19. júní


19. júní - 19.06.1976, Side 29

19. júní - 19.06.1976, Side 29
Blýantsteikning eftir Þorbjörgu Höskuldsdóttur. gegn að hún er að leika. Býr hér? . . . afsakið. Hann snýst á hæl og flýtir sér út. Konan ljómar, kinnarnar rjóðar, leiftur i augum. Líkaminn beinn og spenntur. Hún segir ekkert. Bíður. Eiginmaðurinn er staðinn upp, skynjar eitthvað, sem er að gerast. Hvort það er lygi, leikur, mistök eða blákaldur sannleikur, er ekki á hans færi að ákveða í einni svipan. Hann reynir að rannsaka málið. — Þú bauðst þessum manni hingað . . . hélst að ég væri á fundi. Hvenær byrjaðir þú þenn- an leik? — Konan sér að maður- inn er reiður. Hún gleymir öllu, nema hlutverkinu. Gerir sig vandræðalega, hikandi. — Þessi maður, — hann var að villast, þú heyrðir það sjálfur. Hvers vegna ertu allt í einu svona tortrygginn? Maðurinn er á báðum áttum. — Þú varst að tala í símann, þegar ég kom. Þú sagðir: — Eg er ein. — Þú hélst að ég væri á fundi. Nú er hann alveg viss í sinni sök. Hvað gengur að þér? Lít ég út eins og kona, sem trúandi er til að halda fram hjá manninum sín- um? Hún stendur frammi fyrir manninum, heit, ögrandi, ótrygg. Þá sér hann það greinilega. Hún lítur út eins og kona, sem er trúandi til hvers sem er. Hann snýr baki við henni og gengur inn í stofuna. Sest þar og byrgir sig bak við dagblaðið. Særður maður, og þó ef til vill enn meira undrandi. Þessu hafði hann al- drei búist við. Þó hún sé svona falleg. Konan kveikir sér í nýrri sígar- ettu. Þá er þessum leik lokið. Eftir er aðeins að laga allt til aftur. Hræðilega var það lítilfjörlegt. Engin sena. Þreyttur og svolítið hnugginn eiginmaður. Bjána- legur elskhugi, sem verður eins og aumingi af minnsta tilefni og hleypur í burtu. Svo þetta er lífið. Gott. Nú er ekkert eftir. Best að fara upp í sveit, á rólegan stað. Fara í gönguferðir. Teikna, ef Framhald á bls. 59. Unnur Eiríksdóttir rithöfundur. Fædd 7. júlí 1921 — dáin 7. janúar 1976. Unnur Eiríksdóttir rithöfundur var fædd á Bíldudal, dóttir Eiríks Einars- sonar bónda, Réttarholti, Reykjavík, og konu hans Sigrúnar Kristjánsdóttur. Hún ólst frá barnæsku upp hjá föður- bróður sínum Þorsteini Einarssyni kenn- ara að Höfðabrekku í Mýrdal. Unnur Eiríksdóttir hóf rithöfundar- feril sinn með því að birta smásögur og ljóð i blöðum og tímaritum. Ritstörfin stundaði hún samhliða venjulegum hús- móðurstörfum. Fyrsta bók hennar Villi- birta kom út árið 1969, næst kom ljóða- bókin / skjóli háskans árið 1971 og síðan smásagnasafnið Hvítrnánuður árið 1974. Auk þess fékkst hún talsvert við þýðingar og þýddi meðal annars skáldsögur eftir rithöfundana Jean-Paul Sartre og Friedrich Dúrrenmatt. Árið 1969 birtist eftir Unni Eiríks- dóttur smásagan Gröf á þrettándu hœð í 19. júní. Smásagan, sem hér er birt, er úr smásagnasafninu Hvítmánuður. 27

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.