Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 10

Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 10
 21. janúar 2011 FÖSTUDAGUR10 Sérstakur saksóknari rannsakar Landsbankann Fjórir voru handteknir og leitað var á fimm stöðum í gær vegna rannsóknar á millifærslum af reikningum Landsbankans daginn áður en hann fór í þrot. Meðal annars var leitað í Seðla- banka Íslands. Málið snýst um 15 milljarða millifærsl- ur til MP banka og Straums og kaup í Landsbankanum og Straumi fyrir tæpa 20 milljarða. Sérstakur saksóknari handtók fjóra fyrrverandi starfsmenn Lands- bankans í gærmorgun og færði þá til yfirheyrslu vegna rannsóknar á 15 milljarða millifærslum úr bank- anum til MP banka og Straums, daginn sem neyðarlögin voru sett. Einnig eru til rannsóknar kaup Landsbankans á verðbréfum úr sjóðum Landsvaka eftir að sjóð- unum var lokað fyrir um tuttugu milljarða. Landsbankamennirnir fjórir Þeir sem voru handteknir eru Jón Þorsteinn Oddleifsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eignastýring- ar bankans, Þórir Örn Ingólfsson, fyrrverandi yfirmaður áhættu- stýringar, Hannes Júlíus Hafstein, fyrrverandi deildarstjóri fjárfest- ingarbanka á lögfræðisviði bank- ans, og Stefán Héðinn Stefánsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsvaka og núverandi aðstoðar- forstjóri Saga fjárfestingarbanka. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins stóð til að láta fjór- menningana lausa að loknum yfir- heyrslum í gærkvöldi. Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristj- ánsson, fyrrverandi bankastjórar bankans, voru yfirheyrðir síðdegis í gær og í gærkvöldi. Samhliða handtökunum gerði embætti saksóknara húsleitir á fimm stöðum í gærmorgun, meðal annars í höfuðstöðvum Landsvaka, ALMC (áður Straumi), MP banka og Seðlabankanum. Stefán Jóhann Stefánsson hjá Seðlabankanum segir að menn frá saksóknara hafi mætt árla dags með húsleitarúrskurð frá héraðs- dómi og rætt við nokkra starfs- menn. Enginn starfsmaður bank- ans mun vera grunaður í málinu. Skuldir gerðar upp á ögurstundu Málin tengd Straumi og MP banka snúast um endurhverf viðskipti við Seðlabankann – svokölluð ástar- bréf. Slík viðskipti gengu þannig fyrir sig að stóru viðskiptabank- arnir þrír leituðu til smærri fjár- málafyrirtækja um lán í gegnum Seðlabankann, eftir að þeim var neitað um frekari lausafjárstuðn- ing hjá Seðlabankanum. Smærri fyrirtækin fengu lán í Seðlabank- anum og lánuðu féð svo aftur til stóru bankanna gegn veði í bréf- um þeirra. Þessi viðskipti áttu stærstan þátt í tæknilegu gjald- þroti Seðlabankans. Daginn sem Geir H. Haarde til- kynnti um setningu neyðarlag- anna greiddi Landsbankinn skuld- ir af þessu tagi við Straum og MP banka með millifærslum af reikn- ingi sínum í Seðlabankanum. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins voru 7,2 milljarðar króna greiddir til Straums og 7,4 milljarðar til MP banka. Með því móti var Straumi og MP banka gert kleift að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Seðlabankanum. Sá gjörningur grundvallaðist á samningum á milli Landsbankans og Straums annars vegar og MP banka hins vegar, sem kváðu á um að síðarnefndu félögin gætu hvenær sem er krafið bankann um endur- greiðslu á lánunum. Sérstakur sak- sóknari telur hins vegar óvíst að sá sem framfylgdi þeim samningum innan Landsbankans, Jón Þorsteinn Oddleifsson, hafi haft heimild til þess á þessum tíma – þegar í raun var orðið ljóst að bankinn var ógjaldfær. Mál Landsvaka snýst um kaup Landsbankans á bréfum í bankan- um sjálfum og Straumi fyrir tæpa tuttugu milljarða króna. Þau við- skipti áttu sér einnig stað 6. október 2008, eftir að lokað hafði verið fyrir viðskipti með bréf í sjóðunum. Bæði Landsbankinn og Straumur voru að meirihluta í eigu Björgólfsfeðga. 35 milljarða viðskipti á degi neyðarlaganna STÝRÐI LANDSVAKA Stefán Héðinn Stefánsson, sem hér sést fyrir miðju, var hand- tekinn í gær vegna rannsóknarinnar. Hann er nú aðstoðarforstjóri Saga fjárfestingar- banka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁHÆTTUSTJÓRI Þórir Örn Ingólfsson, til hægri, var leiddur á brott frá húsakynnum sérstaks saksóknara í gær eftir yfirheyrslur. Stígur Helgason stigur@frettabladid.is Sk já rB íó V O D , S kj ár Fr el si o g Sk já rH ei m ur e r a ðg en gi le gt u m S jó nv ar p Sí m an s. M eð D ig it al Ís la nd + fæ st a ðg an gu r a ð Sk já Ei nu m o g Sk já Fr el si . GAME TÍVÍ FRUMSÝNING Í KVÖLD

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.