Fréttablaðið - 24.11.2010, Side 43
MIÐVIKUDAGUR 24. nóvember 2010 35
FÓTBOLTI Það er allt í uppnámi í
Skotlandi þar sem skoskir knatt-
spyrnudómarar eru farnir í verk-
fall og ætla ekki að dæma leiki um
næstu helgi. Það setur eðlilega
mikið strik í reikninginn enda riðl-
ast mótið með verkfallsaðgerðum
dómaranna.
Skosku dómararnir eru mjög
ósáttir við þá gagnrýni sem þeir
hafa mátt sitja undir í vetur frá
þjálfurum og forráðamönnum
félaganna í skoska boltanum.
Steininn tók þó úr þegar dóm-
arar fóru að fá líflátshótanir frá
stuðningsmönnum liðanna. Þá
sögðu dómararnir hingað og ekki
lengra. Þeir krefjast úrbóta og sjá
ekki aðra leið en að fara í verkfall
svo þeir fái úrlausn sinna mála og
fólk fari að bera virðingu fyrir
þeirra störfum á nýjan leik.
Skoska knattspyrnusambandið
gerir allt sem það getur til þess
að halda áætlun og menn þar á bæ
vilja spila um næstu helgi. Þeir
hafa því sett sig í samband við
dómara víða og meðal annars á
Íslandi þar sem engin verkefni eru
fyrir dómara þessa stundina.
Félag deildadómara á Íslandi
sendi frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem menn viðurkenndu að
vissulega yrði það mikil upphefð
fyrir íslenska dómara að dæma í
skosku úrvalsdeildinni. Íslensk-
ir dómarar ætla þó að standa
með kollegum sínum í Skotlandi
og höfnuðu því beiðni skoska
knattspyrnusambandsins.
„Það verður að virða það sem
þeir eru að gera þarna úti. Lang-
flestir dómarar samþykktu að fara
í verkfall og ætlum við að virða
það,“ sagði úrvalsdeildardómar-
inn Magnús Þórisson sem einnig
er í stjórn félags deildadómara.
- hbg
Skoska knattspyrnusambandið vildi nota íslenska dómara um næstu helgi:
Standa með skoskum dómurum
ÁFRAM Í FRÍI Íslenskir dómarar munu ekki rífa sig upp og dæma í Skotlandi um
næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Fyrrverandi leikmaður
Aberdeen, Skotinn Frank
McDougall, hefur greint frá því í
nýrri ævisögu að hann kýldi eitt
sinn Sir Alex Ferguson, þáver-
andi stjóra liðsins.
Forsaga málsins er sú að
McDougall sagði fyrir bikarleik
með Aberdeen árið 1985 að hann
væri heill heilsu og setti Fergu-
son hann í byrjunarliðið.
En McDougall var í raun
meiddur og tók Ferguson hann
af velli eftir aðeins nokkrar mín-
útur. Ferguson hellti sér svo yfir
hann á æfingu degi síðar.
„Ég bar mikla virðingu fyrir
Fergie en hafði lært löngu áður
að í slíkum aðstæðum lætur
maður til sín taka og spyr
svo spurninga síðar,“ segir í
ævisögunni.
„Það var það sem ég gerði.
Þetta var ekkert rothögg en ég
hæfði hann í andlitið og hann féll
í jörðina. Af öllu því heimskulega
sem ég hef gert í gegnum tíðina
er ekkert sem toppar þetta.“
Ferguson var þó fljótur að rísa
aftur á fætur og svara fyrir sig.
Hann lét henda McDougall út
af æfingasvæðinu. Þeir voru þó
fljótir að sættast og ritar Fergu-
son meira að segja kafla í bókina
þar sem hann lofar sinn gamla
lærisvein. - esá
Frank McDougall:
Ég kýldi Sir
Alex Ferguson
SIR ALEX Hefur lent í ýmsu á lífsleiðinni.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Emmanuel Adebayor,
leikmaður Manchester City, er
hundóánægður hjá félaginu og
segir í samtali við franska fjöl-
miðla að hann ætli sér að fara
þegar félagaskiptaglugginn opnar
í janúar.
„Mancini [stjóri City] leyfir mér
aldrei að spila. Ég veit að ég get
ekki verið áfram þarna og ég mun
fara í janúar. Ég get greint frá því
að félagið hefur náð samkomulagi
við Juventus vegna mín,“ sagði
Adebayor.
Hins vegar er ekki víst
að af því verði þar sem
félögum á Ítalíu er
aðeins heimilt að vera
með einn leikmann í
sínum röðum utan
ESB-landanna.
Hjá Juventus er
Serbinn Milos
Krasic fyrir hjá
félaginu.
Adebayor er frá
Tógó og fengi sam-
kvæmt því ekki leyfi
til að ganga til liðs
við félagið. - esá
Emmanuel Adebayor:
Ég fer til Juve
í janúar
Vö
ru
m
er
ki
S
he
ll
er
u
no
tu
ð
af
S
ke
lju
ng
i m
eð
le
yf
i S
he
ll
Br
an
ds
In
te
rn
at
io
na
l A
G
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
3
9
9
Það sem við höfum lært af samstarfinu við Ferrari á keppnisbrautinni, höfum við nýtt
okkur fyrir venjulega bíla. Ef Shell V-Power getur hjálpað til við að halda Ferrari í
toppstandi, ímyndaðu þér þá hvað það getur gert fyrir bílinn þinn. Shell V-Power er
þróað til að hreinsa vélina til þess að ná fram meiri afköstum og auka viðbragðið
í hvaða bensínvél sem er. Fylltu tankinn með Shell V-Power og fáðu sem mest út úr
hverjum dropa.
www.skeljungur.is
Þróað fyrir
meiri afköst – hverju sem þú ekur