Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 50

Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 50
34 21. janúar 2011 FÖSTUDAGUR Leikur Íslands og Noregs í Linköping í gær minnti meira á góðan bardaga en handbolta lengi vel. Þar reyndust íslensku skylm- ingaþrælarnir mun sterk- ari. Þeir unnu alla leiki riðilsins og fara í milliriðil með fullt hús. Strákarnir okkar eru engum líkir. Þeir eru ekki bara frábærir í hand- bolta heldur kunna þeir að berja frá sér þegar þess þarf. Norðmenn reyndu að vera með stæla við þá í gær en áttu ekkert í íslenska liðið þegar á hólminn var komið. Eftir harðan bardaga framan af reiddu íslensku strákarnir til höggs með afli og eftir lágu Norðmenn óvíg- ir. Lokatölur í gær voru 29-22 eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 12- 12. Þetta var einhver harðasti leikur sem undirritaður hefur séð og gaf hvorugt liðið nokkuð eftir í þeim efnum. Í stöðunni 20-18 skildu aftur á móti leiðir. Ísland skoraði átta mörk gegn einu frá Norðmönnum á sjö mínútna kafla og slátraði leiknum. Varnarleikurinn, markvarslan, grimmdin, baráttan og vinnslan í síðari hálfleik var með hrein- um ólíkindum og það er magnað að halda þessu sterka norska liði í aðeins tíu mörkum í síðari hálf- leik. Norðmenn áttu nákvæmlega engin svör við varnarleik íslenska liðsins. Ef þeir komu síðan skoti á markið varði Björgvin en hann varði eins og berserkur í síðari hálfleik. Sverre og Ingimundur eru að verða eitt besta varnarpar heims og Alexander Petersson er ekki mikið síðri við hliðina á þeim. Þessir þrír hafa allir átt algjöra stórleiki hér í Svíþjóð. Allir aðrir eru einnig að skila frábærri varnar- vinnu. Róbert Gunnarsson stóð heldur betur í ströngu í þessum leik og var magnaður. Skoraði flottasta mark mótsins og fiskaði hvert vítakastið á fætur öðru. Norsku varnarmenn- irnir áttu fullt í fangi með hann og réðu ekki við verkefnið. Frábært að sjá Róbert í svona formi. Snorri Steinn Guðjónsson var einnig algjörlega frábær. Stýrði sóknarleiknum eins og hershöfð- ingi og skoraði mikilvæg mörk. Aron átti frábæra innkomu, Alex- ander er alltaf stórkostlegur og hefur eingöngu átt stórleiki á þessu móti. Svona mætti áfram telja því það lögðu allir sín lóð á vogarskálarnir og árangurinn talar sínu máli. Fimm sigurleikir í röð, fullt hús og inn í milliriðil með fjögur stig. Staða liðsins er afar vænleg og þetta íslenska lið er til alls líklegt. Miðað við stöðuna sem liðið er búið að koma sér í verða það mikil von- brigði að komast ekki í undanúrslit og leika til verðlauna þriðja mótið í röð. Ef strákarnir halda aftur á móti áfram að spila eins og þeir hafa gert hingað til hef ég ekki nein- ar áhyggjur af framhaldinu. Þetta íslenska lið hefur alla burði til þess að endurskrifa íslenska handbolta- sögu í Svíþjóð. Íslensku skylmingaþrælarnir vógu Norðmenn MEÐ VINSTRI Aron Pálmarsson skoraði nokkur gullfalleg mörk í gær – þar á meðal þetta hér er hann vippaði yfir Steinar Ege í marki Norðmanna með vinstri hendi. Eitt af afar fáum sem hann skorar þannig. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Heimsmeistarakeppnin Í HANDBOLTA 2011 Henry Birgir Gunnarsson og Valgarður Gíslason fjalla um HM í Svíþjóð henry@frettabladid.is - valgard.gislason@365.is HM 2011 í Svíþjóð A-RIÐILL Egyptaland - Barein 26-27 Þýskaland - Túnis 36-26 Frakkland - Spánn 28-28 LOKASTAÐAN Frakkland 5 4 1 0 159-106 9 Spánn 5 4 1 0 139-110 9 Þýskaland 5 3 0 2 151-125 6 Túnis 5 1 0 4 114-137 2 Egyptaland 5 1 0 4 115-139 2 Barein 5 1 0 4 105-166 2 B-RIÐILL Brasilía - Japan 32-33 Ísland - Noregur 29-22 Austurríki - Ungverjaland 30-32 LOKASTAÐAN Ísland 5 5 0 0 157-119 10 Ungverjaland 5 4 0 1 148-133 8 Noregur 5 3 0 2 139-139 6 Japan 5 2 0 3 141-161 4 Austurríki 5 1 0 4 144-148 2 Brasilía 5 0 0 5 131-163 0 MILLIRIÐILL 1 Spánn - Noregur Laugardag Þýskaland - Ísland Laugardag Frakkland - Ungverjaland Laugardag STAÐAN Ísland 2 2 0 0 61-48 4 Frakkland 2 1 1 0 58-51 3 Spánn 2 1 1 0 54-52 3 Ungverjaland 2 1 0 1 52-55 2 Þýskaland 2 0 0 2 47-56 0 Noregur 2 0 0 2 45-55 0 C-RIÐILL Alsír - Ástralía 27-18 Króatía - Danmörk 29-34 Serbía - Rúmenía 28-38 LOKASTAÐAN Danmörk 5 5 0 0 181-117 10 Króatía 5 3 1 1 148-109 7 Serbía 5 2 1 2 139-139 5 Alsír 5 2 0 3 100-109 4 Rúmenía 5 2 0 3 100-109 2 Ástralía 5 0 0 5 77-180 0 D-RIÐILL Suður-Kórea - Slóvakía 31-26 Argentína - Síle 35-25 Pólland - Svíþjóð 21-24 LOKASTAÐAN Svíþjóð 5 4 0 1 142-112 8 Pólland 5 4 0 1 143-123 8 Argentína 3 1 1 1 133-114 7 Suður-Kórea 5 2 1 2 137-128 5 Slóvakía 5 0 1 4 128-156 1 Síle 5 0 1 4 117-167 1 MILLIRIÐILL 2 Króatía - Argentína Laugardag Serbía - Svíþjóð Laugardag Danmörk - Pólland Laugardag STAÐAN Danmörk 2 2 0 0 69-56 4 Argentína 2 1 0 1 50-46 2 Svíþjóð 2 1 0 1 46-48 2 Pólland 2 1 0 1 45-47 2 Króatía 2 0 1 1 53-58 1 Serbía 2 0 1 1 51-59 1 Iceland Express deild karla Stjarnan - Keflavík 92-102 (41-42) Stig Stjörnunar: Jovan Zdravevski 24, Renato Lindmets 23, Justin Shouse 22/5 fráköst/12 stoðsendingar, Kjartan Atli Kjartansson 9, Fannar Freyr Helgason 8, Marvin Valdimarsson 5, Daníel G. Guðmundsson 1. Stig Keflavíkur: Thomas Sanders 32, Magnús Þór Gunnarsson 26, Hörður Axel Vilhjálmsson 16/9 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9, Þröstur Leó Jóhannsson 8, Halldór Örn Halldórsson 3, Gunnar Einarsson 3, Gunnar H. Stefánsson 3, Jón Nordal 2. Grindavík - Tindastóll 77-66 (44-35) Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 26/11 fráköst/5 stoðsendingar, Guðlaugur Eyjólfsson 15/6 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 13/4 frák- öst, Ryan Pettinella 8/9 fráköst, Ólafur Ólafsson 8/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 4/6 fráköst, Ármann Vilbergsson 3. Stig Tindastólls: Hayward Fain 20/9 fráköst/5 stolnir, Helgi Rafn Viggósson 18/6 fráköst, Drag- oljub Kitanovic 15, Sean Kingsley Cunningham 6/8 fráköst/5 stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 4, Friðrik Hreinsson 3. Haukar - KR 74-106 (27-59) Stig Hauka: Semaj Inge 22/5 fráköst, Örn Sigurðarson 13/5 fráköst, Haukur Óskarsson 10, Davíð Páll Hermannsson 8, Gerald Robinson 7/9 fráköst, Sveinn Ómar Sveinsson 6/5 fráköst, Emil Barja 4/4 fráköst/6 stoðsendingar, Óskar Ingi Magnússon 2, Sævar Ingi Haraldsson 2. Stig KR: Marcus Walker 35, Pavel Ermolinskij 12/8 fráköst/8 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 10, Hreggviður Magnússon 10, Finnur Atli Magnússon 8, Ólafur Már Ægisson 8, Fannar Ólafsson 6/6 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 5, Skarphéðinn Freyr Ingason 5, Páll Fannar Helga- son 5, Martin Hermannsson 2. ÚRSLITIN Í GÆR HM 2011 „Ég var afskaplega ánægð- ur með þennan leik. Það var hart tekist á og bæði lið fórnuðu sér. Þetta var gríðarlega fastur varn- arleikur. Sóknarleikurinn var ekki upp á það besta í fyrri hálfleik en snarbatnaði í síðari hálfleik. Varnar leikurinn varð enn betri og markvarslan var náttúrlega bara stórkostleg hjá Björgvini,“ sagði afar sáttur landsliðsþjálfari, Guð- mundur Guðmundsson. „Það var okkar markmið að fara með hámarksstigafjölda í milli- riðil og má upplýsa það núna. Nú tökum við annað markmið sem við höfum út af fyrir okkur. Þar gildir samt áfram það sama, að taka einn leik í einu. Nú fáum við enn sterkari andstæðinga og þar verður bitist um hvern einasta punkt.“ Hornamaðurinn Þórir Ólafsson skilaði enn einum fínum leik í hús í gær og var brosmildur eftir leik. „Við vorum grimmir allan leik- inn og það fór í pirrurnar á þeim. Við náðum að berja á þeim og í sókninni vorum við klókari. Við vissum að við fengjum færi þó svo að þeir hafi reynt að slátra okkur. Vorum þolinmóðir og létum bolt- ann ganga,“ sagði Þórir. „Vörnin var náttúrlega stórkost- leg. Sverre og Diddi vinna þvílíka vinnu og Bjöggi kemur svo með. Þessi leikur var mikil slagsmál. Þeir voru búnir að pumpa þetta upp í blöðunum en við sýndum að við erum betri.“ - hbg Guðmundur Guðmundsson og Þórir Ólafsson eftir sigurleikinn á móti Norðmönnum í gærkvöldi: Höldum næsta markmiði fyrir okkur TAKK FYRIR MIG, DIDDI Guðmundur Guðmundsson fagnar með strákunum eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HM 2011 Ísland er eitt í efsta sæti milliriðils 1 eftir að Spánverjar náðu ótrúlegu jafntefli gegn Frakklandi í lokaleik A-riðils. Ísland hlaut fullt hús stiga í B-riðli og fer því með fjögur stig með sér í milliriðilinn. Frakkland og Spánn voru bæði með fullt hús stiga fyrir leik lið- anna í gær. Þar sem þau skiptu með sér stigunum í honum fara bæði lið með þrjú stig í milliriðil- inn. Ungverjar koma næstir með tvö en Þýskaland og Noregur eru með ekkert. Ísland mætir Þýska- landi í fyrsta leik í milliriðlinum á laugardaginn. Frakkar voru með unninn leik í höndunum í gær og sex marka for- ystu, 27-21, þegar rúmar átta mín- útur voru eftir. Jose Hombrados varði þá vítakast fyrir Spánverja og leikurinn snerist einfaldlega við. Frakkar skoruðu ekki mark á síðustu fimm mínútunum og Spán- verjar náðu að minnka muninn. Gestgjafar Svía tóku sig saman í andlitinu í gær og unnu góðan sigur á Pólverjum í D-riðli. Á sama tíma vann Danmörk sigur á Króatíu og er eina liðið, auk Íslands, sem fer með fullt hús stiga í milliriðlakeppnina. Riðlakeppninni lauk í gær og má sjá úrslit úr öllum riðlunum, auk stöðunnar í báðum millriðlunum eins og hún er nú, í úrslitayfirlit- inu hér til hliðar. - esá Ótrúlegur endasprettur hjá Spánverjum gegn Frökkum í A-riðli sem breytir landslaginu í milliriðli Íslands: Ísland í efsta sætinu í milliriðlinum ÓTRÚLEG ÚRSLIT Frakkar töpuðu óvænt stigi í leiknum gegn Spáni í gær. Hér eru Nikola Kara- batic og Ruben Garabaya að takast á. NORDICPHOTOS/AFP Ísland-Noregur 29-22 (12-12) Mörk Íslands (Skot): Snorri Steinn Guðjónsson 7/3 (11/3), Alexander Petersson 5 (8), Aron Pálmarsson 4 (9), Guðjón Valur Sigurðsson 3 (6), Ólafur Stefánsson 3 (6), Þórir Ólafsson 3/1 (4/2), Róbert Gunnarsson 2 (2), Ingimundur Ingimundarson 1 (1), Arnór Atlason 1 (3), Björgvin Páll Gústavsson 0 (1). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 21 (42/3, 50%), Hreiðar Levy Guðmundsson 0 (1/1). Hraðaupphlaupsmörk: 9 (Guðjón Valur 2, Alexander 2, Ólafur 2, Róbert, Ingi- mundur, Þórir) Fiskuð víti: 5 (Róbert 4, Guðjón Valur) Brottvísanir: 10 mínútur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.