Fréttablaðið - 24.11.2010, Page 46
38 24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Kryddlegin hjörtu. Án efa. Ég
elska kjúklingasúpuna. Hún er
bara rugl. Og brauðið og smjör
með sólþurrkuðum tómötum. Og
kóríanderolían …“
Hlín Einarsdóttir, ritstjóri Bleikt.is.
Rithöfundurinn og skemmtikraft-
urinn Sólmundur Hólm Sólmundar-
son hefur verið ráðinn á Skjá einn
og verður hann liðsmaður í nýjum
skemmtiþætti sem hefur göngu sína
á sjónvarpsstöðinni á næsta ári.
„Þetta eru ákveðin tímamót hjá
mér. Ég er að segja upp vinnunni
og ganga til liðs við Skjáinn. Það
er gaman að prófa eitthvað nýtt,“
segir Sólmundur spurður um frétt-
irnar.
Frekari upplýsingar um þáttinn
eru á huldu og sjálfur gefur Sól-
mundur lítið upp. „Það er verið
að þróa þetta allt saman, hvernig
þetta verður nákvæmlega,“ segir
hann dularfullur.
Sólmundur hefur getið sér gott
orð sem eftirherma, uppistand-
ari og veislustjóri. Þá sendi hann
frá sér ævisögu Gylfa Ægissonar í
fyrra, en bókin fékk góðar viðtökur
bókaorma og gagnrýnenda.
En er þetta starf í sjónvarpi
draumur að rætast?
„Þetta er kannski ekki draumur
– ég hef alltaf vitað að þetta myndi
gerast. Ég á heima í sjónvarpi,“
segir Sólmundur í laufléttum dúr.
„Þetta er rökrétt skref. Ég get ekki
sagt að þetta komi mér á óvart. En
það verður gaman að vinna með
þeim á Skjá einum.
Vonandi get ég gert eitthvað af
viti.“ - afb
Sóli Hólm á leið í sjónvarp
BREYTINGAR Sólmundur kemur fram
í nýjum gamanþætti á Skjá einum á
næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta er tvö hundruð milljóna króna mynd sem fjallar
um samskipti manna og hesta, það er að segja mann-
inn í hestinum og hestinn í manninum,“ segir Benedikt
Erlingsson, leikari og nú brátt kvikmyndaleikstjóri.
Næsta vor hefjast tökur á fyrstu kvikmynd Benedikts
í fullri lengd sem hefur verið gefið vinnuheitið Hross
um oss. Benedikt hefur þegar fengið leikarann Ingvar
E. Sigurðsson og eiginkonu sína Charlotte Bøving til að
leika stór hlutverk í myndinni en hún samanstendur af
sex dæmisögum sem allar fléttast saman með einum
eða öðrum hætti. „Þetta eru miklar og dramatískar
frásagnir sem fjalla um samskipti manna og hesta
og hvernig mannfólkið reynir að beisla náttúruna. Og
þær enda annaðhvort með dauða knapans eða hross-
ins,“ útskýrir Benedikt en myndin á að gerast árið 1985.
„Þegar fólk gekk enn í flottum fötum og notaði ekki
hjálm,“ áréttar Benedikt.
Leikstjórinn er mikill áhugamaður um hesta þótt
hann vildi kannski vera meiri hestamaður en hann
er. „Við Íslendingar erum fyrst og fremst hesta-
þjóð, við erum ekki siglingaþjóð. Eina verkkunn-
áttan sem hefur viðhaldist er umgengni við
hesta, þetta er þúsund ára arfur. Við erum alla-
vega ekki bankafólk eða verslunarmenn,“ segir
Benedikt sem hefur unnið að gerð handritsins
í tíu ár. „Myndin á að vera óður til skepnunn-
ar sem hefur reynst okkur svona vel og er
réttnefnt skip hálendisins.“ - fgg
GERIR MYND UM HESTA OG MENN Bene-
dikt Erlingsson hyggst gera kvikmynd um
hesta og menn og eiga tökur að hefjast
næsta vor. Ingvar E. Sigurðsson og Char-
lotte Bøving verða meðal leikara.
Benedikt gerir sína fyrstu kvikmynd
„… MERKILEGASTA
SKÁLDSKAPARRIT
ÞESSA ÁRS …“ PBB / FT
ÁLEITNAR SÖGUR FYRIR ÍSLENSKAN SAMTÍMA
Hlýr mittisjakki m
Herrastærðir.
„Íslenskir kúnnar eru allt öðruvísi
en viðskiptavinir í öðrum heims-
hlutum. Þeir eru auðveldir og
koma vel fram við mann. Margir
þeirra eru bara einmana og hafa
jafnvel misst eiginkonu sína. Þeir
þrá snertingu og vináttu,“ segir
Catalina Mikue Ncoco í bókinni
Hið dökka man – saga Catalinu,
sem kemur út á föstudaginn.
Catalina situr í kvennafangelsinu
í Kópavogi þar sem hún afplánar
þungan dóm, rúm fimm ár, meðal
annars fyrir hórmang en hún rak
á árunum 2006 til 2009 umfangs-
mikla vændisstarfsemi á Íslandi.
Höfundar bókarinnar eru blaða-
mennirnir Jakob Bjarnar Grét-
arsson og Þórarinn Þórarinsson.
Þeir segjast marga fjöruna hafa
sopið en … „svo afdráttarlaust
lýsir Catalina skoðunum sínum
og reynslu að oftar en ekki sátum
við gapandi þegar hún sagði frá.
Meðal ótal margs sem kemur á
óvart er að dæmi eru um að feður
sæki til vændiskvenna og kaupa
vændi fyrir unga syni sína,“ segir
Jakob.
„Feður unglingsstráka væru eitt-
hvað leiðir yfir því, að drengirn-
ir væru ekki farnir að hitta stelp-
ur og stunda kynlíf. Þeir komu þá
með strákana til okkar og keyptu
fyrstu kynlífsreynsluna handa
þeim. Þetta var hluti af þjónustu
okkar. Þá sat pabbinn frammi í
stofu á meðan ég stundaði kynlíf
með syninum. Strákarnir ánetjuð-
ust vændinu eins og aðrir karlar
og komu aftur. Þetta var auðfeng-
ið fé og auðveld vinna vegna þess,
að þeir voru óreyndir og fengu það
undir eins,“ segir í bókinni.
Þegar Catalina kom undir sig
fótunum var vændisbransinn
á Íslandi óskipulagður. Lýsing-
ar Catalinu á samskiptum sínum
við íslenska karlmenn bera þess
merki, en eru þeim mjög í hag. „Já,
burtséð frá því hvað fólki finnst
um kaup þeirra á þessari þjón-
ustu – sem vel að merkja er refsi-
verð, þá held ég að vér íslensk-
ir karlmenn megum vel við una
í þrengsta skilningi, segir Jakob
og vísar í bókina: „Íslenskir karl-
menn nota margir Viagra og þá
ekki aðeins þeir eldri. Annars er
merkilegt að þeir eru flestir góðir
í rúminu, burtséð frá aldri, alveg
CATALINA MIKUE NCOGO: ÍSLENSKIR KARLMENN BESTU ELSKHUGARNIR
Kaupa vændi fyrir syni sína
ÍSLENDINGAR
BESTU ELSKHUGARNIR
Catalina Ncogo segir íslenska feður
hafa keypt fyrstu kynlífsreynsluna
handa ungum sonum sínum hjá
vændiskonum. Þetta kemur fram í
bókinni Hið dökka man eftir Jakob
Bjarnar Grétarsson og Þórarin
Þórarinsson sem kemur út á
föstudag.
frá 17–18 ára og upp úr. … Íslensk-
ir karlmenn eru góðir elskhugar og
þegar maður heillast af einhverj-
um er hægt að hafa meiri nánd í
kynlífinu þótt greitt sé fyrir það,“
segir í bókinni.
Jakob segir fátt vanta upp á
ánægju Catalinu með íslenska
karlmenn. „Já, ólíkt hefst fólk að.
Miklar spekúlasjónir hafa verið
um hvort Catalina muni ekki birta
lista yfir viðskiptavini sína í bók-
inni. Það hefur ekki svo mikið sem
hvarflað að henni. Henni þykir
vænt um sína viðskiptavini sem
hún lítur á sem vini sína – hún er
í þessu til að gleðja og hún er reið
út í dómstóla að dæma þá fyrir það
sem hún telur engar sakir,“ segir
Jakob. hdm@frettabladid.is