19. júní


19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 36

19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 36
Á leifi á akurinn. FRÁ GRIKKLANDSFÖR — Frh. af bls. 6: fundartími brezka þingsins sé mjög óþægilegur fyrir þser, en hann er frá kl. 3 á daginn til mið- nættis. Húsmæður, er stunda atvinnu utan heim- ilis, hafa litinn tíma til að starfa í stjórnmála- flokkum, enda eru þeir tregir til að 'veita þeim viðunandi sæti á listum sinum. Sumir telja, að þessi tregða flokanna sé aðalástæðan fyrir því, hve fáar konur komast á þing. Gamlar hefðbundnar venjur hafa líka sin áhrif, þó að nú þoki víða smátt og smátt í rétta átt, er þátttaka kvenna í atvinnu- lífinu eykst. 1 Englandi fjölgar nú samt konum, sem ganga í stjómmálaflokka, og ef þær vinna þar eins vel og karlar, er sagt, að þær séu látnar njóta jafnréttis um þingsæti. En þá kemur i ljós, að þær hafa margar slæman galla frá flokkssjónarmiði. Þær eru of sjálfstæðar í skoðunum, vilja treysta á eigin dómgreind og eru tregari en karlar til að fylgja flokknum, þegar ákvarðanir hans stangast á við þeirra eigin sannfæringu. Þetta aðalmál þingsins var rætt í tvo daga, og kom öllum saman um, að eins og heimsmálunum væri nú komið, mundi heillavænlegt, að áhrifa kvenna á þau gætti meira hér eftir en hingað til. Á þinginu voru einnig rædd friðarmál, uppeld- ismál, stjórnmálalegt, fjárhagslegt og siðferðilegt jafnrétti og gerðar samþykktir, sem fara hér á eftir. Sjá bls. 39—40. Ester Graff, sem verið hefur formaður síðastlið- in sex ár, baðst undan endurkosningu. Formaður er nú Ezlynn Deranyagala í Colombo á Ceylon. Förin til Delfi. Einn daginn bauð gríska ferðafélagið okkur til Delfi. Vegurinn þangað, eins og reyndar flestir vegir í Grikklandi, liggur upp og niður snarbrött fjöll, og var ekki laust við, að sumum sléttubú- unum þætti nóg um. Hvað brattann og beygjurnar snertir, minnti hann á vegina á Vest- og Aust- fjörðum, en var miklu betur lagður, og hér var oft ekið fram hjá vínekrum, þar sem greinarnar svignuðu undir þunga drúfuklasanna. En megnið af landinu, sem við ókum um, var skrælnað og þurrt, þar hafði ekki komið dropi úr lofti síðan í aprilmánuði. I Delfi, þeim fornfræga stað, er dásamlega fag- urt landslag. Rústir hinna fornu hofa, sem nú hafa verið grafnar úr skauti jarðar, standa i hárri f jalls- hlíð. Til vinstri er stór og gróðursæll dalur, þak- inn olívutrjám og vínviði, en til hægri sér út á sjóinn. Ekki auðnaðist okkur að sjá glufuna, þar sem Phyþya sat á þrífætinum sínum, þegar hún þuldi véfréttina; enginn veit nú, hvar glufan sú hefur verið, en lindin helga, sem völvan drakk af, áður en hún hóf spádóminn, er með sömu um- merkjum og hún var fyrir þúsundum ára. I henni er sannkallað lífsins vatn, langtum betra en vatn- ið í Aþenu, sem er blandað klór og því bragðvont. Grikkland er hrjóstrugt fjallaland, nálægt þriðj- ungi stærra en ísland að undanskildum eyjum, en í landinu búa 8 milljónir manna. Aðeins l/g hluti landsins er ræktanlegur, og þó teygja vínekrurnar sig víða æðilangt upp eftir fjallahliðunum. Tóbaks- og baðmullarrækt er mikil í dölum Norður-Grikk- lands, en þeim gengur illa að selja tóbakið. Það er eitt af því, sem Grikkjum sárnar við Englend- inga, að þeir eru tregir til að kaupa gríska tóbakið. Ef Englendingar keyptu aðeins 5% af árlegri tó- 34 19. JÍTNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.