19. júní


19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 12

19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 12
L mundur þeystu í hlaðið. Þeir voru vel ríðandi, hesturinn Jóns hét Dínus, hesturinn Guðmundar Svanur. Þegar þeir voru komnir til stofu Jón og Guðmundur, sagði Björn bóndi: „Ég held, að krakkinn hafi litla skemmtun af að vera héma hjá okkur, það er betra fyrir hana að koma inn.“ Kallaði hann svo á stúlku, sem fylgdi mér til bað- stofu. Þar var fyrir miðaldra maður, Björn að nafni, kallaður Skófna-Bjössi, hann var þá smali í Ás- geirsbrekku. Björn þótti í meira lagi einfaldur, og var haft til dæmis um heimsku hans, að eitt sinn var hann á gangi með öðrum manni, og fundu þeir lóuhreiður. Var Bjössi þá handfljótur að ná í stein og mölv.a eggin. Hinn maðurinn undraðist og spurði, hví í ósköpunum hann gerði þetta. „Úr þessu kemur nú bölvaður hrafninn,“ sagði þá Bjössi. Bjössi sat á rúmi sínu og var að hafa sokkaskipti, en að því búnu tók hann til matar síns, sem stóð á borði hjá rúminu. Ég hafði nú ekki annað mér til skemmtunar í baðstofunni en horfa á hann úða í sig matnum, sem vissulega var ekki nánasarlega skammtaður. Á stórum diski var brauð og smjör og flot, kjöt og harðfiskur og tvenns konar drafli: hvítur og rauðvelgdur, og stór skál full af skyri og mjólk. Þótti mér ótrúlegt, að maðurinn gæti lokið þessu, en það reyndist rangt til getið. Þegar Bjössi hafði hroðið matarílátin, lagðist hann upp í rúmið og fór strax að hrjóta, hefur sjálfsagt ekki veitt af að fá sér blund, smalarnir á stórbæjunum höfðu ekki langan svefntíma um fráfærurnar. Mér var fært kaffi inn í baðstofu. Þegar ég hafði dmkk- ið það, sat ég enn góða stund og hlustaði á hrot- umar í Bjössa. Loksins kom stúlka inn og sagði mér að koma, nú væru piltarnir að fara. Þegar ég gekk fram hjá stofudyrunum, fann ég vínlykt, og rann nú upp fyrir mér orsökin til þess, að Björn bóndi vildi láta mig fara inn. Hann gaf þeim í staupinu í stofunni, en þótti óþarfi, að ég væri þar viðstödd. Þeir voru kampakátir piltarnir og sögðu, að gott væri að koma að Ásgeirsbrekku, en mér þótti miklu betra að koma að Kjarvalsstöðum. Við fórum lið- ugt út að Hofdölum, þar beið mín morgunmatur- inn og uppbúið rúm. Ég háttaði og sofnaði þreytt eftir þetta skemmtilega ferðalag og sæl í sinni, af því nú þurfti ég ekki oftar að sitja hjá fráfærna- lömbum — þetta árið. Una Árnadóttir. GERÐUR HELGADÚTTIR Forsíðumyndin er af Gerði Helgadóttur við vinnu sína. Það þarf ekki að kynna hana fyrir löndum sín- um, ungu konuna, sem logsýður stálið, með dreymna, skáldlega ró í svipnum og geislabaug frá aflinum í ljósu hári. Enginn íslenzkur mynd- listamaður hefur valið sér sérkennilegra verkefni en Gerður Helgadóttir, að búa til listaverk úr járni. Hún er einnig kunn af verkum sínum víða er- lendis. Um þessar mundir dvelst hún í Þýzkalandi og vinnur þar að gluggum Skálholtskirkju. Hefur þetta verk hennar vakið mikla athygli og verið sýnt nýlega í sjónvarpi í Köln, hvernig hún vinn- ur að því. Stóri vesturglugginn í Hallgrimskirkju í Saurbæ er einnig hennar verk. Hvar sem Gerður Helgadóttir fer, er góður full- trúi íslands. 19. júní fagnar þeim árangri, sem hún hefur náð og óskar henni stórra sigra í fram- tíðinni. H. B. B. 10 19. JtJNl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.