19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 42
Vill halda áfram starfi sínu fyrir friði á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna og efla betri skilning þjóða i milli, sérstak-
lega með þvi að gefa konum frá mörgum löndum kost á að
hittast og kynnast, svo að þær kynnist menningu annarra
þjóða og skilji betur vandamál þeirra.
Ályktar, að hið aukna vald mannkynsins yfir kjarnorku
verði að haldast í hendur við aukinn siðferðisþroska.
Skorar á allar konur að nota hið félagslega og stjórnmála-
lega vald, er þær hafa öðlazt, til að tryggja það, að mann-
kynið verði verndað gegn öllum illum óhrifum þessara afla
og að þau verði eingöngu notuð í friðsamlegum tilgangi.
Friður og samskipti manna.
Þing Alþjóðafélagsins haldið i Aþenu 25. ágúst—4. sept.
1958,
Skilur glöggt, hvílík ógnun öllu mannkyni stafar af hin-
um nýju tækjum til fjöldamanndrápa og tortímingar, og —
trúir því, að það hafi einnig komizt á það stig menningar,
að það ætti að geta jafnað deilumól sín á friðsamlegan hátt
án þess að þurfa að grípa til ofbeldis.
Vekur athygli á, að mismunur, byggður á þjóðerni, kyn-
þáttum, stjómmálaskoðunum eða trúarbrögðum eyðileggur
oft gott samkomulag ríkja, skiptir ibúum eins lands í fjand-
samlega flokka og veldur stöðugri ófriðarhættu.
Heitir á öll sambandsfélög sin að beita sér fyrir því að
skapa meiri samúð og skilping miili allra manna án tillits
til kynþótta, stjórnmálaskoðana og trúarbragða.
Hvetur sambandsfélögin til að leggja fast að ríkisstjórn-
um sínum að setja lög, sem banna allan greinarmun byggð-
an ó kynþóttamun, litarhætti eða trúarbrögðum og sjá um,
að lögum þessum sé framfylgt.
Fjárhagslegt jafnrélti.
a) Alþjófiaþingið ályktar, að rannsaka beri þau vandamól,
sem myndast vegna hins tviþætta hlutverks konunnar.
b) Afi komifi verfii á fót tæknilegri starfs- og styrktar-
stofnun fyrir konur í arðbærri atvinnu.
c) Að vinna afi því, að stofnuð verði fastanefnd þriggja
aðilja á vegum ILO, og fá ríkisstjórnir og samtök vinnu-
veitenda og launþega til að beita sér fyrir þvi, að slik nefnd
róði fram úr atvinnuvandamálum kvenna á varanlegan hátt.
Alyktun nefndar uni borgnruleg og stjórnmáhileg
réttindi.
Alþjóðafélagið á þingi i Aþenu 25. ógúst—4. sept. 1958,
Skorar á sambandsfélög sín, að þau taki upp skelegga bar-
áttu fyrir þvi, að þátttaka kvenna á þingum og í opinberum
störfum aukist, frá þvi sem nú er, og bendir á eftirfarandi
leiðir:
I. Afi tryggja, að fræðsla um borgaraleg réttindi og
skyldur sé veitt báðum kynjum i skólum í þeim tilgangi að
auka skilning þeirra á borgaralegum réttindum og skyldum.
II. Tryggja, að fjárhagslegur rekstur heimilis og meðferð
barna sé kennd báðum kynjum allan skólatímann.
III. Tryggja, að nútímatækni komist inn ó heimilin, að
komið verði á fót vöggustofum, leikskólum, sumarbúðum og
börn geti almennt fengið miðdegisverð í skólunum.
IV. Afi hafa áhrif ó blöð, útvarp og sjónvarp, að kenna
og vekja borgarana til meðvitundar um skyldur sínar við
þjóðféiagið.
V. Afi skipuleggja í sveitum og borgum samkomur, með
fyrirlestrum og umræðum, þar sem brýndar eru fyrir kon-
um hinar borgaralegu skyldur þeirra í öllum greinum.
Ályktanir Uppeldismálanefndar.
I. Alþjófiafélagifi ályktar, að góða menntun ætti að veita
öllu ungu fólki, til þess að það geti orðið hæfir borgarar,
II. Afi veita eigi ungu fólki tækifæri til sérmenntunar
og æðri menntunar til undirbúnings undir það starf, er það
kann að velja sér, og öll störf og stöður standi opnar kon-
um sem körlum.
III. Skorar á sambandsfélög sin að hvetja rikisstjórnir
hvers lands til að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja
piltum og stúlkum fró 12—16 óra aldurs ókeypis kennslu og
að gera jafnframt æðri menntun mögulega við sömu skilyrði
fyrir pilta og stúlkur.
Ályktanir ncfndar um fjárliagslegt jafnrétti.
Þingið ályktar, að tekjuöflun utan heimilis hafi i för með
sér, að hlutverk konunnar verði tvíþætt.
Álitur, að konum ætti að vera gert fært að njóta hæfi-
leika sinna og takast á hendur sömu skyldur og karlar i
fjölskyldunni, þjóðlifinu og ó vinnumarkaðinum.
Hvetur sambandsfélög sín til að rannsaka þau vandamál,
sem stafi af hinu tviþætta hlutverki konunnar og berjast
fyrir því, að ríkisstjómir viðkomandi landa geri nauðsyn-
legar ráðstafanir til þess að setja á stofn tæknilegar hjálpar-
stöðvar, er veiti þjónustu, sem óhjókvæmileg er fyrir konur,
sem gegna þessu tvöfalda hlutverki, og hugleiði, að konur
taka æ meiri þótt í atvinnulífinu og leggja sinn skerf til
að bæta fjárhagsafkomu ríkjanna.
Ályktar, að brýna nauðsyn beri til, að sem fyrst verði
leyst vandamál þeirra kvenna, er vinna á þjóðlegum eða
alþjóðlegum vettvangi.
Hvetur sambandsfélög sín til að skora á ríkisstjómir við-
komandi landa og vinnuveitenda- og verkamannasambönd
að krefjast þess, að Alþjóðavinnumálastofnunin komi á fót
nefnd til að fást við vandamól kvenna, sem stunda vinnu
utan heimilis.
SiSferSilegt jafnrétti.
Alþjóðafélagið lýsir ánægju sinni yfir þvi, að rikisstjórn-
ir Italiu, Japans og Grikklands hafa sett lög, er banna vænd-
ishús, og gleðst yfir þeim róðstöfunum, er gerðar voru á
Indlandi árið 1956 til að binda endi á verzlun með konur.
Sömuleiðis þeim aðgerðum, er stjómir á Spáni og Tangier
hafa gert i þessu móli, síðan siðasti fundur Aljjjóðafélagsins
var haldinn í Colombo.
Hvetur sambandsfélög sín til að stofna nefndir til að
rannsaka og koma i veg fyrir vændi og lita eftir, að þessum
lögum sé framfylgt, og benda á leiðir til að fó almennings-
álitið til að fordæma vændi.
Samþykkt Sameinuðu þjoðaima um franifærsluskyldu
erlendra harnsfcðra.
Alþjóðafélagið á þingi í Aþenu 25. ág. til 4. sept. 1958,
Hvetur sambandsfélög sín til að kynna sér samþykkt S.Þ.
um framfærsluskyldu erlendra bamsfeðra.
(Samþykktir þingsins eru styttar í þýðingu.)
40
19. JÚNI