Kylfingur - 29.04.1986, Page 33
Séð yfir Los Naranjos.
Þá rann fyrsti æfingadagurinn
upp og var leikið á velli, sem heitir
Mijas, en þessi völlur hentaði okkur
mjög vel að því leyti, að þar var ekk-
ert röff. Enda gekk okkur ágætlega
þennan æfingarhring, og spiluðum
við á níu undir pari, nettó. Þannig
að þetta lofaði góðu fyrir morgun-
daginn, sem var fyrsti keppnisdag-
urinn. Þá var komið að langþráðum
þriðjudegi, ekki var laust við að
menn væru dálítið spenntir. Við átt-
um rástíma kl. 11.30 og vorum
mættir vel tímanlega, hituðum upp
og æfðum púttin, sem reyndar áttu
eftir að valda okkur miklum erfið-
leikum. Loksins kom að því, að við
vorum kallaðir á teig. Þar var hóp-
urinn myndaður, um leið og út-
skýrðar voru staðarreglur. Ekki
þurftum við að kvarta undan byrj-
uninni, eftir þrjár holur vorum við
þrjá undir, þannig að miðað við
þessa byrjun og æfingahringinn
daginn áður, þá var útlitið mjög
bjart, en fljótt skipast veður i lofti,
og þegar inn var komið, þá vorum
við sex yfir pari. Ég held, að þarna
hafi fyrst og fremst verið um að
kenna skorti á keppnisreynslu. En
auðvitað vorum við staðráðnir í að
gera betur.
Þá var komið að miðvikudegin-
um, nú átti að spila á velli, sem heitir
Los Naranjos. Sá völlur er mjög op-
inn, en með trjáþyrpingu hér og þar
og leynir verulega á sér. Þetta var
einn af þeim dögum, þegar allt geng-
ur upp, og spiluðum við á nítján
undir pari. Það var því bjartsýnn
hópur, sem mætti árla dags á golf-
vellinum á öðrum keppnisdegi.
Við áttum rástíma kl. 13.20 en
vorum mættir kl. 10.30 og vorum
staðráðnir í því að mæta vel undir-
búnir og heitir á teig. Þegar komið
var á svæðið byrjuðum við á að fara
á Kaffiteríuna á staðnum, en þar sat
mótsstjórnin. Þegar þeir sáu okkur
létu þeir okkur vita, að við ættum
ekki rástíma fyrr en kl. 13.20, því að
þeir héldu, að við hefðum fengið vit-
lausan rástíma. Við útskýrðum fyrir
mótssjórn, að við ætluðum að byrja
á að fá okkur að borða og síðan að
fara út á æfingabraut og hita okkur
upp. Það var svo mikið hlegið að
þessu, að við slepptum að segja þeim
frá því, að við hefðum eytt einni
klukkustund úti á æfingabraut hjá
hótelinu. Sem sagt ekkert átti að
klikka þennan dag. Þrátt fyrir góð-
an undirbúning þá enduðum við
með tvo yfir, þegar inn var komið.
Sést best á þessum tölum, hver mun-
ur er á æfinga- og keppnishring.
Föstudagurinn var síðasti keppn-
isdagur. Nú áttum við rástíma kl.
10.20, þannig að farið var á fætur
kl. 8.30. Mikið hafði ringt um nótt-
ina, og var völlurinn mjög blautur.
Nú átti að taka því rólega, og ætluð-
um við okkur að mæta afslappaðir á
teig. Eftir að hafa borðað morgun-
mat í ró og næði fórum við í liðsbún-
ingana, en á leiðnni út hittum við
mótsstjórann, sem spurði okkur,
hvert við værum að fara. Við horfð-
um hver á annan og héldum að enn
væri verið að gera grín að okkur,
þannig að við fórum að hlæja. Þá
KYLFINGUR
33