Kylfingur - 29.04.1986, Page 10
Kvennasveitina skipuðu eftirtaldar
konur:
Ásgerður Sverrisdóttir GR
Þórdís Geirsdóttir GK,
Steinunn Sæmundsdóttir GR,
Ragnhildur Sigurðardóttir GR
Úrslit í sveitakeppni kvenna:
1. Sveit Danmerkur 934 högg
2. Sveit Noregs 954 högg
3. Sveit Svíþjóðar 956 högg
4. Sveit Finnlands 985 högg
5. Sveit Islands 1031 högg
Liðsstjóri:
Guðmundur S. Guðmundsson
Norðurlandameistari kvenna varð
Mereta Meiland frá Danmörku. Hún
lék á 308 höggum.
Úrslit í sveitakeppni karla:
1. Sveit Danmerkur 1472 högg
2. Sveit Svíþjóðar 1475 högg
3. Sveit Noregs 1480 högg
4. Sveit Finnlands 1493 högg
5. Sveit íslands 1524 högg.
Norðurlandameistari karla varð
Cristian Hardin frá Svíþjóð, hann lék
á 286 höggum.
Belgíska unglingamótið fór fram
25.ágúst — 1. september 1985
í þessari ferð tóku þátt eftirtaldir:
Helgi Eiríksson GR, Gunnar Sigurðs-
son GR, Hörður Arnarson GK og
Arnar Már Ólafsson GK. Fararstjóri
var Kristinn Ólafsson.
Árangur var góður, þ.e. að Helgi
og Arnar komust áfram í 1. umferð
holukeppninnar, en í höggleiknum
höfnuðu íslensku piltarnir í siðasta
sæti á 336 höggum.
World Cup (Alheimsmót atvinnu-
manna). Sigurður Pétursson og
Ragnar Ólafsson kepptu fyrir ísland
i undankeppni World Cup og urðu
þar i 8. sæti, sem er viðunanlegur ár-
angur.
Sérstaka athygli vakti snyrtilegur
klæðnaður þeirra félaga bæði utan
vallar sem innan.
Sveitakeppni klúbbliða Evrópu fór
fram á Aloha vellinum á Spáni. Sveit
GR hafði áunnið sér þátttökurétt. GR
sveitin var skipuð Sigurði Péturssyni,
Ragnari Ólafssyni og Hannesi Ey-
vindssyni. Skemmst er frá því að
segja að sveitin stóð sig frábærlega vel
og lenti í 4. sæti af 21, en Sigurður
Pétursson varð í 3.-4. sæti einstakl-
inga. Liðsstjóri var Björgúlfur Lúð-
víksson.
Birgir V. Halldórsson gaf 10 golf-
kerrur fyrir landsliðið, og vil ég hér
með þakka honum þessa höfðinglegu
gjöf.
HEIMSREISUKYLFINGAR
Heimsreisukylfingar komu til
landsins 17. sept. og léku á velli GR
en 19. sept. 1985 hófst heimsreisa
fjögurra kylfinga, þegar þeir hófu að
leika Jaðarsvöllinn á Akureyri. Þessir
fjórir kylfingar eru: Patric O’Bryan
frá Bandaríkjunum, fyrirliði hópsins,
Peter Tang frá Kína, Arnost Kopta
frá Tékkóslóvakíu og Vincent
TshabalalafráSuður Afríku. Einnig
voru með í förinni Bryan Murphy
ljósmyndari frá Skotlandi, Gerrit
Danremond kvikmyndagerðarmaður
og Jim Moritary blaðamaður frá
Bandaríkjunum.
Nyrsti 18 holu golfvöllur heims er
Jaðarsvöllurinn á Akureyri, hæsti
völlurinn er i Bolivíu og heitir hann
La Paz Country Club, og var hann
næstur á dagsskrá, síðan var haldið
til Nýja Sjálands og leikinn syðsti
völlurinn, en hann heitir Oreti Sands.
Austasti völlurinn er Fiji Golf Club á
Fijieyjum, en sá vestasti er Princeville
Makai Golf Course á eyjunni Kauai
í Hawaieyjaklasanum, en hann er á
lista yfir 100 bestu golfvelli Banda-
ríkjanna. Að lokum var leikið á
Furnace Creek vellinum, en hann er
í Dauðadalnum í Kaliforníu, liggur
um 90 m. undir sjávarmáli. Hug-
myndir eru uppi um að endurtaka
svona ferð, og tæki hún um 1 mán.
og kostaði um US $ 10000.-.
GOLFMAÐUR ÁRSINS
Sigurður Pétursson var kjörinn
golfmaður ársins af stjórn G.S.Í. Sig-
urður varð í 3. sæti í kjöri ,,íþrótta-
manns ársins“, en að því kjöri standa
íþróttafréttaritarar og, er þetta mesta
viðurkenning, sem kylfingur hefur
hlotið í þessu kjöri.
Árangur Sigurðar á liðnu ári var
frábær og er vonandi, að sem flestir
kylfingar hefji markvissari æfingar,
en þær hafa skilað Sigurði miklu.
Hann vann glæsilegan sigur á ís-
landsmótinu á Akureyri, þar sem
hann vann með 12 högga mun og setti
vallarmet, bæði á 18 holum (71 högg)
og 72 holum (294 högg). Hann lék á
150 höggum í höggleik Evrópumeist-
aramótsins og á 298 höggum á Norð-
urlandameistaramótinu, og i báðum
tilfellum var það besti árangur lands-
liðsmanna okkar.
Sigurður var í sveit GR, sem náði
frábærum árangri í Sveitakeppni Evr-
ópu, þar sem sveitin varð í 4. sæti,
jafnframt var árangur hans 3. besti
árangur einstaklings á mótinu. Sig-
urður komst á árinu næstur islenskra
kylfinga að verða atvinnumaður í
golfi. Hann féll út á næst síðasta þrepi
í keppni áhugamanna um atvinnu-
mannaskírteini á Spáni í desember, en
þar lék hann einn hringinn á 66 högg-
um, sem er 5 höggum undir pari, en
það er frábært.
LOKAORÐ
í skýrslu þessari hef ég rakið aðal-
þætti í starfi stjórnar Golfsambands
íslands á liðnu starfsári.
Ágætu þingfulltrúar. Mörg mál
verða lögð fyrir þetta þing og er ég
þess fullviss, að þið leggið ykkar af
mörkum, svo að þau verði farsællega
til lykta leidd.
Sem betur fer hafa dugmiklir ein-
staklingar jafnan fengist til starfa hjá
golfklúbbunum, og það er ekki hvað
síst þeim að þakka að golfhreyfingin
er nú orðin fjölmenn og sterk hér á
landi, og þeim fer stöðugt fjölgandi
sem taka þátt í golfiðkun.
Ég vil þakka meðstjórnarmönnum
mínum fyrir samstarfið, stjórnar-
mönnum klúbba og öðrum þeim sem
ég hef átt samskipti við á liðnu ári.
f.h. stjórnar Golfsambands
íslands
Konráð R. Bjarnason
forseti.
10
KYLFINGUR