Fréttablaðið - 24.11.2010, Side 18
18 24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Það hlýtur að teljast sjálfsögð krafa að nauðganir, rétt eins
og aðrir alvarlegir glæpir, eigi sér
ekki stað. Séum við raunsæ gerum
við hins vegar „aðeins“ þá kröfu að
fækka nauðgunum. Ef gengið er út
frá að þetta sé markmiðið er næst
að spyrja sig hvaða leiðir séu væn-
legastar til að ná því. Sumir hafa
lagt á það áherslu að nauðsynlegt sé
að fjölga sakfellingum í nauðgunar-
málum. Með því móti fái brotaþol-
ar staðfestingu á því að hinn ákærði
hafi brotið gegn þeim. Einnig séu
ákveðin varnaðaráhrif í því fólgin.
En hvernig er unnt að fjölga sak-
fellingum í nauðgunarmálum? Er
það gert með því að finna leiðir til
þess að ýta undir fleiri kærur og
stuðla að fleiri ákærum í þessum
málaflokki? Eða er það gert með
því að breyta gildandi lögum? Það
er staðreynd að fleiri kærur þýðir
ekki endilega að þau mál séu þar
með talin líkleg til sakfellis og leiði
til útgáfu ákæru. Það er jú skil-
yrði samkvæmt réttarfarslögum að
ekki skuli gefa út ákæru nema mál
sé talið líklegt til sakfellis. Fleiri
ákærur sem gefnar væru út á skjön
við þessa meginreglu myndu vænt-
anlega þýða fleiri sýknudóma. Og
hvað áhrif hefði það ef sýknudóm-
um fjölgaði til mikilla muna? Yrði
það til þess að draga úr tiltrú á rétt-
arkerfið og kjarkinn úr brotaþolum
til þess að leggja fram kæru? Tölur
sýna að sýknað er í 30 til 50% allra
mála í héraði sem ákært var í tíma-
bilið 2005 til 2010 sem er í algjöru
ósamræmi við sýknuhlutfall í öðrum
málaflokkum. Það bendir til þess að
frekar séu gefnar út ákærur í vafa-
tilvikum í þessum málaflokki en
öðrum.
Lagabreytingar einar sér eru held-
ur ekki trygging fyrir fleiri sakfell-
ingum og séu þær vanhugsaðar eru
þær gagnslausar. Höfum það einn-
ig í huga að hvorki sakfelling hins
meinta nauðgara né sýkna verður til
þess að bæta brotaþola það andlega
tjón sem hann hefur orðið fyrir. Að
mínu mati er hvorug ofangreindra
leiða vænleg til þess að stemma stigu
við nauðgunarbrotum. Það skiptir
hins vegar miklu máli að allir sem að
þessum málum koma séu samstíga í
því að aðstoða brotaþola og hvetja og
sjá til þess að leiðin sé greið þegar
hann er reiðubúinn til þess að stíga
fram. Hins vegar verður að fara var-
lega í að taka sjálfsákvörðunarrétt
af einstaklingnum þegar kemur að
því að kæra, enda er það hann sem
þarf að vera andlega reiðubúinn til
þess að takast á við það sem fram-
undan er. Hætt er við að of mikill
þrýstingur í upphafi kunni að fæla
brotaþola frá því að kæra.
Hvernig stemmum við þá stigu
við nauðgunum? Forvarnir hljóta
að koma upp í huga fólks en það er
viðurkennd aðferð til þess að fyrir-
byggja hið óæskilega eða ólíðandi.
Sumir telja að með því að nefna for-
varnir í þessu samhengi, þ.e. í tengsl-
um við nauðganir, sé verið að dreifa
athyglinni frá því sem máli skiptir
og láta þolandann einan axla ábyrgð-
ina. En spyrja má á móti: „Hvern-
ig getur það verið öfugsnúið að gera
einstakling betur í stakk búinn til
þess að verja sig eða takast á við
ákveðnar aðstæður, sem ella myndu
vera honum ofviða?“ Og spyrja má
einnig, „Hvernig er annað hægt en
að beina kastljósinu líka að gerand-
anum, þegar talað er um forvarnir í
tengslum við nauðganir.“
Við sem komum að nauðgunar-
málum hjá lögreglunni höfum orðið
vör við það í síauknum mæli hversu
nauðsynlegt er að hugað verði betur
að forvörnum. Í fyrsta lagi ber að
nefna það að málum hefur fjölgað
þar sem áfengi- og fíkniefni koma
við sögu með tilheyrandi sönnun-
arvanda sem tengist minnisleysi
beggja aðila svo og vitna ef þau eru
þá til staðar. Fyrir kemur að nokkr-
ir dagar líða þar til brotaþoli fær
samhengi í það sem gerðist og er
þá sönnunargögnum enn síður til
að dreifa, svo sem lífssýnum, og
áfengismælingar skila engu. Nokk-
uð algengt er að brotaþoli geti ekki
lýst gerandanum sem er oft ein-
hver sem gefur sig á tal við brota-
þola eftir að hann er orðinn viðskila
við félaga sína. Í þessu sambandi
má leggja áherslu á eftirlitsmynda-
vélar sem geta haft mikið að segja.
Skoða þarf hvort þeim mætti fjölga
auk þess sem gæði þeirra þurfa að
vera betri.
Hið nýja samskiptamynstur fólks
í dag, einkum fólks sem „fæðst“
hefur inn í þessa tækni, hefur komið
niður á hæfni þeirra til þess að eiga
eðlileg samskipti í daglegu lífi. Æ
fleiri mál rata inn á borð lögregl-
unnar þar sem sönnunarstaða er
erfið vegna þessa. Mörkin á milli
þess hvenær kynmök fara fram
með samþykki beggja og hvenær
ekki verða æ óljósari. Fólk stofnar
til kynna á netinu og spjallar við
aðila sem það telur vera „vin“ sinn
eftir nokkurra daga kynni. Þær
samræður gefa oft fyrirheit um
það sem muni gerast þegar kemur
að því að hittast. Þegar á hólminn
er komið finnst öðrum aðilanum,
sem oftast er kona, erfitt eða nán-
ast óhugsandi að „hætta við“. Þær
framkvæma því það sem til var ætl-
ast af þeim gegn vilja sínum og án
þess að láta hann í ljós. Gerandinn
hugsar um það eitt að fá það sem
hann telur sig hafa fengið sam-
þykki fyrir og þegar skýr mörk eru
ekki sett sér hann ekkert athugavert
við hegðun sína. Þetta er það tíma-
mark sem mestu máli skiptir við
mat á sönnun og því hvort nauðg-
un af ásetningi hafi átt sér stað.
Undanfarið hafa þó nokkrir dómar
fallið þar sem atvik sem þessi hafa
verið felld undir ólögmæta nauðung
en eðli máls samkvæmt er sönnun-
arstaðan erfiðari þegar svo háttar
til. Algengt er að stig ásetnings sé
lægra í slíkum málum en öðrum.
Sálfræðingar hafa bent á, eink-
um þegar um unga gerendur er að
ræða, að oft sé um óviðeigandi kyn-
ferðislega hegðun að ræða fremur
en ásetning. Er þá átt við að gerand-
inn hafi ekki fullþroskaða kynferð-
isvitund og sé ófær um að sjá fyrir
sér afleiðingar gjörða sinna. Nýver-
ið var sett á fót meðferðarúrræði á
vegum Barnaverndarstofu fyrir
unga sakhæfa gerendur þar sem ein-
blínt er á þetta. Úrræðið miðar þá að
því að kenna þeim að stýra hegðun
sinni á réttar brautir. Það er í sjálfu
sér sjálfstætt rannsóknarefni að
greina hvað veldur því þegar ungir
gerendur telja sig nánast hafa „rétt“
á líkama stúlkna sem þeir ganga út
frá að séu „til í tuskið“. Gæti verið
að þarna séu einhver tengsl við
nýlegar niðurstöður könnunar sem
gerð var á meðal ungra manna og
endurspegluðu gamaldags viðhorf
þeirra til jafnréttis? Á móti kemur
að það er líka rannsóknarefni hvers
vegna margar stúlkur virðast sætta
sig við þetta viðhorf.
Í fjölmiðlum var nýlega fjallað um
bandaríska rannsókn sem sýndi fram
á að ungmenni sem eyða miklum
tíma í að senda SMS og/eða á sam-
skiptasíðunum á netinu séu útsett-
ari fyrir því að taka upp óæskilega
hegðun eða verða fórnarlömb kyn-
ferðisbrotamanna sem leita á net-
inu. Þá gengur þessum ungmennum
verr í skóla en hinum. Fram kom að
með þessari tækni séu ungmenni að
vinna hart að því að falla inn í hóp-
inn. Á sama tíma séu þau að reyna
að falla inn í hópinn með annarri
hegðun sem þau telja líklega til vin-
sælda, svo sem drykkju, ótímabæru
kynlífi o.fl. Þá kom einnig fram að
þeir sem væru öfgafyllstir í þessum
efnum ættu einnig eftirlátari for-
eldra og fæli þetta því ekki síst í sér
áminningu til þeirra.
Þessi rannsókn er alveg í takt við
upplifun okkar hjá lögreglunni og
undirstrikar þörfina á því að taka
mál þessi föstum tökum með mark-
miðssetningu og samstilltu átaki
í forvörnum. Það eru margir sem
fórna höndum og segja að nútíminn
sé orðinn þannig að það sé erfitt að
senda fólki skilaboð sem það muni
fara eftir. Er þá vísað til hispursleys-
is í kynferðismálum sem virðist vera
í tísku, þess að siðferðisþröskuldur-
inn hafi lækkað og því megi segja,
eða syngja, nánast um hvað sem er
hvenær sem er. Að mínu mati felst
í þessu uppgjöf eða „réttlæting“ á
ástandi sem er óviðunandi. Það ger-
ist ekkert fyrr en við viðurkennum
ástandið sem óásættanlegt.
Að stemma stigu við nauðgunum
Nauðganir
Sigríður J.
Hjaltested
aðstoðarsaksóknari hjá
lögreglustjóranum á
höfuðborgarsvæðinu
Fleiri ákærur sem gefnar væru út á skjön
við þessa meginreglu myndu væntanlega
þýða fleiri sýknudóma.
Í stórmerkri bók sinni um Gunnar Thoroddsen opnar Guðni Jóhann-
esson margt upp á gátt sem til þessa
hefur verið lokað. Eitt
er ógnarsterk flokks-
vél Sjálfstæðisflokksins.
Þar er fróðlegt um að lit-
ast. Þar segir til dæmis
af því að Reykjavík var
1957 skipt í 120 umdæmi
og voru 5-10 fulltrúar í
hverju umdæmi og voru
samtals 654 fulltrúar
snemma árs 1957. Þessir
fulltrúar skráðu stjórn-
málaskoðanir nágranna
sinna og voru þær upp-
lýsingar færðar í skrár
í Valhöll í höfuðstöðvum
flokksins við Suðurgötu.
Á vinnustöðum var öfl-
ugt trúnaðarmannakerfi
og sama ár átti Sjálfstæð-
isflokkurinn 392 skráða
trúnaðarmenn á vinnu-
stöðum í Reykjavík. Þetta ár hafa
íbúar Reykjavíkur sennilega verið
rétt um 70 þúsund talsins. Þegar
kom fram undir 1980 töldu menn
í Sjálfstæðisflokknum að þetta
kerfi væri gagnslaust en ekki allir:
„Sumir vildu leggja þær (merk-
ingarnar) niður en aðrir mölduðu
í móinn, meðal annars með þeim
rökum að „oft er leitað til flokks-
skrifstofunnar varðandi upplýsing-
ar (atvinnurk o fl).“ Mega það teljast
athyglisverð orð.“ Segir Guðni.
Með öðrum orðum, atvinnurek-
endur hringdu í Sjálfstæðisflokkinn
til að gá hvort óhætt væri að ráða
viðkomandi einstakling í vinnu. Við
ráðningar hjá hernum gilti formúl-
an 4-4-2, segir í bókinni, það er 4
frá íhaldinu, 4 frá framsókn og 2
kratar.
Flokksvél Sjálfstæðisflokksins
var ógnarsterk. Hún skipulagði ekki
aðeins atkvæði fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Líka Alþýðuflokkinn svo
hann lifði af: Gunnar Thorodd-
sen skipulagði á laun, væntanlega
í samráði við forystu-
sveit flokksins, að allstór
hópur sjálfstæðismanna
kysi Alþýðuflokkinn
í sumarkosningunum
1959. Reyndin varð sú að
í Reykjavík fær hann nær
2.000 fleiri atkvæði en í
bæjarstjórnarkosning-
unum árið áður. Gylfi Þ.
Gíslason hlaut kosningu
og varð eini kjördæm-
akjörni þingmaðurinn í
sínum flokki. Og fyrir
kosningarnar 1958 hand-
salar Gunnar við Magnús
Ástmarsson að hann yrði
til taks í nýjan meirihluta
með Sjálfstæðisflokknum
undir forystu Gunnars –
ef þyrfti. Sem þurfti svo
ekki af því að Sjálfstæð-
isflokkurinn fékk tíu menn en sósí-
alistar kölluðu Magnús samt alltaf
Magnús ellefta.
Á laun lét Bjarni Benediktsson
skipuleggja um þúsund manna lið
traustra sjálfstæðismanna sem
gætu myndað órofa vegg á Reykja-
víkur(?)- flugvellinum og þannig
komið í veg fyrir að verkfallsverðir
trufluðu flugferðir: Löglega boðað
verkfall átti að brjóta á bak aftur
með ólöglegu liði.
Þetta eru upplýsingar um ógnartíð
kalda stríðsins. Það þarf að skrifa
meira um þessa tíma. En Guðni á
þakkir skildar.
Flokksvél Sjálfstæð-
isflokksins opnuð
Stjórnmál
Svavar
Gestsson
fyrr. ritstjóri Þjóðviljans
Atvinnu-
rekendur
hringdu í
Sjálfstæðis-
flokkinn til
að gá hvort
óhætt væri
að ráða
viðkomandi
einstakling
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000NB
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
Ein gjöf sem hentar öllum
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
18
8
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður upp á að gefandinn ákveði upphæðina
og viðtakandinn velji gjöfina. Gjafakortið er viðskiptavinum að kostnaðarlausu til áramóta.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.