Fréttablaðið - 24.11.2010, Blaðsíða 10
24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Lausn á hluta hús-
næðisvanda Héraðsdóms Reykja-
víkur er í augsýn.
Í bígerð er að dómurinn leigi
eina hæð í Austurstræti 17 og
leysi með því þörfina fyrir bætta
starfsaðstöðu dómara, aðstoðar-
manna og dómritara.
Húsið er sambyggt húsi Hér-
aðsdóms við Lækjartorg. Er ætl-
unin að opna á milli húsanna enda
augljósir kostir því samfara.
Nauðsyn stærri húsakosts
dómsins helgast af stórauknu
álagi eftir fall bankanna. Er
fyrirséð að mörg dómsmál,
stór og smá, verði höfðuð vegna
hrunsins. Þegar hefur fjöldi
mála borist vegna ágreinings
um kröfur í bú bankanna og ljóst
að slíkum málum mun fjölga. Þá
eru yfirvofandi stór mál í fram-
haldi af rannsóknum sérstaks
saksóknara.
Til að mæta auknu álagi dóms-
ins hefur dómurum verið fjölgað
og samkvæmt frumvarpi dóms-
málaráðherra á að fjölga þeim
enn frekar.
Helgi I. Jónsson, dómstjóri
Héraðsdóms Reykjavíkur, segir
að húsnæðið í Austurstræti muni
mæta þörfinni fyrir skrifstofur
en eftir standi vandi varðandi
dómsali. Hans mat sé að þörf
verði fyrir tvo nýja sali sem
þyrftu að vera stærri en stærsti
salur dómsins í dag, salur 101.
„Það liggur svo sem ekki fyrir
hvað margir verða í hverju máli
en það þarf að vera aðstaða fyrir
verjendur og sakborninga og svo
má gera ráð fyrir að það verði
einhver fjöldi áhorfenda. Það
þarf líka að koma til móts við þær
þarfir,“ segir Helgi.
Aðspurður segir hann ekkert
liggja fyrir um hvar viðbótar-
dómsalirnir geti verið. Nú verði
farið að horfa til þess. Hentugt
væri að hafa þá í miðborginni,
nærri höfuðstöðvum dómsins.
Útlit er fyrir að þörf verði fyrir
nýju dómsalina tvo á síðari hluta
næsta árs.
Nú starfa 25 dómarar við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur. Fleiri bæt-
ast við, verði frumvarp dóms-
málaráðherra að lögum. Er enn
frekari fjölgun dómara áformuð
þegar fram í sækir.
Helgi segir að þegar stóru
málin frá sérstökum saksóknara
komi til meðferðar kalli það á að
margir dómarar verði uppteknir
í einu máli í marga mánuði. Þeir
sinni ekki öðru á meðan.
bjorn@frettabladid.is
Stjórnlagaþings
frambjóðandi
Björn Einarsson
læknir og heimspekinemi
Nr. 6340
Heimasíða með myndskeiði
www.bjorneinarsson.is
Málskotsréttin til
minni hluta Alþingis,
eflum rökræðuna,
burt með kappræðuna
HJÁLPARSTARF HEIMA OG HEIMAN
HELMINGUR FRAMLAGA RENNUR TIL AÐSTOÐAR INNANLANDS
Fundur verður haldinn um lífeyrissparnað fyrir
félagsmenn VM í VM húsinu á Stórhöfða 25, 4. hæð.
Sérfræðingar Íslandsbanka koma og fara yfir lífeyrismál
félagsmanna og kynna kosti viðbótarlífeyrissparnaðar
sem er eitt hagstæðasta sparnaðarformið í dag.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum VM.
Vinsamlegast skráið ykkur á vm@vm.is.
Fundur um
lífeyrissparnað
Fimmtudagur 25. nóvember kl. 18.00
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.
AUSTURSTRÆTI Héraðsdómur Reykjavíkur mun breiða úr sér í miðborginni þegar
hluti starfsemi hans færist yfir í Austurstræti 17. Húsið er í dag oft kennt við 10-11
enda slík verslun á jarðhæðinni. Lengst af var það nefnt eftir kaup- og athafnamönn-
unum Silla og Valda sem létu reisa það og ráku í því verslun. Ferðaskrifstofan Útsýn
var lengi á annarri hæðinni. Húsið var tekið í gagnið 1965. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vilja tvo stóra
dómsali í húsi
Silla og Valda
Héraðsdómur Reykjavíkur hyggst leigja hæð í húsi
Silla og Valda við Austurstræti. Það leysir þörf fyrir
stærra skrifstofurými dómsins. Óleyst er yfirvofandi
þörf fyrir fleiri dómsali. Tvo stóra sali vantar.
NEYTENDUR Rökstuddur grunur leik-
ur á að salmonella hafi komið upp
í kjúklingaslátrun í einum kjúkl-
ingahópi Reykjagarðs, framleið-
anda Holtakjúklings. Fyrirtækið
hefur nú þegar innkallað vörur með
rekjanleikanúmerið 002-10-41-3-05
í varúðarskyni. Þó er talið að fólk
smitist ekki af salmonellu úr kjúkl-
ingunum ef kjötið er hitað svo að
kjarnhiti nái yfir 72 gráður.
Jarle Reiersen, dýralæknir og
framleiðslustjóri hjá Reykjagarði,
segir fyrirtækið hafa tekið þá
ákvörðun að kalla inn vörurnar og
skipta þeim út í varúðarskyni.
„Við viljum gera allt sem í okkar
valdi stendur til þess að fyllstu
öryggiskröfum sé fylgt,“ segir
Jarle. „Salmonellan hefur ekki
verið formlega staðfest en þessi
ræktun sem um ræðir er grun-
samleg.“
Sýni úr hópnum hafa verið rann-
sökuð samkvæmt eftirlitsáætlun
Matvælastofnunar áður en kjúkl-
ingunum var slátrað, án þess að
salmonella hafi fundist. Þau eru
enn í greiningu hjá Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum og verða send til staðfest-
ingar á sýkladeild Landspítalans.
Neytendur sem hafa keypt kjúkl-
inga með þessu rekjanleikanúmeri
eru beðnir um að skila vörunum.
- sv
Rökstuddur grunur leikur á að salmonella hafi komið upp hjá Reykjagarði:
Innkalla kjúkling úr verslunum
REYKJAGARÐUR Framleiðendur Holta
kjúklings hafa nú innkallað vörur vegna
sterks gruns um salmonellusmit í
sláturhúsi.