19. júní


19. júní - 19.06.1976, Blaðsíða 22

19. júní - 19.06.1976, Blaðsíða 22
við hlutskipti sitt, en undir niðri er hún ósátt við sjálfa sig, eins og kemur fram, er á kvöldið líður. f fyrstu kveður hún sig mjög ham- ingjusama í lífi sínu og hjóna- bandi, en játar síðar, að hún hafi tekið sér elskhuga. Elinborg — er listmálari. Hún er að því er virðist sjálfstæð og sterk persóna og sjálfri sér nóg. Hún lifir í barnlausu hjónabandi og er hamingjusöm. En hún fær ekki að lifa með hamingju sína í friði; Anna María segir henni, að eiginmaður hennar haldi fram hjá henni með fyrrverandi bekkj- arsystur þeirra. Lillý — er fjögurra barna móðir og húsmóðir. Hún er nokkuð einföld, eða telur sig vera það, jafnvel að það sé ætlast til þess að hún sé það. Allt líf hennar snýst um börnin, manninn og heimilið, sem glöggt má sjá af því, að hún er ekki í rónni, fyrr en hún hefur hringt heim, til að fullvissa sig um, að allt sé í lagi þar. En Lillý á sér sina drauma og sorgir eins og hinar. Hún er vanfær að fimmta barni sínu, en segist ekki kæra sig um að fæða það, raunar hafi hún verið sama sinnis, er hún gekk með fjórða barn sitt. Hún hafi þá reynt að fá fóstrinu eytt, en verið synjað á þeirri forsendu, að hún byggi við góðan fjárhag, ekkert væri að henni og hún gæti vel séð um fjögur börn. I lok leik- ritsins tekur hún þá ákvörðun að reyna að fá fóstrinu eytt. Sif — er ógift og barnlaus. Hún er feimin, óframfærin og mjög einmana, eiginlega hálf-um- komulaus. Hún hafði það sér til dundurs sem barn að safna lif- andi skordýrum, sem hún geymdi síðan i skókössum. í leikritinu er gefið í skyn, að hún sé kynvillt. Eins og áður segir, gerðust þær stallsystur nokkuð málglaðar, er á leið kvöldið, og fjölluðu umræður þeirra að miklu leyti um mál, er varða stöðu kvenna í þjóðfélag- inu, um baráttu þeirra gegn hinni hefðbundnu kynferðislegu hlut- verkaskiptingu, m.a. í atvinnulíf- inu. Hanna leikur og lýsir hinu viðtekna vinnuframlagi kvenna svo: „Eins og húsbóndi minn þóknast. Eg fara i verksmiðju, ég þvo stór löng gólf, ég afgreiða í búð, ég tæma koppa, ég selja fal- lega muni, ég passa gamalt fólk, passa börn, passa veikt fólk. Ég hlaupa heim, sjóða kartöflur, baka kökur, enginn taka eftir ég vinna.“ Telja má aðaláherzlu lagða á þrjú atriði í umræðu vinkvenn- anna. í fyrsta lagi áhrif uppeldis- ins í þessu tilliti, í öðru lagi gildi þess, að konur geri sér grein fyrir því, hvers þær eru megnugar (sjálfsvitundarinnar) og í þriðja lagi gildi og mátt samstöðu kvenna. a) Hanna telur konur lifa í kerfi karlmannsins og aldar upp í þeirri hugsun að sætta sig við það; þær séu aldar upp til að verða mæður. barna sinna og eiginkonur manna sinna. Stúlkur séu fylltar ástarsögu- og Holly- wooddraumum, draumnum um stóra, sterka karlmanninn, sem tekur þær að sér og elskar þær, ástriðufullur um alla eilífð —. Lillý kveður sig hafa notað líf sitt í að ala börn og gæta þeirra. Hanna spyr hana: „Hvað hefð- irðu viljað gera við það (lífið), ef þú hefðir mátt velja?“ Lilly svar- ar: „Velja? Gat ég valið? Ég hugsaði aldrei um neitt nema giftast og eignast börn.“ Og Hanna segir á öðrum stað: „Og ég er þeirrar skoðunar, að ef við mættum velja upp á nýtt, þá myndu flestar konur ekki kæra sig um hjónabandið. Að minnsta kosti hefðum við beðið, við fengum bara aldrei tækifæri til þess að bíða. Við vorum fyllt- ar með hamingju- og köllunar- kjaftæði, fullar af hamingju- og köllunarkjaftæði örkuðum við alsælar i einfeldni okkar inni í þriggja herbergja ibúð- ina . . . og uppgötvuðum svo að dyrnar höfðu skollið í bak- 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.