Fréttablaðið - 21.01.2011, Page 11
FÖSTUDAGUR 21. janúar 2011 11
ALÞINGI Tillaga til þingsályktunar um orku-
skipti í samgöngum hefur verið lögð fram
á Alþingi. Fram kom í máli Katrínar Júlíus-
dóttur iðnaðarráðherra sem mælti fyrir til-
lögunni að markmiðið með henni væri að
stuðla að uppbyggingu græna hagkerfisins
með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Orkuskiptin eiga að leiða til minni los-
unar gróðurhúsalofttegunda, gjaldeyris-
sparnaðar, þekkingarauka og aukinnar
atvinnu.
Fram kemur í tillögunni að hlutfall
endurnýjanlegrar orku í samgöngum hér
á landi sé töluvert lægra en annars staðar,
eða undir einu prósenti. Fram kemur að að
innan Evrópusambandsins hafi verið stefnt
að því að hlutfallið næði 5,75 prósentum
fyrir árið 2010.
Í tilkynningu iðnaðarráðuneytisins í gær
kemur fram að til að ná hér settu marki
hafi verið sett fram níu stefnumið sem lúti
meðal annars að því að hvetja einstaklinga
og fyrirtæki til að nýta sér orkusparandi
tækni. Er þar til dæmis beitt skattaívilnun-
um og hagrænum hvötum. „Jafnframt er
lögð mikil áhersla á fræðslu, nýsköpun og
rannsóknir á sviði endurnýjanlegra orku-
gjafa,“ segir þar.
Í maí næstkomandi á svo að liggja fyrir
stefnumótun, markmiðasetning og aðgerða-
áætlun fyrir orkuskipti í samgöngumálum
fram til ársins 2020. - óká
BORGARUMFERÐ Hlutfall endurnýjanlegrar orku í samgöngum er
sagt töluvert lægra hér en annars staðar, eða undir einu prósenti.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lögð hefur verið fram tillaga til þingsályktunar um orkuskipti í samgöngum:
Ítarleg áætlun um orkuskipti liggi fyrir í vor
ÍRAK, AP Sjía-pílagrímar á leið til
borgarinnar Karbala í Írak urðu
fyrir tveimur sprengjuárásum í
gær, nærri samtímis. Alls kost-
uðu árásirnar meira en 180 manns
lífið.
Fyrr um daginn létust að
minnsta kosti þrír af völdum
sprengju sem sprengd var í borg-
inni Baqaba.
Allt bendir til þess að herskáir
súnní-múslimar, annað hvort
tengdir Al-Kaída-samtökunum eða
öflum sem voru hliðholl Saddam
Hussein, beri ábyrgð á árásunum.
Báðar árásirnar hjá Karbala voru
gerðar með því að aka bifreiðum
fullum af sprengiefnum upp að
lögregluvarðstöðvum rétt utan
við borgina.
Hundruð þúsunda sjía-múslima
leggja þessa dagana leið sína
til Karbala til þess að taka þátt
í árlegri trúarhátíð, sem nær
hámarki í næstu viku. Töluvert
hefur dregið úr hernaðar átökum
í Írak undanfarið, en enn eru
sprengjuárásir gerðar í landinu
með skelfilegum afleiðingum.
Allt frá því innrásin var gerð í
Írak snemma árs 2003 hafa her-
skáir súnní-múslimar reglulega
gert árásir á staði tengda trúar-
athöfnum sjía-múslima. - gb
Sprengjuárásir nálægt borginni Karbala í Írak kosta tugi manna lífið:
Árásum beint að pílagrímum
Í HELGU BORGINNI KARBALA Tveir menn sitja sem þrumu lostnir eftir sprengjuárás
sem kostaði fjölda fólks lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PORTÚGAL, AP Ótti við efnahags-
hrun vofir yfir forsetakosningum
í Portúgal, sem
haldnar verða á
sunnudag.
Anibal
Cavaco Silva
hefur mikla
forystu í skoð-
anakönnunum.
Yfirburðasigur
hans yrði túlk-
aður sem ósig-
ur forsætisráð-
herrans, Jose Socrates, þrátt fyrir
að forsetaembættið sé að mestu
valdalaust. Socrates og Sósíalista-
flokkur hans beina nú öllum kröft-
um sínum að því að koma í veg
fyrir að landið þurfi að þiggja
efnahagslega neyðaraðstoð frá
Evrópusambandinu og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum. - gb
Kosið í Portúgal um helgina:
Silva spáð mikl-
um yfirburðum
ANIBAL
CAVACO SILVA
REYKJANESBÆR Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar segir alla aðstöðu
fyrir hendi til að Landhelgisgæsl-
an geti flutt til Suðurnesja.
Er þar vísað í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar frá nóvember
um mat á kostum þess að flytja
gæsluna. Í bókun bæjarstjórnar
segir að til staðar sé húsnæði,
flugbrautir, góð hafnaraðstaða og
stoðkerfi sem fullnægi þörfum
gæslunnar. Samkvæmt upplýs-
ingum úr innanríkisráðuneytinu
niðurstöðu úr hagkvæmnimati að
vænta í febrúar. - þj
Reykjanesbær vill Gæsluna:
Segja alla að-
stöðu til staðar
Hundrað ár frá kjöri konu
Á þessu ári verða eitt hundrað ár
liðin frá því að kona var fyrst kjörin í
bæjarstjórn Akureyrar. Það var Kristín
Eggertsdóttir, forstöðukona sjúkra-
hússins á Akureyri.
AKUREYRI
DÓMSMÁL Maður hefur verið
ákærður fyrir að ógna starfs-
manni í verslun með hnífi og stela
33.000 krónum.
Það var í febrúar í fyrra sem
maðurinn er talinn hafa farið inn
í verslunina Sunnubúð í Reykja-
vík, vopnaður hnífi, ógnað starfs-
manni verslunarinnar með hnífn-
um og skipað honum að afhenda
sér peninga úr sjóðsvél.
Gerð er krafa um greiðslu
skaðabóta á hendur ákærða að
fjárhæð 33.000 krónur. - jss
Stal rúmum 30 þúsundum:
Ógnaði með
hnífi og rændi
SP
JA
LL
IÐ
AÐEINS
Á MÁNUÐI
2.890 KR.
SKJÁREINN
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
9
2
4