Fréttablaðið - 24.11.2010, Blaðsíða 2
2 24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Garðar, verður myndbandið
klassý eða artý?
„Það verður Klassartý.“
Garðar Örn Arnarson og Erlingur Jack
Guðmundsson, nemar í kvikmyndafræð-
um, tóku upp nýtt myndband hljómsveit-
arinnar vinsælu Klassart.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Bandarísk
stjórnvöld íhuga aðgerðir vegna
hvalveiða Íslendinga. Gary
Locke, viðskiptaráðherra Banda-
ríkjanna, ýjar að þessu í yfirlýs-
ingu sem sagt er frá á vef banda-
ríska viðskiptaráðuneytisins.
Í yfirlýsingunni gagnrýnir
Gary Locke harðlega hvalveiðar
Íslendinga og alþjóðleg viðskipti
með langreyðarkjöt. Hann segir
að með viðskiptunum sé Ísland að
brjóta alþjóðlegt bann við hval-
veiðum.
„Við hvetjum Ísland til þess að
láta af alþjóðaviðskiptum með
hvalkjöt og vinna með alþjóða-
samfélaginu að því að vernda
hvalastofna,“ segir Gary Locke í
yfirlýsingunni.
Hann segir að það sé óásættan-
legt að Íslendingar veiði hvali án
samráðs við Alþjóðahvalveiðiráð-
ið, þannig að aðildarríki þess eða
stofnanir þess geti ekki fylgst
með veiðunum. - jhh
Bandarísk stjórnvöld ósátt:
Íhuga aðgerðir
vegna hvalveiða
SPURNING DAGSINS
AÞENA - HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ HAÍTÍ? EFTIR MARGRÉTI ÖRNÓLFSDÓTTUR
HVAÐ ER MÁLIÐ?
Aþena
(ekki höfuðborgin í
Grikklandi ;)
FJÖRUVERÐLAUNIN
Í FLOKKI UNGLINGA
BÓKA
„Bráðskemmti
leg
bók, fjörug og f
yndin...,
ævintýraleg og
nútímaleg,“
–H. Ó. Morgun
blaðið
(Um fyrri bókin
a)
„Margrét Örnólfsdóttirvarpar áreynslulaust upp hæfilega hversdagslegri og hæfilega ævintýralegri mynd af heimi krakka í dag.“ –Ú. D. bokmenntir.is(Um fyrri bókina)
ÖRYGGISMÁL Foreldrar barna í
Austurbæjarskóla telja öryggi
þeirra á skólalóðinni ógnað af
umferð flutningabíla frá Orku-
veitu Reykjavíkur.
Orkuveitan á húsnæði við suður-
enda Austurbæjarskólans. Þar var
áður spenni-
stöð en um ára-
bil hefur verið
þar geymsla.
Fyrirtækið
á umferðar-
rétt um lóðina.
„Breytt nýt-
ing húsnæðis-
ins hefur meðal
annars haft í för
með sér flutn-
inga á risavöxnum spólum, vinnu-
vélum og umferð þungra ökutækja
á skólalóðinni. Hefur undirrituð
orðið vitni að meðal annars flutn-
ingi vörubíls á lyfturum tvíveg-
is í sömu vikunni nú í nóvember.
Var einungis einn starfsmaður
með í för,“ segir í bréfi sem for-
maður Foreldrafélags Austurbæj-
arskóla, Birgitta Bára Hassestein,
sendi framkvæmda- og eignasviði
Reykjavíkurborgar 15. nóvem-
ber.
Í bréfi til byggingarfulltrúa í
febrúar á þessu ári lýsti Birgitta
þungum áhyggjum starfsmanna og
foreldra. Meðal annars sagðist hún
hafa séð vörubíl með tengivagni,
sem á hafi verið allt að þriggja
metra háar spólur, taka knappar
beygjur áður en hann sneri við
og bakkaði að geymslunni. „Hver
sem verður vitni að þessu áttar sig
á að þetta getur verið stórhættu-
legt,“ segir í bréfinu.
Byggingarfulltrúi bað um skýr-
ingar frá Orkuveitunni. Í svari
fyrirtækisins segir að fróðustu
menn viti ekki til að slys hafi orðið
á fólki við umrætt húsnæði frá því
að það var tekið í notkun. Geymsl-
an sé notuð fyrir mjög sérhæfða
varahluti sem örsjaldan þurfi að
nálgast.
„Þá hefur ávallt verið gætt
fyllsta öryggis gagnvart umferð
og fólki (nemendum) í nágrenni
stöðvarinnar,“ segir í svari Orku-
veitunnar sem enn fremur upplýs-
ir að taka eigi húsnæðið úr notkun
á næstu árum.
Í kjölfar skoðunar á málinu
sagðist byggingarfulltrúi í apríl
ekki mundu aðhafast frekar.
„En til þess að tryggja öryggi
skólabarna er lagt til að skóla-
stjórn Austurbæjarskóla og OR
komi sér saman um setningu
öryggisreglna sem viðhafðar
verði vegna aðkomu að húsnæð-
inu,“ segir í svari til formanns
foreldrafélagsins.
Pétur Hafþór Jónsson, tónlistar-
kennari í Austurbæjarskóla, segir
bæði mengun og slysahættu af
vörubílum Okruveitunnar. „Það
er fáránlegt að þetta skuli vera
inni á skólalóð. Slysin gera ekki
boð á undan sér og það er meng-
un af þessu. Mér finnst að svona
stöndug fyrirtæki eins og Orku-
veitan eigi að sjá sóma sinn í því
að fara með þetta annað en vera
ekki að þumbast við.“
gar@frettabladid.is
Umferð flutningabíla
á skólalóð mótmælt
Foreldrafélag Austurbæjarskóla vill að Orkuveitunni verði bannað að fara um
skólalóðina á skólatíma með þungaflutninga að geymslu OR á lóðinni. Orku-
veitan segir umferðina ekki mikla og að fyllsta öryggis nemendanna sé gætt.
PÉTUR HAFÞÓR
JÓNSSON
GEYMSLA ORKUVEITUNNAR Orkuveitan notar húsnæði við suðurenda Austurbæjar-
skóla sem geymslu og fer um skólalóðina með flutningabíla. MYND/PÉTUR HAFÞÓR JÓNSSON
REYKJAVÍK Til greina kemur að
breyta afgreiðslutíma sundlauga
Reykjavíkurborgar til að hag-
ræða í rekstri, Hugmyndir þess
efnis frá Íþrótta- og tómstunda-
ráði (ÍTR) verða til umfjöllunar
við gerð fjárhagsáætlunar næsta
árs.
Diljá Ámundadóttir, formaður
ÍTR, segir við Fréttablaðið að
ekkert hafi enn verið ákveðið.
Niðurskurður sé þó nauðsynleg-
ur, en tillögurnar ættu ekki að
koma of illa við borgarbúa.
Sjö sundlaugar eru undir stjórn
ÍTR og segir Diljá að það gefi
tækifæri til hagræðingar.
„Við gætum mögulega spar-
að mikla fjármuni með því að
breyta afgreiðslutímanum lít-
illega því laugarnar þurfa ekki
allar að vera opnar frá hálf sjö og
fram á kvöld. Ein eða tvær yrðu
með óbreyttan afgreiðslutíma, en
það er möguleiki með að rótera
hinum, þar sem sumar gætu lokað
fyrr tvo eða þrjá daga í viku. Með
þessu gætum við sparað allt að tíu
milljónir króna.“
Diljá segir að engar uppsagnir
séu fyrirhugaðar í þessum áætl-
unum, heldur yrði vaktafyrir-
komulagi breytt. Hún vildi ekki
tjá sig um mögulega skerðingu á
starfshlutfalli starfsfólks, enda
lægi engin ákvörðun fyrir um
slíkt. - þj
Niðurskurðartillögur um sundlaugar Reykjavíkurborgar:
Íhuga styttri afgreiðslutíma
HAGRÆTT Í LAUGUNUM Í tillögum ÍTR
er gert ráð fyrir að stytta opnunartíma
sumra sundlauga í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sjö sundlaugar heyra undir ÍTR:
■ Árbæjarlaug
■ Breiðholtslaug
■ Grafarvogslaug
■ Klébergslaug
■ Laugardalslaug
■ Sundhöllin
■ Vesturbæjarlaug
Laugarnar eru jafnan
opnar frá 6.30 til 22.
Laugar bæjarins
SJÁVARÚTVEGUR Nefnd um erlenda
fjárfestingu hefur skilað ráð-
herra áliti vegna kaupa Nau-
tilus Fisheries Ltd. á 43,75 pró-
senta hlut í Stormi Seafood
ehf. sem nefndin hefur haft til
umfjöllunar. Nautilus er í eigu
kínverskra aðila. Jón Bjarna-
son sjávarútvegsráðherra efað-
ist um hvort eignarhluturinn
samræmdist lögum um erlenda
fjárfestingu.
Það er hins vegar mat nefnd-
arinnar að ekkert sé við kaupin
að athuga. „Í lögum komi fram
að skilyrði fyrir erlendu eign-
arhaldi séu að slíkt fyrirtæki
sé undir íslenskum yfirráðum
og beint og óbeint eignarhald
erlends aðila megi vera upp-
safnað allt að 49 prósent, segir
í tilkynningu frá efnahags- og
viðskiptaráðuneytinu.
- shá
Kínverskt eignarhald í Stormi:
Ekkert athuga-
vert við eignina
DÓMSMÁL Síbrotakona skal sæta
gæsluvarðhaldi þar til dómur
gengur í máli hennar, þó ekki
lengur en til 17. desember, sam-
kvæmt dómi Hæstaréttar.
Konunni hefur verið gefið að
sök á fjórða tug auðgunarbrota,
auk umferðarlagabrota, nytja-
stuldar og líkamsárásar. Um
er að ræða tvær brotahrinur. Í
millitíðinni afplánaði hún tólf
mánaða refsidóm. Yfirgnæfandi
líkur séu á því að kærða muni
halda áfram brotastarfsemi fari
hún frjáls ferða sinna. - jss
Á fjórða tug auðgunarbrota:
Síbrotakona í
gæsluvarðhaldi
ÍRLAND, AP Pólitísk upplausn blas-
ir við á Írlandi eftir að stjórnvöld
gáfust upp á að leysa bankakrepp-
una upp á eigin spýtur.
Brian Cowen forsætisráðherra
hefur boðað til kosninga í byrj-
un næsta árs að kröfu Græn-
ingja, sem vilja ekki vera lengur
í stjórnarsamstarfi. Græningjar
hafa þó lofað að styðja fjárlög
næsta árs, sem lögð verða fram 7.
desember.
Fjárlagahalli Írlands verður
32 prósent á þessu ári, hærri en
þekkst hefur í Evrópu frá stríðs-
lokum.
Evrópusambandið og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hafa ákveð-
ið að koma Írlandi til hjálpar,
en Bretar lofa einnig veglegri
aðstoð. - gb
Efnahagsástandið á Írlandi:
Pólitísk upp-
lausn blasir við
SAMGÖNGUR Færri nota nú einkabíl-
inn til að fara til og frá vinnu og
færri grunnskólabörn eru keyrð í
skólann en árin 2009 og 2008. Reið-
hjól eru aftur á móti orðin vinsælli.
Þetta kemur fram í árlegri ferða-
venjukönnun Umhverfis- og sam-
göngusviðs Reykjavíkurborgar.
Ferðavenjur Reykvíkinga hafa
breyst á þann veg að einkabíllinn er
minna notaður en áður. Fleiri ferð-
ast á hjóli eða í strætó nú en gert
var árið 2009, sérstaklega í efri
byggðum borgarinnar. Færri fara
á bíl sem bílstjórar til vinnu eða í
skóla, eða 65 prósent árið 2010 sam-
anborið við 67 prósent árið 2009 og
73 prósent árið 2008. Í sömu könn-
un kemur fram að 71 prósent íbúa
í nágrannasveitarfélögunum fer
þessara erinda á einkabíl.
Árið 2009 voru 29 prósent grunn-
skólabarna í Reykjavík keyrð í skól-
ann en 26 prósent árið 2010. Færri
reykvísk börn ganga í skólann, eða
65 prósent árið 2010 í samanburði
við 67 prósent árið 2009, en hins
vegar fjölgar börnum sem hjóla í
skólann úr sex prósentum í níu.
- shá
Fleiri kjósa að hjóla til vinnu eða nota almenningssamgöngur:
Ferðavenjurnar hafa breyst
HJÓLANDI Hægt og bítandi er reiðhjólið
að vinna á sem ferðamáti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KYNFERÐISBROT Sigríður J. Hjalte-
sted, aðstoðarsaksóknari hjá lög-
reglustjóranum á höfuðborgar-
svæðinu, segir að ungmenni sem
eyða miklum tíma á samskiptasíð-
um á netinu og í SMS-samskipti
séu líklegri til að verða fórnar-
lömb kynferðsbrotamanna.
Erlend könnun hafi sýnt að
unglingar sem eyða miklum tíma
í slíkar samskiptasíður séu í meiri
hættu en aðrir.
„Þessi rannsókn er alveg í takt
við upplifun okkar hjá lögreglunni
og undirstrikar þörfina á því að
taka mál þessi föstum tökum með
markmiðssetningu og samstilltu
átaki í forvörnum,“ segir Sigríður
í aðsendri grein í Fréttablaðinu í
dag. - pg / sjá síðu 18
Unglingar fari varlega á netinu:
Stórnotendur
netsins líklegri
fórnarlömb