19. júní - 19.06.1976, Blaðsíða 49
íslenskar konur, sem til náðist
með stuttum fyrirvara og vitað
var að myndu hafa gagn og gam-
an af að hitta þær Inger Marga-
rethe og Olgu. Á þessum fundi
var ýmislegt rætt, m.a. um óvígða
sambúð, tryggingamál og skatta-
mál svo eitthvað sé nefnt. Var
þessi fundur bæði fróðlegur og
skemmtilegur.
Á tveimur af þremur félags-
fundum á sl. ári var rætt um
skattamál.
Á fundi 9. maí 1975 ræddi
Guðmundur Magnússon um ný-
legar breytingar á skattalögum
og ýmsar hugmyndir um frekari
breytingar, m.a. svonefnda
helmingaskiptareglu við skatt-
lagningu hjóna.
Á fundi 9. febrúar s.l. höfðu svo
Adda Bára Sigfúsdóttir og Kjart-
an Jóhannsson framsögu um það,
hvort leggja bæri niður tekju-
skatt.
Á fundi 12. nóvember s.l. var
svo umræðuefnið: „Raunhæf
þátttaka kvenna í stjórnmálum.
Hvaða ráðum skal beita til að
auka hana?— Frummælendur á
þessum fundi voru frá öllum
stjórnmálaflokkum, en það voru:
Gylfi Þ. Ghlason, Svava Jakobs-
dóttir, Sgi Tryggvason, Ólafur
Ragnar Grímsson og Ellert B.
Schram.
Starf félagsins s.l. ár ein-
kenndist að sjálfsögðu mjög af
kvennaárinu og þátttöku í þeim
atburðum, sem áttu sér stað í til-
efni þess. Er þar helst að nefna:
(1) sýninguna „Listiðja í dagsins
önn“, þar sem sýndir voru list-
munir unnir af konum í Græn-
landi, á Islandi, í Færeyjum, á
Álandseyjum og af Sömum;
2) hátíðafund í Háskólabíói; (3)
ráðstefnu á Loftleiðum og (4)
Kvennafríið 24. október, en
KRFÍ lánaði húsnæði sitt á
Hallveigarstöðum endurgjalds-
laust til undirbúningsvinnu og
úrvinnslu þess mikla atburðar.
Þá tóku einstakir félagsmenn
mikinn þátt í fundum og sam-
komum í tilefni kvennaárs, ýmist
á vegum félagsins eða sem ein-
staklingar.
Eins og jafnan áður hefur
stjórn félagsins fylgst með þeim
málum, sem verið hafa í brenni-
punkti hverju sinni og reynt að
hafa áhrif á gang þeirra. Má í þvf
sambandi nefna, að stjórnin sendi
Alþingi álitsgerð um frumvarp til
laga um fæðingarorlof, sem nú er
orðið að lögum. Stjórnin studdi
þetta mál af alefli og taldi þessa
lagasetningu stórt skref í átt til
jafnréttis kvenna á vinnumark-
aði. Enn fremur fóru 3 konur úr
félaginu niður í Alþingishús og
tóku þingmenn tali og reyndu að
sannfæra þá um gildi slíkrar
lagasetningar fyrir konur í A.S.Í.
Reynslan af þessu frumkvæði
varð sú, að telja verður að slíkar
heimsóknir geti haft úrslitaþýð-
ingu á framvindu mála þar
neðra.
Stjórn KRFl sendi útvarps-
ráði, þá nýkjörnu, bréf þess efnis,
að það gætti þess, að konur nytu
jafnt við karla þess réttar að koma
fram í útvarpi og sjónvarpi, við
gerð dagskrárefnis og erinda-
flutnings. Bauðst stjórnin til að
vera ráðinu innan handar um val
flytjenda og efnis, og lagði m.a. til
2 erindi, sem flutt höfðu verið á
félagsfundi hjá KRFl
I tíð fyrrverandi stjórnar hafði
póst- og símamálastjórn verið rit-
að bréf og þess óskað, að gefið yrði
út frímerki í tilefni kvennaárs,
með mynd af Bríetu
Bjarnhéðinsdóttur. Eftir að bréf
þetta hafði verið ítrekað barst
loks svar þess efnis, að fyrir löngu
væri búið að ákveða alla frí-
merkjaútgáfu á árinu 1975, en
hugsanlegt væri að til þess gæti
komið síðar og hefði bréfinu verið
komið til þeirra aðila, sem um
útgáfuna sjá og væri þar til
athugunar.
Seint á árinu 1974 stofnaði
fjármálaráðherra starfshóp til að
endurskoða tryggingalöggjöfina
og lög um tekju- og eignaskatt. I
þennan starfshóp fékk hann „að
sjálfsögðu“ eingöngu karlmenn.
Stjórn KRFÍ skrifaði fjármála-
ráðherra bréf og óskaði eftir að fá
aðild að þessum starfshópi, og
vísaði í því sambandi til fyrri af-
skipta félagsins af þessum mál-
um. Ekkert svar hefur enn borist,
þrátt fyrir ítrekaðar munnlegar
fyrirspurnir.
Þar sem það virtist borin von
að félagið fengi nokkuð að fylgj-
ast með þeirri tillögusmíð í
skattamálum, sem fram fer nú i
fjármálaráðuneytinu, ákvað
stjórnin að koma á fót starfshópi
um skattamál. Var haft samband
við fjölmarga félagsmenn og
hittust þeir nokkrum sinnum.
Verður starfið tekið upp aftur af
krafti á næsta hausti.
I júní 1975 barst KRFÍ boð frá
Norsk kvinnesaksforening í Osló
um að senda þátttakendur á ráð-
stefnu, sem félagið gekkst fyrir á
Voksenáser. við Osló 29. —
1. okt. s.l. Fjallaö var þar um
,Kvinner i Massemedia“ (kon-
ur í fjölmiðlum), og var
þess óskað að þátttakend-
urnir störfuðu við fjölmiðla.
K.R.F.I. fékk styrk frá mennta-
málaráðunevtinu til að senda
einn fulh.úa á ráðstefnuna,
en niðurstaðan varð sú, að tvær
konur skiptu styrknum á milli sfn.
Voru það þær Margrét R.
Bjarnason og Fríða Björnsdóttir.
Á þessari ráðstefnu var ákveðið,
Framhald á bls. 58.
47