Fréttablaðið - 24.11.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.11.2010, Blaðsíða 34
26 24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Sifjar Sig- mars dóttur ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta LÁRÉTT 2. hvetja, 6. hróp, 8. bók, 9. dæling, 11. tveir eins, 12. hökutoppur, 14. yfir- stéttar, 16. í röð, 17. flíkur, 18. hljóð svína, 20. fyrir hönd, 21. tilræði. LÓÐRÉTT 1. eignir, 3. tveir eins, 4. vitsmuna- missir, 5. sigað, 7. ættbálkur spen- dýra, 10. skap, 13. gifti, 15. sálda, 16. yfirbragð, 19. nesoddi. LAUSN LÁRÉTT: 2. örva, 6. óp, 8. rit, 9. sog, 11. tt, 12. skegg, 14. aðals, 16. bd, 17. föt, 18. rýt, 20. pr, 21. árás. LÓÐRÉTT: 1. góss, 3. rr, 4. vitglöp, 5. att, 7. pokadýr, 10. geð, 13. gaf, 15. strá, 16. brá, 19. tá. Þetta er einkaþjálf- arinn minn... hann vann sko í sirkus áður fyrr... Kíktu á dagsetn- inguna á mjólkur- fernunni. Einmitt það sem ég hélt! Bíddu Palli. Kraginn er eitthvað skrítinn. Allt sem mamma snertir verður lúðalegt. Ef Solla kemur að leita að mér, láttu þá eins og þú vitir ekkert hvað er í gangi. Ekki málið. Ég hef ekki vitað hvað er í gangi hérna árum saman. Svona! Stundum er sem kona megi vart hripa skoðun sína niður á blað án þess að vera sökuð um að vera skrækróma. Fjölmiðlagúrúinn Óli Tynes afskrifaði gagnrýnendur Gillzeneggers, með höfundar símaskrárinnar, af einstakri rökfestu á dögunum með því að kalla þá skræka dólg- femínista. Áður en ég held lengra vil ég því – af tillitssemi við þá sem hafa svo yfirnáttúrulega heyrn – lækka róminn og dýpka röddina. Svona. Er þetta betra? KONUR sem hafa sig í frammi í opinberri umræðu, t.d. á vettvangi stjórnmála eða viðskipta, dansa stöðugt jafnvægisdans á línu hins tæka. Sé varaliturinn aðeins of rauður eru orð þeirra dæmd marklaus því þær eru klárlega vitlausar. Sé blússan of flegin eru þær óábyrgar, of mikið lagt í hárgreiðsluna vanhæfar og vogi þær sér að byrsta sig er „sá tími mánaðarins“ genginn í garð. MARGUR hefur furðað sig á því að af frambjóðendum til stjórnlagaþings sem kosið verður til um næstu helgi er einung- is þriðjungur konur. Sumir hafa gripið þessi hlutföll á lofti og sagt sig loks hafa sönnun þess að konur vilja einfaldlega ekki komast til áhrifa. Frekari barátta fyrir jafnrétti sé því óþörf. EN getur verið að ástæðan sé eilítið flóknari? Rannsókn hefur verið gerð við Johns Hopkins-háskólann í Bandaríkj- unum á umfjöllun um frambjóðendur til forsetakosninga þar í landi. Samkvæmt henni er ekki aðeins fjallað að jafnaði tvisvar sinnum meira um karlframbjóð- endur en kvenframbjóðendur í fjölmiðlum heldur er sú umfjöllun sem kvenframbjóð- endur fá oftar gagnrýnin og háðsleg en í tilfellum karlanna. Konurnar eru sagðar ópraktískur kostur, jafnvel vanhæfar. Þrisvar sinnum meira pláss fer í að lýsa útliti þeirra. Algengara er að dregnar séu upp af þeim staðalímyndir og þær sagðar þjást af skapsveiflum. Meiri líkur eru á að aldur þeirra sé tilgreindur en starfstitli þeirra sleppt. Aðeins 16% umfjöllunarinn- ar um konur tengjast málefnum sem þær standa fyrir, miðað við 27% umfjöllunar- innar um karlmenn. KANN að vera að ein ástæða þess að konur eru tregari til að gefa kost á sér til stjórn- lagaþings en karlmenn sé sú óvægna og ómálefnalega umræða sem þær gætu þurft að sæta? Á Fésbókarsíðu sinni segir Jón Gnarr borgarstjóri: „Finnst ég naive, ekki ráða við þetta …“ Fyrir hreinskilnina fær hann klapp á bakið. Ef sömu orð féllu af vörum forvera hans í starfi, Hönnu Birnu Kristjáns dóttur, eða forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, kvæði vafalítið við annan tón. Ef Jón Gnarr væri kona Tilboð kr.: 24.900 Verðlistaverð kr.: 33.200 Vinsælasta ryksugan frá Miele Miele Tango Plus Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi. AFSLÁTTUR Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Auglýsingasími

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.