19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1976, Qupperneq 13

19. júní - 19.06.1976, Qupperneq 13
Þetta væri svo sannarlega æskilegt. önnur tilhögun gæti hentað........ Það er samt óæskileg skipting. mismunandi hyskið — sumir taka til aðrir gera það ekki. Eg mundi ekki kæra mig að koma heim, að loknum löngum vinnu- degi í samkrull með mörgum öðrum fjölskyldum. Be. Það er samt óæskileg skipting, sem orðin er á fjöl- skyldum — aldraða fólkið tekið úr tengslum við heimilin. G. Þetta atriði, sem þú nefndir Margrét, tel ég afar mikilvægt umhugsunarefni. Kjarnafjölskyldan er hagstætt fyrirbæri fyrir framleiðsluöflin og neyslusamfélagið. Lífsgæðakapp- hlaupið, sem svo hefur verið kallað og að fólk er einangrað í litlum hópum eða fjölskyldum orsakar að neyslan verður meiri. Smáar fjölskyldur keppa hver við aðra um að eignast sem mest og með því að ala á því er hægt að skapa þarfir hjá fólki, sem eru falskar en stuðla að aukinni neyslu. M. Lg er ekki að mæla með slíkri samkeppni eða fölskum og e.t.v. ímynduðum þörfum, en þú talaðir um neysluþjóðfélag og ég vil jiá spyrja þig — hvaða önnur þjóðfélög hefur þú í huga. Þetta hugtak, neysluþjóðfélag, á við öll þjóðfélög. Hvatinn að þeim öllum felst í því að framleiða visst magn af hráefni, vinna úr því, selja öðrum og þjóna hver öðrum. G. A síðustu árum hefur verið tilhneiging í þá átt að breyta samfélagstilhöguninni. Be. Er komin nokkur reynsla á þau samfélög? M. Maður hefur séð sumt takast og annað ekki. Mér þætti auðvitað freistandi að gera tilraunir með ný sambýlisform og nýja tilhögun starfa — að allt sé sem sveigjanlegast og fólk þurfi ekki að vera bundið á bás. G. Onnur tilhögun en nú tíðkast gæti hentað mörgum t.d. að hafa íbúð í sambýlishúsi, hver fyrir sig, en eiga þess kost að kaupa máltíðir á hóflegu verði, að rekið væri dagvistunarheimili á staðnum og t.d. þvottahús. Að fólk þyrfti ekki að loknum vinnu- degi hver um sig að vinna þessi störf — |iau væru leyst á sameiginlegum grundvelli. Be. Félagslega séð gæti þetta orðið hagstætt t.d. fyrir börnin og þá sem e.t.v. eru einmana. Bj. Nú hafa Guðrún og Margrét tjáð sig dálítið i sambandi við heimili og fjölskyldu án þess að út úr því kæmi að leysa bæri heimilið upp sem slíkt eða hverfa frá fjöl- skylduforminu. Mig langar til að spyrja ykkur Beta og Linda — hvaða hlutverk finnst ykkur að heimilið eigi að hafa? Be. Heimilið á að vera athvarf og griðastaður fjöl- skyldunnar — þar hittist nákomið fóik og býr saman. Mér sýnist j:>að vera besta formið — það er ekki komin reynsla á aðra tilhögun, enda þótt ég sé ekki að hafa á móti einhverjum sveigjanleika. Bj. Þú ert sem sagt sammála stjórnarskrárgreininni, þar sem segir að heimilið sé friðheilagt. Þér finnst að á heimilinu séum við í griðum meðal vina. L. Ég er algjörlega sammála Betu. G. Það er reynsla fólks t.d. úr kennslustörfum, að þegar hópur vinnur saman að verkefni — skapar eitthvað saman — þá myndast samstaða og félags- kennd. Það er leið til að tengja saman einstaklinga. Stórfjöl- skyldan á sveitaheimilunum í bændasamfélaginu vann að 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.