Fréttablaðið - 24.11.2010, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 24. nóvember 2010 13
VILDARÞJÓNUSTA BYRS
Argentína steikhús
15 % afsláttur af mat.
Atlantsolía
Góður afsláttur á hvern eldsneytislítra. Sæktu um á byr.is.
Bláa lónið
1.500 króna aðgangseyrir fyrir fullorðna.
Caruso
15 % afsláttur af mat.
Hreyfing
Frítt vikukort og 20% afsláttur af Betri aðild með margskonar fríðindum.
Express ferðir
Tilboðsferðir til Berlínar í janúar og febrúar.
Sambíó
Tveir fyrir einn alla mánudaga.
Þjóðleikhúsið
20% afsláttur af almennu miðaverði.
Vertu í Vildarþjónustu Byrs og fáðu aukin fríðindi, persónulega
þjónustu og frábær sértilboð hjá samstarfsaðilum. Til að geta
nýtt þér tilboðin þarftu að vera í Vildarþjónustu Byrs og greiða
með Byr debet- eða kreditkorti.
Ert þú örugglega að
fá bestu þjónustuna…
…og bestu tilboðin?
BYR | Sími 575 4000 | www.byr.is
DAVID CAMERON Býður forsætisráðherra
Íslands og fleiri ríkja til London.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRETLAND, AP David Cameron,
forsætisráðherra Bretlands,
hefur boðið leiðtogum allra
Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna til tveggja daga
ráðstefnu í London 19. og 20.
janúar.
Tilgangur fundarins virðist
vera sá, að bæta tengsl Bret-
lands við litlu löndin í norðan-
verðri Evrópu. Cameron segir
þessi níu lönd standa frammi
fyrir sameiginlegum verkefn-
um, en útskýrir ekki hver þau
eru.
„Við ætlum að hittast í Lond-
on til að hittast og fræðast og
grípa á lofti hugmyndir,“ segir
Cameron. - gb
Cameron býður til fundar:
Vill bæta tengsl
við ríki í norðri
TENGSL Mikil tengsl eru milli heila-
blóðfalls og skilnaðar foreldra. Myndin
tengist efni fréttarinnar ekki beint.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VÍSINDI Fólk sem upplifir skilnað
foreldra sinna sem börn er ríf-
lega tvisvar sinnum líklegra en
aðrir til að fá heilablóðfall, sam-
kvæmt niðurstöðum viðamikill-
ar rannsóknar vísindamanna við
Toronto-háskóla í Kanada.
„Það kom okkur verulega á
óvart að sjá svo mikil tengsl
milli heilablóðfalls og skilnað-
ar foreldra,“ segir Esme Fuller-
Thomson, einn vísindamann-
anna.
Eftir að orsakir eins og reyk-
ingar, offitu, ástundun líkams-
ræktar og áfengisneyslu höfðu
verið skildar frá er niðurstaðan
sú að skilnaðarbörn séu 2,2 sinn-
um líklegri til að fá heilablóðfall
einhvern tíma á ævinni. - bj
Skilnaðarbörn í áhættuhópi:
Tvöfaldar líkur
á heilablóðfalli
FÉLAGSMÁL Samkomulag um fag-
legt og fjárhagslegt fyrirkomu-
lag á tilfærslu málefna fatlaðra
til sveitarfélaganna var undir-
ritað í gær. Frumvarp til laga
um tilfærsluna verður lagt fyrir
Alþingi á næstu dögum. Málefni
fatlaðra færast til sveitarfélag-
anna 1. janúar 2011.
Flutningur málaflokksins varð-
ar um 2.500 einstaklinga sem
þurfa þjónustu vegna fötlunar
sinnar og um 1.500 starfsmenn í
rúmlega þúsund stöðugildum sem
annast þjónustuna. Við yfirfærsl-
una skipta langflestir starfsmenn
um vinnuveitanda og verða engar
breytingar á kjörum þeirra eða
réttindum.
Störf um sextíu starfsmanna á
svæðisskrifstofum málefna fatl-
aðra verða lögð niður en sveitar-
félögin munu leitast við að bjóða
sem flestum þeirra störf á sínum
vegum.
Þjónustuþættir sem sveitar-
félögin taka við eru sambýli,
áfangastaðir, frekari liðveisla við
íbúa í þjónustu- og íbúðakjörnum
og í sjálfstæðri búsetu, hæfing-
arstöðvar og dagvistarstofnanir,
verndaðir vinnustaðir og atvinna
með stuðningi, heimili fyrir börn
og skammtímavistanir.
- shá
Samkomulag undirritað um tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna:
Kjör og réttindi verða óbreytt
BREYTING Á NÝJU ÁRI Málið varðar
2.500 manns sem þurfa þjónustu vegna
fötlunar og 1.500 starfsmenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNTAMÁL Félag kennara í
Menntaskólanum í Reykjavík
varar við frekari niðurskurði í
framlögum til framhaldsskóla.
Ósýnt sé að skólar geti öllu leng-
ur sinnt lögbundnu hlutverki
sínu með áframhaldandi niður-
skurði.
Þá segir í ályktun að sérstaða
MR sé í hættu vegna fyrirsjáan-
legs niðurskurðar á sérhæfðum
námsbrautum. Litlir námshópar,
svo sem í fornmálum og eðlis-
og stærðfræði, kunni að verða
felldir niður. - bþs
Kennarar mótmæla sparnaði:
Telja sérstöðu
MR í hættu
LÖGREGLUMÁL Stúlkan sem sást
taka fimm úlpur úr fatahenginu í
Valhúsaskóla í fyrramorgun var
ófundin síðdegis í gær. Hún sást
greinilega á öryggismyndavélum.
Guðlaug Sturlaugsdóttir, skóla-
stjóri í Valhúsaskóla, segir málið
hafa verið sent til lögreglunnar.
Jafnframt hafi verið send tilkynn-
ing um þjófnaðinn í aðra grunn-
skóla til þess að vara fólk við.
Úlpurnar sem stolið var voru
frá 66° Norður. Slíkar úlpur
geta kostað allt að sjötíu þúsund
krónur. - jss
Úlpnaþjófs leitað:
Gögn send til
lögreglunnar