Fréttablaðið - 24.11.2010, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Miðvikudagur
skoðun 16
24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Ævintýrið Leitin að jólunum verður sýnt í Þjóðleikhúsinu sjötta árið í röð en að jafnaði verða þrjár sýningar sérhvern laugardag og sunnudag klukkan 11., 13. og 14.30 til jóla. Ævin-
týrið er eftir Þorvald Þorsteinsson og sýningin er ríkulega hljóð-
skreytt með tónlist Árna Egilssonar við Jólasveinavísur Jóhannesar
úr Kötlum.
Hvaða lög skyldi tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson helst hlusta á í bílnum milli landshluta?
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát· Stórt op > auðvelt að hlaða· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
Ný sending
GALLABUXUR
3 síddir
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
24. nóvember 2010
276. tölublað 10. árgangur
ÖLDIN ÖLL
Ný bók í geysivinsælli ritröð
ÖLDIN OKKAR 1996–2000
SÁ YNGSTI BORÐAR
FRÍTT Í NÓVEMBER
Þetta gildir um alla hópa sem telja fjóra eða fleiri, eina skilyrðið er að allir panti sér máltíð.
Kynnið ykkur úrvalið
af sælkerakörfum
á ms.is
ms.is
Ostakörfur frá MS
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
Saga hjúkrunar komin út
Framlag hjúkrunarkvenna
víða falið.
tímamót 24
Mynd um hesta og menn
Benedikt Erlingsson gerir
sína fyrstu kvikmynd.
fólk 38
KJARAMÁL Forvígismenn vinnu-
veitenda og launþega, á opinbera
og almenna vinnumarkaðnum,
ætla að fara yfir komandi kjara-
samningsgerð á fundi á morgun.
Mun Magnús Pétursson ríkissátta-
semjari stýra fundinum.
„Það er nauðsynlegt að allir aðil-
ar vinnumarkaðarins komi saman
og ræði málin,“ segir Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, sem boðaði til
fundarins. Samtökin telja mikil-
vægt að allir séu samtaka í samn-
ingagerðinni, en flestir samningar
renna út í lok þessa mánaðar eða
næsta. „Við viljum að niðurstaðan
verði samningur til þriggja ára
með hóflegum launahækkunum,“
segir Vilhjálmur. Forsenda þess
sé að verðbólga verði lág og störf
skapist.
Aðspurður segir hann hugsan-
legt að út úr fundinum komi grunn-
ur að nýjum stöðugleikasáttmála.
„Við viljum kanna hvort menn séu
tilbúnir til að reyna að fara slíka
leið.“ Spurður hvort hann sé fyrir
fram bjartsýnn á að sú verði niður-
staðan segir hann: „Ég spyr, hvaða
betri leið er í boði? Ég held að það
sé engin betri leið í boði.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
vill fátt segja um möguleikann
á nýjum sáttmála en bendir hins
vegar á að á sambærilegum fundi í
febrúar 2009 hafi uppleggið að sátt-
málanum hinum fyrri orðið til.
Einnig bendir hann á að á árs-
fundi ASÍ fyrir mánuði hafi verið
ályktað að mikilvægt væri að efnt
yrði til víðtæks samstarfs og sam-
vinnu stjórnvalda, stjórnarand-
stöðu, atvinnurekenda og stéttar-
félaga á almennum og opinberum
vinnumarkaði við það verkefni að
fjölga störfum og auka og tryggja
kaupmátt launafólks.
Inntur álits á hugmyndum SA
um kjarasamning til þriggja ára
segir Gylfi að til að ræða þær þurfi
aðkomu ríkisvaldsins í efnahags- og
atvinnumálum. Þær forsendur liggi
ekki fyrir.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður
BSRB, segir að fyrir fundinum
liggi að kanna hvort einhverjar
línur liggi saman sem hægt sé að
vefa úr. „Við mætum með okkar
nesti og hlustum á aðra.“ - bþs
Vilja leggja grunninn að
nýjum stöðugleikasáttmála
Samstarf í komandi kjarasamningaviðræðum verður rætt á fundi aðila vinnumarkaðarins á morgun. Sam-
tök atvinnulífsins vilja stofna til nýs stöðugleikasáttmála. Talsmenn launþega eru varfærnir í yfirlýsingum.
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun mun
taka málefni Árbótar til skoðunar.
„Við förum örugglega í gegnum
þetta einhvern tímann, hvort sem
það verður fyrr eða seinna, það er
engin spurning,“ segir Sveinn Ara-
son ríkisendurskoðandi.
Fréttablaðið hefur undanfarna
tvo daga sagt frá því hvernig Árni
Páll Árnason, þáverandi félags-
málaráðherra, og Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra ákváðu
að greiða eigendum meðferðarheim-
ilisins Árbótar í
Þingeyjarsýslu
þrjátíu millj-
ónir króna í
bætur vegna
lokunar heimil-
isins. Þetta var
meðal annars
gert gegn vilja
forstjóra Barna-
verndarstofu og
vegna þrýstings frá þingmönnum
Norðausturkjördæmis. Fjármála-
ráðherra segir að sanngirnissjón-
armið hafi ráðið för. Barnavernd-
arstofa hefur þegar greitt tólf
milljónir. Ráðgert er að greiða þær
átján milljónir sem eftir standa
þegar Alþingi hefur afgreitt fjár-
aukalög.
Mál Árbótar voru rædd á Alþingi
í gær. Þar var meðal annars kallað
eftir aukinni siðvitund innan stjórn-
sýslunnar og því að þingmenn létu
af kjördæmapoti við fjárlagagerð.
- sh, th / sjá síðu 6
Engin spurning að Árbótarmálið verður skoðað að sögn ríkisendurskoðanda:
Ríkisendurskoðun mun skoða Árbót
SVEINN ARASON
ÁFRAM HÆGVIÐRI Í dag má bú-
ast við hæglætisveðri og breytilegri
vindátt. Víða eru horfur á bjartviðri
en SV-til og NA-lands verður heldur
skýjað og stöku él, einkum síðdeg-
is. Hlýjast allra syðst.
VEÐUR 4
2
-1
-2
-3
-2
UMHVERFISMÁL Bjargey Ólafsdóttir
myndlistarmaður heldur á Lang-
jökul í dag ásamt föruneyti þar
sem hún ætlar
að mála risa-
vaxna mynd af
ísbirni. Myndin
verður 90 sinn-
um 60 metrar að
stærð og gerð
úr matarlit.
Verkið er
liður í alþjóð-
legu verkefni,
350 Earth.
Listamenn og sjálfboðaliðar á
sautján stöðum víðs vegar um
heiminn búa til verk sem minna á
áhrif loftlagsbreytinga. Öll verkin
eru nógu stór til að sjást úr geimn-
um og verða mynduð úr þyrlum og
gervihnöttum. Meðal listamann-
anna er Thom Yorke, söngvari
Radiohead, sem setur upp verk
með að minnsta kosti tvö þúsund
sjálfboðaliðum í Brighton.
- bs / sjá síðu 28
Listaverk sýnileg úr geimnum:
Málar ísbjörn á
Langjökul í dag
BJARGEY
ÓLAFSDÓTTIR
Ég held að það sé
engin betri leið í boði.
VILHJÁLMUR EGILSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SAMTAKA ATVINNULÍFSINS
JÓLAÞORPIÐ RÍS Aðeins þrír dagar eru þangað til jólaþorpið í Hafnarfirði opnar. Húsin rísa hvert af
öðru og glæsilegt jólatré er komið á sinn stað. Eins og áður er það danskur vinarbær Hafnarfjarðar, Friðriksberg,
sem gefur tréð. Eins og fyrri ár leggja leikskólakrakkar lokahöndina á jólaundirbúninginn í þorpinu þegar þeir
skreyta trén sem umlykja þorpið á föstudaginn kemur. Þetta árið verða þau um 700 talsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Arsenal í vanda
Milan og Roma eru í fínum
málum í Meistaradeildinni
en Arsenal er í vandræðum.
sport 34