Kylfingur - 29.04.1986, Síða 36
INNHEIMTA FÉLAGSGJALDA
í síðasta tölublaði Kylfings, sem
kom út í desember sl. voru félagar
GR eindregið hvattir til að greiða
félagsgjöld sín sem fyrst, þannig að
klúbbnum tækist að greiða gjald-
fallnar skuldir hið fyrsta. Nokkrir
traustir félagar brugðust vel við og
ber að þakka þeim. En staðreyndin
er sú, að allur þorri meðlima klúbbs-
ins á enn eftir að greiða gjöldin sín
að öllu leiti. Sjálfsagt er um að
kenna fjárskorti hjá sumum, en allt
of margir eru sinnulausir um þessa
hluti þar til á síðustu stundu, því
miður.
Þann 1. maí nk. falla gjöldin í
gjalddaga. Þeir sem hafa ekki þá
greitt að fullu missa réttindi sin sem
meðlimir að hluta til, þ.e. rétt til
leiks á völlum klúbbsins án greiðslu
vallargjalda í hvert sinn og þátttöku-
rétt í mótum, hvort sem um er að
ræða innanfélagsmót eða opin mót.
Þá er rétt að benda á samþykkt aðal-
fundar um hækkun gjaldanna um
10% á mánuði frá 5. júni.
Er hér með skorað á félaga GR að
greiða gjöld sín nú þegar, og eigi
síðar en þann 1. maí nk.
ÁTAK í FÉLAGSSTARFI
Undanfarin ár hafa farið fram
kröftugar umræður hjá félags-
mönnum G.R. um stöðu félagslífs í
klúbbnum, og hafa þær umræður
aðallega snúist um hversu dauft
félagslífið væri, en aðrir hafa talið,
að ekki sé hægt að halda uppi virku
félagslífi í svo stórum golfklúbb sem
G.R. er.
Stjórn G.R. er á öðru máli og hef-
ur sett sér það markmið að styrkja
félagslíf klúbbsins eins og vonandi
allir klúbbmeðlimir hafa hug til, en
það verður ekki gert nema með sam-
eiginlegu átaki klúbbmeðlima og
stjórnar G.R.
Fyrsti stórviðburðurinn í félagslífi
G.R. á þessu golftímabili var vor-
fagnaður í golfskálanum þ. 19. apríl
og var sérstaklega vel vandað til
þessarar skemmtunar.
G.R. kylfingar! Nú er lag, kom-
John Drummond og Martyn Knipe
AÐSTOÐARKENNARI
HJÁ JOHN DRUMMOND
John Drummond hefur ráðið til
sín aðstoðarkennara. Er hann ensk-
ur, Martyn Knipe að nafni. Hefur
um félagslífi klúbbsins í það horf
sem hugur okkar stendur til.
Með golfkveðju,
f.h. skemmtinefndar G.R.
Ólafur Jónsson.
GOLFSKÓLI GR
Golfnámskeið verða haldin í sum-
ar á vegum Golfklúbbs Reykjavíkur
fyrir pilta og stúlkur 12—14ára, þ.e.
fædd 1972, 73 og 74.
Námskeiðin verða í Grafarholti
og að Korpúlfsstöðum, og kenna
leiðbeinendur og golfkennari alla
þætti golfíþróttarinnar.
1. námskeið: 2.—13. júní.
hann öll tilskilin réttindi frá PGA í
Englandi og mun því verða John
styrk stoð á komandi sumri.
Kylfingur býður Martyn Knipe
velkominn til starfa.
2. námskeið: 16.—27. júní.
Hvert námskeið stendur yfir í 2
vikur, alla virka daga frá kl. 10—16.
Fleiri námskeið verða ef nauðsyn
krefur.
Þátttökugjald á hvert námskeið er
2000 kr., sem gildir áfram sem
sumarkort að Korpúlfsstöðum.
Innifalið eru m.a. áhöld á námskeið
og ferðir til og frá Grafarholti, Há-
marksfjöldi á námskeið er 16 þátt-
takendur.
Innritun fer fram í Grafarholti frá
19. maí í síma 84735.
Allar upplýsingar fúslegar veittar
í sama síma.
36
KYLFINGUR