19. júní


19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 40

19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 40
Barnahjálp sameinuðu þjóðanna Talið er, að 900 milljónir barna innan 14 ára aldurs séu í heiminum og tvo þriðju þeirra skorti mat, föt, húsnæði og allar varnir gegn drepsótt- um. Skortur og sjúkdómar ógna lífi þessara barna. Eftir stríðið hefur skapazt meiri og almennari skilningur á þörfum þeirra. Með hjálparstarfi, sem skipulagt hefur verið á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefur mikill árangur náðst. Eftir stríðið hefur UNICEF aðstoðað þær þjóðir Afríku, Asíu og Suður-Ameríku, sem skemmst eru á veg komnar, hvað atvinnu og þjóðfélagsmál snertir. En hjá þeim þjóðum eru börnin 40% íbúanna. Lífsafkoman er svo slæm, að fæði er af skornum skammti, sjúkdómar og pestir leggja þúsundir barna að velli. T mörgum rikjum Asíu og Afríku er algengt, að 300 af hverjum 1000 börnum deyi á fyrsta ári. Barnahjálpin hefur skipulagt söfnun matvæla og lyfja hjá þeim þjóðum heims, sem aflögufærar eru, og sent þangað, sem neyðin er mest. Fyrsta skrefið var að reyna að útrýma drep- sóttum. DDT-skordýraeitri var dreift yfir land- svæði, þar sem 21.9 millj. manna bjuggu, til þess að drepa flugu þá, sem ber malariu-bakteríur. Malaría er talin einn af þremur skæðustu sjúk- dómum, sem valda barnadauða. Malariusjúkling- um hefur fækkað um 50—80% vegna þessara að- gerða. Berklaveikin er næstskæðasti sjúkdómurinn. 5—7 milljónir manna eru haldnar berklum, þar af helmingur börn. Fram til ársloka 1956 hafa 75.5 millj. barna verið bólusett gegn berklum. Þriðji sjúkdómurinn er holdsveiki, en 5—7 millj. manna eru taldar holdsveikar, og þar af 3 millj. böm og ungar konur. Með sulfalyfjum er nú hægt að lækna holdsveiki á 2—3 árum. Annar aðalþáttur hjálparstarfsins er að útvega matvæli til þeirra landa, þar sem barnadauði af næringarskorti er mestur. Tveir þriðju allra barna í heiminum líða af skorti á eggjahvítuefnum. UNICEF getur ekki fullnægt þeirri þörf allri, en hefur horfið að því að styrkja stjórnir ýmissa landa til þess að koma á fót þurrmjólkurfram- leiðslu og annarri matarframleiðslu, er inniheldur nauðsynleg næringarefni. Samhliða því hefur UNICEF úthlutað 645 millj. punda af þurrmjólk til 18 millj. barna. (Heimildir þessar eru teknar úr skýrslu UNI- CEF Compedium, Vol. VI, 1956—57.) P. J. ÆVIMINNINGABÖK Menningar- og minningarsjóðs kvenna. Annað bindi af Æviminningabók menn- ingar- og minningarsjóðs er nú komið í prentun og mun koma út á þessu ári. Gjaldkeri sjóðsins, Svafa Þorleifsdóttir, er til viðtals að Skálholtsstíg 7 alla fimmtu- daga kl. 16-—18, en sími skrifstofunnar er 18156. Afgreiðsla blaðsins 19. júni er að Skálholtsstíg 7, og þar eru gamlir árgangar seldir vægu verði. Opið þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 16 —18. 38 19. JtJNl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.