Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 46

Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 46
30 21. janúar 2011 FÖSTUDAGUR Tónlist ★★★ Óskabarn þjóðarinnar Ramses Frelsari fæddur? Ramses er listamannsnafn Guðjóns Arnar Ingólfssonar, rappara úr Kópa- voginum. Óskabarn þjóðarinnar er hans fyrsta plata í fullri lengd, en hann hefur verið að rappa síðan 1997 og sendi frá sér EP-plötuna Fátækari en þú árið 2003. Auk þess að kenna sig við egypska faraóa gengur Guðjón undir nafninu Hr. Skítsama. Óskabarn þjóðarinnar er að mörgu leyti flott plata. Taktarnir grúva vel og Ramses hefur fínt flæði. Hann á líka góða spretti í textunum. Það eru tvö þemu sem ganga í gegnum plötuna. Annars vegar rappar Ramses um það hvað hann er sjálfur frábær og hins vegar um stelpurnar sem hann hefur verið með eða ætlar að vera með. Nema hvort tveggja sé. Þetta sjálfshól er auðvitað ekkert nýtt í rappheiminum og hjá Ramsesi er það algjörlega yfirkeyrt og oft bráðskemmtilegt. Ramses er ekki bara „kaldari en Svalbarði“ og „undrabarn“ heldur líka „frelsari fæddur“ og „framtíðin eins og Gylfi Þór Sigurðsson“. Myndin sem Ramses dregur upp af kvenkyninu er að sama skapi einföld og orðbragðið sem hann notar oft það gróft að það hæfir ekki dagblaði eins og Fréttablaðinu. En þó að hann sé ekki að flækja málin mikið hvað efnisinnihald textanna varðar kemst hann oft vel að orði og samlíkingarnar sem hann notar eru margar frábærar. Hann er líka skemmti- lega uppfærður. Ólafur Skúlason, John Terry og Guðmundur í Byrginu koma allir við sögu … Ánægjuleg undantekning er lagið Manstu gamla daga þar sem Ramses rifjar upp horfinn tíma. Gott lag. Í laginu Leikmanna líf vitnar Ramses í Gin & Juice sem á vel við því það er einhver partístemning yfir þessari plötu sem minnir á vesturstrandarrappið á blómaskeiðinu. Á heildina litið fín plata. Góð innkoma hjá Ramsesi. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Rapparinn Ramses, „Strákurinn úr hverfinu“, með fína frum- smíð. Rapparinn Ramses fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar í kvöld. Hann bland- ar saman rappi og popptón- list á plötunni, sem hann segir nauðsynlegt ætli menn að fá eitthvað út úr harkinu. „Ég er búinn að dunda mér við þetta í tíu ár og er loksins að gefa út alvörubreiðskífu,“ segir rappar- inn Ramses, sem var þó gefið nafn- ið Guðjón Örn Ingólfsson. Ramses hefur sent frá sér plöt- una Óskabarn þjóðarinnar. Hann segist fara um víðan völl á plöt- unni ásamt því að rappa digur- barkalega um sjálfan sig. Eins og rapparar gera. Er þetta svo kryddað með kell- ingum og djammi? „Jájá. Það er nokkuð um það og um hvað lífið er ljúft með þeim. Svo fjalla ég um rappsenuna á Íslandi og ýmislegt annað. Það er erfitt að sigta eitthvað eitt út.“ Hipphopp-tónlist hefur upp á síðkastið blandast saman við hefðbundna popptónlist í ríkari mæli en áður þekktist. Áhrifin hafa rekið land á Íslandi sem kom berlega í ljós á frábærri sólóplötu Erps Eyvindarsonar, Blaz Roca, sem kom út fyrir síðustu jól. Þá hafa rapparar á borð við Didda Fel og Emmsjé Gauta blandað saman rappi og popptónlist með góðum árangri. En er sama uppi á ten- ingnum hjá Ramsesi? „Já. Ég gerist sekur um það. Platan er svolítið poppuð. Hún er partívæn.“ Er nokkuð að því? „Nei. Það er bara flott. Maður verður að gera það. Stefnan er svona og ef maður ætlar að fá eitt- hvað út úr þessu þarf maður að fara í þessa átt í bland við gamla, góða fílinginn.“ Spurður hvort hann skjóti á aðra rappara á plötunni segist Ramses vera voðalega lítið í því. „Allavega á þessari plötu,“ segir hann. „Ég nenni ekki að standa í því. Þetta er svo lítil og veik sena eins og er að mér finnst að fólk eigi frekar að standa saman í staðinn fyrir að skjóta á hvert annað.“ Ramses heldur útgáfutónleika í Risinu (gamla Glaumbar) í kvöld klukkan 23. 500 krónur kostar inn á tónleikana, en ef sex stelpur mæta saman í hóp fá þær frítt inn. DJ Kocoon er plötusnúður kvölds- ins og á meðal þeirra sem koma fram ásamt Ramsesi eru Diddi Fel, Mælginn, Orri Err og KáEffBé. atlifannar@frettabladid.is Óskabarn þjóðarinnar EKKERT VESEN Ramses skýtur ekki á aðra rappara á nýju plötunni og segir þá verða að standa saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ricky Gervais býst ekki við því að kynna Golden Globe verð- launin í þriðja sinn. Spurður hvort hann myndi taka að sér verkefnið ef hann yrði beðinn um það sagðist grínistinn ekki reikna með því. „Ég sagðist ekki ætla að gera þetta í annað sinn en núna held ég að tvö skipti séu nóg,“ sagði hann. Mörgum þótti Gervais ganga of langt í gríninu. „Ég get ekki beðið eftir því að þeim sem fannst ég ganga of langt sjái uppistandssýningarnar mínar. Þeir munu fara yfir um.“ Á meðal þeirra sem hafa stutt við bakið á Gervais er Playboy- kóngurinn Hugh Hefner, sem var einn þeirra sem hann gerði grín að. Hættur að kynna Globe RICKY GERVAIS Grínistinn býst ekki við því að kynna Golden Globe aftur. -H.S, MBL-K.G, FBL SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ THE GREEN HORNET 3D kl. 8 - 10.10 BURLESQUE kl. 8 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 6 THE TOURIST kl. 10.10 GAURAGANGUR KL. 6 12 L L 12 7 Nánar á Miði.is THE GREEN HORNET 3D kl. 5.25 - 8 - 10.35 THE GREEN HORNET 3D LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.35 BURLESQUE kl. 8 - 10.35 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30 THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 GAURAGANGUR KL. 5.50 MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40 NARNIA 3 3D KL. 3.30 12 12 L L 12 L 7 L 7 BURLESQUE KL. 8 - 10.30 GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8 - 10.10 EINS OG HINIR kl. 6 Enskur texti BARA HÚSMÓÐIR kl. 10.15 Enskur texti HVÍTAR LYGAR kl. 5.20 Íslenskur texti ÆVINTÝRI ADÉLE BLANC-SEC kl. 8 Íslenskur texti LEYNDARMÁL KL. 10 Enskur texti L 7 L L L L L HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR 5% 5% TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Á WWW.SAMBIO.IS  „hláturvöðvarnir munu halda veislu í einn og hálfan tíma“ - Politiken V I P 14 14 L L L L L L L L L 10 10 14 12 12 12 12 12 12 TANGLED-3D ísl tal kl. 5:50 YOU AGAIN kl. 8 ROKLAND kl. 10:10 KLOVN kl. 5:50 - 8 - 10:10 KLOVN - THE MOVIE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 KLOVN - THE MOVIE kl. 8 - 10:20 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI-3D ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50 ROKLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 YOU AGAIN kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 HEREAFTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 MEGAMIND-3D M/ ísl. Tali kl. 3:40 HARRY POTTER kl. 8 LIFE AS WE KNOW IT kl. 10:40 L L L L 14KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 9 - 10:10 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI-3D M/ ísl. Tali kl. 4:10 - 6:20 TANGLED-3D (Ótextuð) M/ Ensku kl. 3:40 - 8 YOU AGAIN kl. 5:50 - 8 - 10:20 MEGAMIND M/ ísl. Tali kl. 3:40 ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI-3D ísl. Tali kl. 3.30 og 5.45 GREEN HORNET-3D kl. 5 - 8 og 10.40 KLOVN: THE MOVIE kl. 5.45 - 8 og 10.15 ROKLAND kl. 8 og 10.30 GUILIVERS TRAVEL-3D kl. 3.30 og 5.45 HEREAFTER kl. kl. 8 TRON: LEGACY-3D kl. 10.40 MEGAMIND-3D M/ ísl. Tali kl. 3.30 VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI. FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA  „skemmtileg fyndin og spennandi“ - BOXOFFICE MAGAZINE - bara lúxus Sími: 553 2075 SAW 3D - ÓTEXTUÐ 8 og 10 16 ALFA OG ÓMEGA 3D - ISL TAL 4 og 6 L THE GREEN HORNET 3D 8 og 10.20 12 LITTLE FOCKERS 4, 6, 8 og 10 L ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D 4 og 6 L

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.