mörku.
AÐALFUNDUR EGA
Aðalfundur EGA haldinn 11. og
12. októberíHaagíHollandi. Fund-
urinn var settur af forseta Evrópu-
sambandsins R. Rahausen.
Fyrir hönd GSÍ, sátu þennan fund,
Konráð R. Bjarnason og Georg H.
Tryggvason.
1) Samþykkt var að veita Júgó-
slövum aðild að EGA, eru þá aðildar-
þjóðirnar orðnar 21.
2) Samþykkt var að hækka aðild-
argjöld til EGA og þarf ísland nú að
greiða SFR 2000.
3) Nú eru aðeins 3 þjóðir í EGA
sem hafa ekki tekið upp Congu for-
gjafakerfið. Það eru Finnland, Ítalía
og Júgóslavía, en munu nota það frá
og með 1. janúar 1986.
4) Miklar umræður urðu um
áhugamannareglurnar og hámark
verðlauna á mótum, því eins og menn
vita þá er miðað við annarsvegar £150
og hins vegar $350 og var samþykkt
að halda áfram að miða við þessar
tölur.
Jafnframt var samþykkt að þrýsta
á R&A um að áhugamannareglum í
golfi yrði breytt í þá átt, að þær verði
raunhæfar miðað við nútíma aðstæð-
ur, en eins og menn vita er R&A
íhaldssöm stofnun svo reikna má með
að nokkurn tíma taki að fá fram leið-
réttingu i þessum málum.
5) Samþykkt var að 1. Evrópu-
mót einstaklinga færi fram á næsta
ári, og mun karlakeppnin fara fram
í Hollandi og kvennakeppnin í Frakk-
landi.
6) Ákveðið var, að á öllum golf-
völlum væru settir niður hælar, í 150
metra fjarlægð frá miðri flöt.
7) Varðandi hugmynd ítalska
golfsambandsins um að halda ungl-
ingameistaramót, þá hafði stjórn
EGA ekki neitt við það að athuga, en
gæta yrði þess að nafn EGA væri ekki
á einn eða neinn hátt tengt mótinu.
8) Varðandi Evrópumót öld-
unga, þá er það skoðun meirihluta
aðildaþjóða Evrópusambandsins, að
Evrópusambandið muni ekki um sinn
taka þátt, eða eiga aðild að undirþún-
ingi slíkra móta, því að samkvæmt
lögum EGA, þá á Evrópusambandið
að stuðla að mótum, þar sem aðeins
keppa bestu kylfingar hvers lands og
án forgjafar. Aftur á móti, þá er það
í höndum hvers sambands innan
EGA að vinna að málum öldunga.
9) Forseti Evrópusambandsins er
Jens Wester Andersen og er hann
Dani. Vænta má, að samvinna við
hann verði góð í þau tvö ár sem hann
situr sem forseti EGA.
FJÖLÞJÓÐAMÓT
Evrópumeistaramót karla fór fram
í Halmstað í Svíþjóð 26.-30. júní
1985.
Lið íslands skipuðu:
Sigurður Pétursson GR — 150 högg
Ragnar Ólafsson GR — 159 högg
Hannes Eyvindsson GR — 159 högg
Björgvin Þorsteinsson GR —
165 högg
Úlfar Jónsson GK — 163 höggum
Sigurður Sigurðsson GS —
168 högg.
Lék sveitin samtals á 794 höggum
og skipaði sér í 17. sæti í höggleikn-
um. Síðan tap gegn Belgum 5'A/l Vi
— og Tékkum 4/3 og hafnaði sveitin
í neðsta sæti mótsins.
6 unglingar voru sendir í æfinga og
keppnisferð til Skotlands, sem tókst
mjög vel og var frammistaða ungling-
anna góð og er vonast til að framhald
verði á þessum samskiptum við
Skota. Þátttakendur voru: Þorsteinn
Hallgrímsson GV, ívar Hauksson
GR, Kristján Hjálmarsson GK,
Sigurjón Arnarson GR, Guðmundur
Arason GR, Jón H. Karlsson GR.
Liðsstjóri var Sigurður Héðinsson og
fararstjóri var Ari F. Guðmundsson.
Doug Sanders drengjamótið fór
fram í Aberdeen 20.-24. ágúst. Þor-
steinn Hallgrímsson GV varð nr. 12
á305höggum. 17 þjóðirsendu kepp-
endur á mótið. Fararstjóri var Sig-
urður Héðinsson.
Norðurlandameistaramót fór fram
í Turku í Finnlandi. Bæði karla- og
kvennasveitin urðu í neðstu sætum.
Steinunn Sæmundsdóttir varð í 12.
sæti í einstaklingskeppni kvenna af 22
á 331 höggi.
Sigurður Pétursson varð í 14. sæti
í einstaklingskeppni karla af 33 á 298
höggum.
KYLFINGUR
9