Kylfingur - 29.04.1986, Page 38
KAPPLEIKJASKRÁ FYLGT
ÚR HLAÐI
Góðir félagar.
Kappleikjaskrá G.R.-inga er í
mjög föstu formi, fáar breyting-
ar eins og sjá má. Þó hefur sú
breyting orðið — vegna lélegrar
þátttöku — að keppni um Fann-
arsbikarinn breytist úr opnu
kvennamóti i opið öldungamót.
Hins vegar verður núna keppt í
kvennaflokki án forgjafar í
OLÍS-BP mótinu.
Ég vil geta þess, að eins og áð-
ur þá eru mót tímasett og fjöldi
þátttakenda frá fyrra ári gefinn
upp í sviga. Eins og félagsmönn-
um er kunnugt, þá fara um tutt-
ugu keppendur út á hverjum
klukkutíma, þess vegna geta þeir
aðilar sem ekki taka þátt i mótum
auðveldlega séð, hvenær þeir
geta hafið leik, eftir ræsingu á
hvert mót.
Reynslan hefur sýnt, að það
auðveldar mjög kappleikjahald
að gefa keppendum kost á að
skrá sig á fastan rástíma í mót-
um, og mun sá háttur verða hafð-
ur á í sumar.
í annað sinn vil ég hvetja kon-
ur til þátttöku í mótum, og vegna
misskilnings vil ég láta það koma
fram, að allir almennir kappleik-
ir eru jafnt fyrir konur sem karla.
Sú nýbreytni verður tekin upp
í sumar í innanfélagsmótum, að
keppendum verður gefinn kostur
á að velja sér teiga til að leika frá.
Tvær meginástæður eru fyrir
þessari nýjung. Sú fyrri er ósk
margra eldri kylfinga að fá að
leika af rauðum teigum, þar sem
þeir treysta sér illa á hvítu teig-
ana. Hin ástæðan snertir meist-
araflokksmenn klúbbsins. Þeir
leika alltof sjaldan af gulum teig-
um, þ.e. völl í fullri lengd, en það
er jú viðtekin regla í öllum mik-
ilsverður mótum, hvar sem er i
heiminum. Með því að leika af
gulum teigum í flest öllum mót-
um GR hljóta þeir að verða betri
kylfingar. Sama máli gegnir um
Kappleikjaskrá GR 1986
Maí
1. fimmtud. kl. 13.00 Einnarkylfukeppni.' (41)
10. laugard. — 9.00 Flaggakeppni.1 (45)
15. fimmtud. — 14.00 Arneson-skjöldurinn.1 (107)
17. laugard. 9.00 Hvítasunnubikar, undirbúningur.1 (64) (1. umferð sé lokið 20/5, 2. umferð 22/5 og 3. umferð 24/5.).5
18. sunnud. — 11.00 Maímót 15 ára og yngri.3 (7)
18. sunnud. — 13.00 Öldungamót, opið.1 (31)
22. fimmtud. — 14.00 MK-keppnin.1 (81)
24. laugard. — 13.00 Unglingamót 21 árs og yngri.4 (13)
25. sunnud. — 13.00 Hvítasunnubikar, úrslit.5 (2)
29. fimmtud. — 10.00 Opna Kasco mótið.4 (106)
31. laugard. — 13.00 Öldungamót.4 (24)
31. laugard. — 14.00 Vogue, opin kvennakeppni.3 (21)
Júní
5. fimmtud. — 14.00 Jason Clark.1 (93)
7. laugard. — 8.00 Olís-BP-mótið, opið, fyrri dagur.3 (162)
8. sunnud. — 8.00 Olís-BP-mótið, síðari dagur.3 (162)
12. fimmtud. 14.00 Henson-keppnin, foursome undirbúningur.1 (80) 1. umferð sé lokið 15/6, 2. umferð 17/6 og 3. umferð 19/6.5
14. laugard. — 9.00 Júnímót 15 ára og yngri.3 (10)
19. fimmtud. — 17.00 Nýliðamót að Korpúlfsstöðum.' (24)
20. föstud. — 16.00 Henson-keppnin, úrslit.5 (4)
20. föstud. — 20.00 Jónsmessumót.' (106)
22. sunnud. — 13.00 Hjóna- og parakeppni, greensome.1 (42)
24. þriðjud. — 9.00 Minolta Milljón, opið.3 (145)
27. föstud. — 20.00 Opna G.R. mótið, setning.
28. laugard. — 8.00 Opna G.R. mótið, fyrri dagur.4 (160)
29. sunnud. — 8.00 Opna G.R. mótið, síðari dagur.4 (160)
Júlí
1. Þriðjud. — 17.00 Nissan-Datsun, 18 ára og yngir, opið.3 (27)
3. fimmtud. — 17.00 Feðgakeppni, foursome.' (54)
5. laugard. — 14.00 Júlímót Rakarastofu Jörundar.' (79)
6. sunnud. — 13.00 Júlímót 15 ára og yngri.3 (6)
10. fimmtud. — 14.00 Meistaramót G.R.2 (140)
11. föstud. — 14.00 Meistaramót G.R.2 (140)
12. laugard. — 8.00 Meistaramót G.R.2 (140)
12. laugard. — 15.00 Berserkur og Flatarmeistari.2
13. sunnud. — 8.00 Meistaramót G.R.2 (140)
17. fimmtud. — 17.00 Nýliðamót að Korpúlfsstöðum.' (13)
18. föstud. — 14.00 Fyrirtækjakeppni G.S.Í.' (65)
Ágúst
7. fimmtud. — 13.00 Ágústmót 15 ára og yngri3 (7) (Verður leikið á landsbyggðinni).
7. fimmtud. — 17.00 Einherjakeppni G.R.' (12)
9. laugard. — 8.00 Nissan-mótið, stigamót.2 (35)
10. sunnudd. — 8.00 Nissan-mótið, stigamót.2 (35)
23. laugard. — 9.00 Keppni Jóns Agnars, 1. dagur.3 (6)
23. laugard. — 10.00 Fannarsbikarinn, opið öldungamót.'
24. sunnud. — 9.00 Keppni Jóns Agnars, 2. dagur.3 (6)
24. sunnud. — 10.00 Fannarsbikarinn, opið öldungamót.3
38
KYLFINGUR