19. júní


19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 41

19. júní - 19.06.1959, Blaðsíða 41
Svisslendingar trúa ekki konum sínum og systr- um fyrir því að hafa kosningarétt. Svissland er eina siðmenntaða landið í Evrópu, þar sem konum er ennþá neitað um þau sjálf- sögðu mannréttindi að mega kjósa og hafa þannig áhrif á það, hvernig vandamál samtíðarinnar eru leyst. 1 janúarmánuði fór fram atkvæðagreiðsla um það, hvort konum skyldi veittur kosningaréttur. Auðvitað voru það aðeins karlar, sem greiddu at- kvæði um þetta, engin kona kom þar nálægt, og auðvitað var það kolfellt. Röksemdir þær, sem fram eru færðar, eru þær sömu og fyrir 100 árum: Konurnar eiga að vera heima á heimilunum. Konur skilja ekki stjórnmál. Kosningaréttur færir konum enga hamingju. Fellt var í 16 fylkjum af 22 og 6 „hálf-fylkjum“ að veita konum kosningarétt, en samþykkt í að- eins þremur. Eitt fylkið, Vaud, hafði áður veitt konum kosningarétt til bæjarstjórnarkosninga. I Genf greiddi mikill meirihluti atkvæði með því að veita konum kosningarétt, og nú hafa 4 stjórnmálaflokkar borið fram þá kröfu við fylkis- stjórnina, að konur fái kosningarétt til bæjar- og sveitarstjórna. Flokkar þessir voru: Verkamanna- flokkur, Sósíalistar, Kristilegir Sósíalistar og Frjáls- lyndir. Tveimur dögum eftir að niðurstöðutölur kosn- inganna voru kunnar, gerðu 50 kvenkennarar við Lycée de Jeunes Filles í Basel eins dags verkfall til þess að mótmæla niðurstöðunum. 70 samkenn- arar þeirra, karlar, mættu til kennslustarfa, en skólastjórinn ákvað kl. 9 að morgni að láta enga kennslu fara fram. Verkfall kennaranna vakti tnikla athygli bæði með og móti, en á fundi, sem baldinn var þann dag í Basel til þess að styðja mótmæli þeirra, voru þær studdar með margföld- um meirihluta fundarmanna. Um aldir hafa konur og karlar barizt fyrir frelsi og talið það verðmætara hverri mannveru en auð- æfi. Samtök þessara 50 kennara í Basel er hlekk- ur í þeirri baráttu. (I.W.N.). — P.J. Gistivinátta. Til að auka kynni og tengsl meðal meðlima sinna hefur Alþjóðakvenréttindafélagið látið sambands- félög sín skipa nefndir í hverju landi til að leið- beina þeim félagskonum, er ber að þeirra garði. Allir, sem nokkuð hafa ferðazt, vita, hver regin- munur er á því að hafa einhvern kunnugan til SAMÞYKKTIR 18. þings AlþjóSakvenrcUindafclagsins (International Al- liance of Women), sein lialdiS var í Aþenu 25. ágúst til 4. september 1958. Alincnn ályktun. 18. þing Alþjóðakvenréttindafélagsins (International Alli- ance of Women), sem haldið var 1958, Álítur, að siðastliðin tiu ár hafi Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna gert ríkisstjórnum og þjóðuin yfirleitt ljóst, að grundvallaratriði alls mannlegs samfélags eigi að vera lagalegt jafnrétti án tillits til litarhóttar, kynjiátta, kyns, trúarbragða eða stjómmólaskoðana. Skuldbindur sig til að fylgja fast fram yfirlýsingu Mann- réttindaskrárinnar, einkum er varðar að tryggja konum lagalegt jafnrétti og jafnrétti innan fjölskyldunnar, veita þeim sömu tækifæri til menntunar og jafnstrangar siðferðis- kröfur séu gerðar til karla og kvenna. Framh. á nœstu síSu. leiðbeininga í ókunnri borg. Félagskonur K.R.F.I., sem ferðast til útlanda, ættu því að notfæra sér þetta góða boð. Að sjálfsögðu þarf að tilkynna komu sína með nokkrum fyrirvara. Ný hjónabandslöggjöf í Alsír. Franska stjórnin gaf út reglugerð, sem staðfest var í aprílmánuði síðastliðnum. Múhameðstrúarkonu má ekki giftar án hennar samþykkis, og tvö vitni verða að vera viðstödd. Réttur mannsins til þess að hlaupa frá konum er afnuminn. Hjónaskilnaðarlög eru nú líkari því, sem gerist í Evrópu. Lágmarksgiftingaraldur konunnar er nú 15 ár, en karla 18 ár. Áður var enginn lágmarksgift- ingaraldur tiltekinn, og stúlkubörn voru oft lofuð ákveðnum manni þegar á fyrsta ári. Fjölkvæni er ennþá löglegt, en skýrslur sýna, að aðeins 2% Múhameðstrúarmanna notfæra sér það. Reglugerð þessi var mestmegnis undirbúin af Mademoiselle Sid Car, ritara ráðuneytis Alsír- mála, en hún er eini meðlimur ráðuneytisins, sem er Múhameðstrúar. (I.W.N.). — P.J. tJr Ilagtíðindum. I nýútkomnum Hagtíðindum er sagt frá því, að af 1146 bæjarstjórnar- og hreppsnefndarmönnum á landinu eru aðeins 10 konur. Þau bæjarfélög og þær hreppsnefndir, sem kosið hafa konur, eru: Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Breiðdals- hreppur, Beruneshreppur, Garðahreppur, Flateyri, Selfoss og Mosfellshreppur. 19. JÚNl 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.