Fréttablaðið - 24.11.2010, Blaðsíða 24
24. 4
„Ég flutti til Los Angeles í ágúst
2008 til að hefja mastersnám í
myndlist við California Institute
of the Arts, CalArts, og útskrif-
aðist núna í vor.“ segir Bjarki
Bragason myndlistarmaður, sem
býr og starfar í Los Angeles. „Cal-
Arts er listaháskóli með deildum
í myndlist, leiklist, kvikmynda-
gerð, animation og fleira. Walt
Disney stofnaði skólann á sínum
tíma og sá þetta sem tilrauna-
búr þar sem öllum greinum væri
blandað saman. Út úr þessu kom
áhugaverð stofnun með saman-
safni áhugaverðra listamanna og
kennara, róttæk á köflum og hefur
náð að endurnýja sig vel.“
En hvað er Bjarki að gera í LA
núna? „Frá útskrift hef ég verið
að vinna í ýmsum verkefnum hér
og leigði vinnustofu ásamt nokkr-
um kollegum í Toy District, sem
er gamalt vöruhúsahverfi í mið-
bænum, en í okkar götuþyrpingu
versla allir kaupmenn með leik-
föng, og í næstu götum eru svo
ilmvötn eingöngu, í þarnæstu silf-
ur og svo gengur það koll af kolli
götu eftir götu. Ég var að kenna
myndlist á meðan ég var í náminu
og einnig kenndi ég við mennta-
skóla; sumarakademíuna Californ-
ia State Summer School for the
Arts, sem var dásamlega skemmti-
legt. Ég hafði ekki áður þurft að
tækla listina í gegnum tungumál
bandarískra táninga, sem voru
allir svo viljugir og klárir að vinn-
an var frábær. Í þokkabót náði ég
að endurnæra enskuna mína með
nútímaslangri, „street-smartið“
mitt fór örugglega upp um þrettán
prósent í kjölfarið.“
Er ekki Borg englanna óttalega
mikil silíkonborg? „LA hefur alls
konar orðspor og þau eru örugg-
lega öll sönn og login á sama tíma.
Margir sjá fyrir sér bílaraðir
undir reykskýjum og óeirðir, eins
og áttu sér stað hér á tíunda ára-
tugnum og áður. Margt af því er
satt – hér ríkir stéttaskipting sem
liggur djúpt og er sýnileg á mjög
augljósan máta. En það er afskap-
lega erfitt að segja nákvæm-
lega um hvað þessi borg snýst;
til þess er hún of stór og sundur-
tætt – hverfin eru dreifð og fjöl-
breytt eins og íbúarnir, minnir
mig helst á Berlín að því leyti að
hún er ó-miðjusett og þess vegna
býr maður til sína eigin borg frá
a til ö,“ segir Bjarki.
„Alla daga má finna bænda-
markaði í hinum og þessum hverf-
um, þar selja bændur ferskar
afurðir sínar. Alls konar matur er
framreiddur og út um allt árrisult
fólk, kannski búið að fá sér morg-
unbótox, ég veit minna um það, en
fyrir þá sem sleppa skurðhnífn-
um og detoxinu er nóg að finna
af ódýrum og góðum mat út um
allt. Í þessu veðri, og með ræki-
lega vafasömum áveituverkefnum,
vex nánast hvað sem er hvar sem
er. Hvað sem því líður hlakka ég
nú til jólafrís á Íslandi, hér fæst
hvorki slátur né kleinur, og það er
ekki nógu gott.“
Er Bjarki ánægður með þá
ákvörðun að flytja til Los Angel-
es? „Þegar þessum tæpu þremur
árum hér er á botninn hvolft er
ég ánægður með þessa ákvörðun
að læra og búa hér. Nú er næsta
verkefni hreinlega að byggja
brýr á milli Íslands og Los Ang-
eles, bæði vegna þess að annað
slagið ligg ég í heimþrá þegar ég
hugsa um hvað systkinabörn mín
þrjú stækka hratt, og svo er það
áhugavert verkefni að búa til nýtt
samstarf, færa fólk og umræðu á
milli staða,“ segir Bjarki Braga-
son í Borg englanna.
fridrikab@frettabladid.is
Hvorki slátur né kleinur
Bjarki Bragason fór í myndlistarnám til Los Angeles árið 2008, útskrifaðist síðastliðið vor og vinnur nú
að list sinni í Borg englanna. Hann fær stundum heimþrá og langar að byggja brýr milli Íslands og LA.
Útsýnið út um gluggana í vinnustofu
Bjarka.
„Hún hafði ekki umgengist fólk áður, og er enn þá afskaplega sérvitur og skrítin,“
segir Bjarki um tíkina Hope, sem fyrir tveimur árum var bjargað úr haldi konu sem
átti 300 hunda. MYND/STEVE KADO
Vegagerðin birtir upplýsingar um færð á hverjum degi og eru þær skráðar
frá kl. 8-16 á tímabilinu 1. maí til 31. október en frá kl. 7-22 frá 1. nóvember
til 30. apríl. Veðurupplýsingar koma hins vegar frá sjálfvirkum veðurstöðvum
og uppfærast allan sólarhringinn.
KAUPMANNAHÖFN - LA VILLA
Guesthouse á besta stað í bænum.Stúdíoíbúðir
og herbergi. Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. GSM. 0045 2848 8905
HARMAGEDDON
ALLA VIRKA DAGA
KL. 15 – 17:30
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
MEIRI
GLAMÚR
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook
geta unnið óvænta vinninga í
hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!