Sólskin - 01.07.1937, Síða 46
sennilega staðið vestan við mitt Aðalstrætú
Gata hefir þá líklega legið frá honum til sjáv-
ar, þar sem Aðalstræti er nú. Aðalstræti er
því, að öllum líkindum, elsta gata Reykjávík-
ur og elsta gatan á íslandi.
Ósk: Var svo strax farið að byggja fleiri hús?
Finna: Nei, Reykjavík var í mörg hundruð ár
bóndabær, líkur öðrum sveitabæjum á landinu.
Ósk: Hve nær var þá farið að byggja meira?
Finna: Það var ekki fyrr en um 900 árum síð-
ar, eða eftir miðja 18. öld, þegar hinn ágæti
afburðamaður, Skúli Magnússon landfógeti,
reisti hér verksmiðjur sínar. Hann lagði grund-
völlinn að Reykjavíkurkaupstað. Hann var stór-
brotið mikilmenni, sem skapaði ný viðfangs-
efni, og var langt á undan samtíð sinni. —
Reykjavík fékk síðar kaupstaðarréttindi og
frjálsa verslun. Alþingi og fleiri menningar-
stofnanir voru fluttar hingað eða reistar hér.
Reykjavík stækkaði þannig smám saman, og
hefir nú um langt skeið verið miðstöð menn-
ingar, viðskipta og framfara í landinu.
Asa: Hvað búa margir í Reykjavík?
Finna: Meira en þriðjungur allra íslendinga,
eða um 35 þúsundir manna.
Teitur: Hérna á þessu eina nesi?
Finna: Já, og aðeins á nokkrum hluta þess.
44