19. júní - 19.06.1959, Síða 19
Fyrir aðeins einu ári voru til lög á Islandi, sem
telja mátti, að mæltu svo fyrir, að refsa skyldi
konum fyrir að ganga í hjónaband, ef þær höfðu
launuð störf. í skattalögunum voru þau ákvæði, að
leggja skyldi saman tekjur hjóna og skattleggja
sem einn hefði aflað. Munurinn á þeim skatti,
sem hjón eða svokallað sambýlisfólk þurfti að
greiða, gat numið verulegum upphæðum, og var
ekki óalgengt, að eyða þyrfti þá aukalega um 10
—20 þúsund krónum í fyrirtækið hjónaband. —
Kvenréttindafélag Islands hafði um tug ára barizt
ötullega fyrir því að fá þessari löggjöf breytt. En
árangurinn virtist ekki meiri en hjá dropanum við
að hola steininn. Þó kom að því í júnímánuði 1957,
að þáverandi fjármálaráðherra Eysteinn Jónsson
skipaði fimm manna nefnd til að „athuga aðstöðu
hjóna til skattgreiðslu og gera tillögur um þau
mál“. Nefnd þessa skipuðu: Karl Kristjánsson, sem
var formaður, Adda Bára Sigfúsdóttir, Guðmundur
Þorláksson, Magnús Jónsson og Valborg Bents-
dóttir. Nefndin skilaði áliti á útmánuðum 1958,
og voru tillögur þær, sem hún lagði fram, sam-
þykktar á Alþingi á síðasta vori.
Helztu nýmæli þessarar nýju breytingar á
skattalögunum er, að vinni gift kona fyrir skatt-
skyldum tekjum og telji þær fram ásamt með tekj-
um eiginmanns síns, fær hún helming þeirra skatt-
frjálsan. Hins vegar er henni heimilt, ef hún óskar
þess, að telja fram sérstaklega, og greiða þá hjón-
in skatt sem tveir einstaklingar væru. Oftast nær
er mjög svipað frá fjárhagslegu sjónarmiði, livor
leiðin er valin, ef um fullan vinnudag er að ræða
hjá báðum, en fyrri leiðin er tvímælalaust hag-
stæðari, ef konan vinnur, t. d. hálfan dag eða
minna. — Einstæðir framfærendur fá aukinn per-
sónufrádrátt vegna ómaga og heimilisfrádrátt, ef
þeir hafa heimili fyrir börn sín. Þetta nýmæli er
mikil réttarbót fyrir einstæðar mæður. Auk þess
var persónufrádráttur allra hjóna hækkaður að
nokkru, og er hann nú samanlagt sem tveggja ein-
staklinga, en var lægri áður.
Ekki þótti nefndarmönnum fært að koma fram
með öllu djarfari eða viðtækari tillögur á þessu stigi
málsins, en töldu, að með þessari breytingu væri
afmáður ljótasti bletturinn á skattalöggjöfinni. Og
má nú taka undir þá ósk, sem fyrrverandi fjár-
málaráðherra bar fram á síðastliðnu hausti i fjár-
lagaræðu sinni, að vonandi „fjölgaði nú farsælum
hjónaböndum".
Valborg Bentsdóttir.
r, ------ -..... ........................^
lngibjörg Sveinsdóttir hét kona, heimilis-
föst í Árnessýslu fyrir og eftir síðustu alda-
mót. Imba gerði töluvert að því að yrkja, en
hlaut harla lítið lof fyrir.
Fyrsti snjórinn.
Mikil úti vætan er
út um alla móa.
Áfram heldur skaparinn
ofan á jörð að snjóa.
Stúlka fótkrotnaði.
Hér liggur snót
með brotinn fót.
Hlaut hún slys á vegi.
Smátt og smátt
fær heilsubót
guðs að ganga á vegi.
Aumingja greyið!
Rómantík í slwgjunni.
Liður undir sólarlag
segir klukkan hans.
Á hvítu haldi slær hann,
og hlýtt er mér til hans..
!_____________________— ---------------- ---b
Heimboð til Hafnar.
Dansk Kvindesamfund bauð fimm konum frá
hverju kvenréttindafélagi á Norðurlöndum að
dveljast fimm daga í Kaupmannahöfn síðastliðið
vor. Ein kona frá KRFf þáði boðið, Kristín Bjarna-
dóttir.
19. JONl
17