19. júní


19. júní - 19.06.1976, Side 21

19. júní - 19.06.1976, Side 21
Fimm konur Fimmtudaginn 8. apríl s.l. var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leik- ritið Fimm konur eftir norska rit- höfundinn Björgu Vik. Björg Vik er fædd í Osló árið 1935. Hún er af efnalitlu fólki komin. Eftir stúdentspróf var hún send í húsmæðraskóla að eigin sögn. Árið 1955 hóf hún nám við blaðamannaháskólann í Osló, og starfaði síðan sem blaðamaður við dagblað í iðnaðarbænum Porsgrunn á Þelamörk. Þar kynntist hún eiginmanni sínum og býr þar enn ásamt honum og þrem börnum þeirra. Björg Vik hefur um nokkurt árabil haft bein afskipti af jafn- réttismálum og er hún nú ein af forvígiskonum kvennahreyfing- arinnar „Nyfeministerna“. Hún var meðal jaeirra kvenna, er komu á fót tímaritinu „Sirene;; árið 1973, en það fjallar um jafn- réttismál og er ætlað jafnt körlum sem konum. Rithöfundaferil sinn hóf Björg Vik með því að skrifa smásögur í ýmis norsk tímarit, en sögur þessar voru síðan gefnar út í bók- inni Sunnudagssíðdegi árið 1963. Tvö önnur smásagnasöfn komu út árin 1966 og 1968, Neyðaróp úr mjúkum sófa og Ágjarna hjartað. Hún hefur einnig skrifað tvær skáldsögur — Grát ástkæri eiginmaður (1970) og Konurnar í fiskabúrinu (1972). Öll ritverk Bjargar Vik fjalla að mestu um ástina og hin ýmsu vandamál, er hana varða. Leikrit Bjargar Vik eru 2, — Húrra, það var stelpa! og Fimm konur (eða Tveir þættir um fimm konur eins og það heitir á frum- málinu) — 1974, og hefur hið síðarnefnda notið mikilla vin- sælda, m.a. verið sýnt um öll Norðurlöndin við mikla aðsókn. Nýjasta verk Bjargar Vik er Fortellinger om frihet — Frás- agnir af frelsi, en það var annað þeirra ritverka, er norðmenn lögðu fram til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs árið 1975. Árið 1974 mun Björg Vik hafa fengið verðlaun norskra bókmenntagagnrýnenda. Leikritið Fimm konur gerist eina kvöldstund. Fimm gamlar vinkonur og skólasystur á fertugsaldri hittast hjá einni þeirra. Er leikritið hefst, hafa þær rétt lokið við að borða saman. Þær sitja síðan og ræða saman fram eftir kvöldi í góðu yfirlæti. Þær rifja upp gamlar endur- minningar úr skóla og frá unglingsárunum, ræða um gamla skólafélaga og síðast en ekki sízt um sjálfar sig. Þegar á kvöldið líður, gerast þær nokkuð ölvaðar og málglaðar eftir því, og kemur þá margt í ljós um líf þeirra og hagi, sem hulið var áður. Konurnar eru um margt ólíkar hver annarri, en þær eru: Hanna — fráskilin tveggja barna móðir, sem starfar sem ljósmyndari. Hún er nokkuð bit- ur og óvægin. Hún hefur brotið af sér viðjar hjónabandsins, að því er hún sjálf segir, en um leið varð hún að gera son sinn „móður- lausan“ til þess að gera ekki bæði börnin „föðurlaus;;, þ.e.a.s. eiginmaður hennar fékk forræði yfir syni þeirra, en hún yfir dóttur þeirra. Hanna vill ekki sætta sig við það hlutskipti konunnar að „heyra ekkert, sjá ekkert, segja ekkert“, og hún reynir að sann- færa vinkonurnar um að breyt- inga sé þörf. Hún hefur hvað eftir annað máls á jafnréttismálum. Líklega má telja Hönnu aðalper- sónu leikritsins og jafnframt mál- pipu Bjargar Vik að einhverju leyti. Anna María — er nokkurra barna móðir og kennari að at- vinnu. Hún virðist sætta sig vel Frá vinstri — Sif: Sigríður Þorvaldsdóttir, Elinborg: Kristin Anna Þórarins- dóttií, Lillý: Bryndís Pétursdóttir, Hanna: Margrét Guðmundsdóttir, Anna Maria: Bríet Héðinsdóttir. 19

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.